Lögsækja Reykjavíkurborg Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. júní 2026 10:55 Alma Ýr formaður ÖBÍ réttindasamtaka. Vísir/Ívar Fannar Öryrkjabandalag Íslands, ÖBÍ, hefur höfðað mál gegn Reykjavíkurborg vegna vanfjármögnunar NPA-samninga. Málið verður þingfest í dag. „
ÖBÍ krefst viðurkenningar á því að borgin hafi með samþykkt áætlunarinnar brotið gegn lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir,“ segir í fréttatilkynningu frá ÖBÍ. Málið var höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og með því vilja samtökin fá úr því skorið hvort sveitarfélögum sé heimilt að samþykkja umsóknir um lögbundna þjónustu en fjármagna síðan ekki þjónustuna svo samþykktir umsækjendur lendi á löngum biðlistum. Tugir bíða Borgarstjórn samþykkti fjárhagsáætlun þann 2. desember 2025. Í tilkynningunni segir að þegar sú áætlun var samþykkt hafi legið fyrir að minnsta kosti 42 samþykktar umsóknir um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) sem biðu fjármögnunar þjónustunnar. „Að baki hverri umsókn er fatlaður einstaklingur sem borgin hefur þegar staðfest að eigi rétt á aðstoðinni en fær hana ekki. Fjárhagsáætlunin gerir ekki ráð fyrir neinni fjölgun NPA-samninga á árinu 2026 og borgin hefur sjálf staðfest að umsóknirnar verði ekki fjármagnaðar á árinu.“ Í nóvember 2025 lögfesti Alþingi samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks en með honum á að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli fötlunar. ÖBÍ segir þjónustuform NPA lögfesta útfærslu á rétti fatlaðs fólks til sjálfstæðs lífs samkvæmt 19. grein samningsins. „Reykjavíkurborg hefur sjálf viðurkennt rétt þessara 42 einstaklinga til aðstoðar en kýs samt að fjármagna hana ekki. Réttindi fatlaðs fólks eru ekki valkvæður útgjaldaliður sem má fresta milli ára, þau eru lögbundin og borginni ber að standa við þau,“ er haft eftir Ölmu Ýr Ingólfsdóttur, formanni ÖBÍ réttindasamtakanna, í tilkynningunni.
Dómsmál Málefni fatlaðs fólks Borgarstjórn Reykjavík Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira