Skjálftahrina á Hellisheiði hófst í morgun Freyja Þórisdóttir skrifar 31. maí 2026 17:42 Skjálftarnir hófust í morgun á Hellisheiði. Vísir/Vilhelm Rétt fyrir klukkan sjö í morgun hófst skjálftahrina á Hellisheiði en alls hafa um hundrað og tuttugu skjálftar mælst síðan þá. Sá stærsti, óyfirfarin stærð, var um 3,2 að stærð nú klukkan 17:15 og það voru nokkrir aðrir sem náðu nánast 3 að stærð.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá náttúruvakt Veðurstofunnar. Þar segir einnig að Veðurstofu hafi borist ábendingar frá Hveragerði um að skjálftarnir finnist þar en líklegt er að þeir stærstu finnist víðar. „Það er ekki óalgengt að þetta gerist á þessu svæði, svona lítil þyrping af skjálftum,“ sagði Ingibjörg Andrea Bergþórsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Þá gat hún ekki sagt til um hvort að fleiri myndu fylgja í kjölfarið. Rétt fyrir klukkan sjö í morgun mældist skjálfti að stærð 2,8 rétt vestan við Húsmúla við Hellisheiðarvirkjun. Ein tilkynning um að skjálftinn hefði fundist barst frá íbúa í Hveragerði. Ekki óalgengt Skjálftar og skjálftahrinur eru nokkuð algengar á þessu svæði, síðast varð álíka hrina í júní 2024 en fyrir viku varð einnig hrina úti af Reykjanesi. Stærsti skjálftinn þá mældist 3,5 að stærð en ekki mældist órói á svæðinu að sögn Veðurstofunnar. Þá varð jarðskjálfti sem mældist 3,8 að stærð í Bárðarbunguöskjunni aðfaranótt 25. maí og þá sagði í tilkynningu frá Veðurstofunni að jarðskjálftar af slíkri stærðargráðu séu nokkuð reglulegir í eldstöðinni. Þá var ekki tilkynnt um að skjálftarnir hefðu fundist í byggð. Jarðskjálftahrinur eru algengar á flekaskilunum og síðast varð svipuð hrina á þessu svæði í febrúar og apríl á þessu ári og vörðu þær frá nokkrum klukkustundum upp í nokkra daga.
Eldgos og jarðhræringar Hveragerði Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira