„Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu“ Bjarki Sigurðsson skrifar 4. júní 2026 11:48 Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir það virðingarleysi við kjósendur að Vilhjálmur sé á sama tíma bæjarstjóri og þingmaður. Vísir/Vilhelm Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir á rétt á tæpum tíu milljónum króna í biðlaun eftir að hún sagði af sér þingmennsku. Hún segir óvíst um næstu skref hjá sér en að hún muni ekki taka við neinum greiðslum sem ekki fara eftir þeim reglum sem gilda um biðlaun. Stjórnsýslufræðingur segir Áslaugu á gráu svæði. Þá sýni Vilhjálmur Árnason kjósendum virðingarleysi með því að sitja á þingi og gegna stöðu bæjarstjóra á sama tíma.
Áslaug hafði setið á þingi í tíu ár þegar hún sagði af sér í gær. Síðasta tæpa ár hafði hún þó verið í námsleyfi og varamaður setið hennar í stað. Á meðan hún var í leyfi þáði hún þó 3,1 milljón í laun á meðan þingið var í sumarleyfi. Samkvæmt reglum taka allir þjóðkjörnir þingmenn sæti aftur á þingi yfir sumartímann á meðan þingið er í fríi. Það gildir um alla þingmenn, hvort sem þeir eru í fæðingarorlofi, veikindaleyfi eða námsleyfi að sögn Áslaugar. Reglur um biðlaun þingmanna kveða á um að alþingismaður sem hefur setið á Alþingi tvö kjörtímabil eða lengur eigi rétt á biðgreiðslum í sex mánuði. Áslaug uppfyllir það skilyrði og hefði gert það þó að hún hefði ekki tekið sæti á þingi í gær í skamman tíma áður en hún tilkynnti afsögn sína. Taki hún við starfi á næstu sex mánuðum falla biðlaun niður ef launin er starfinu fylgja eru jafnhá eða hærri, en ella skerðast biðlaunin sem laununum nemur. Námsleyfið á gráu svæði Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir engar sérstakar reglur um námsleyfi þingmanna. „Hún fer strangt til tekið ekki í námsleyfi frá Alþingi heldur tekur hún inn varamann og gefur þessa skýringu. Við skulum segja að það sé á gráu svæði að fara að sinna einhverju öðru þegar þú ert kjörinn fulltrúi,“ segir Haukur. Virðingarleysi við kjósendur Afsögn annars þingmanns Sjálfstæðisflokksins er yfirvofandi. Vilhjálmur Árnason er tekinn við sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar en hann kveðst ætla að gera upp ónefnd mál áður en hann segir af sér. Á meðan gegnir hann báðum störfum og þiggur laun fyrir bæði. „Röksemdin fyrir því að þingmenn eru með um það bil fimmtíu prósent hærri laun en meðallaun í landinu er sú að þingmenn geti sinnt þessu sem aðalvinnu og þurfi í engum tilvikum að vera með aukavinnu. Það er ansi mikið virðingarleysi við kjósendur að líta á bæjarstjórastarfið í Reykjanesbæ eða þingmannsstarfið sem einhvers konar aukavinnu,“ segir Haukur. Sjálfstæðismenn áberandi Þetta sé alls ekki fyrsta dæmið. Davíð Oddsson var á sama tíma forsætisráðherra og borgarstjóri í tvo mánuði. Þá hafa tveir núverandi þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Rósa Guðbjartsdóttir og Bryndís Haraldsdóttir, verið bæði sveitarstjórnarfulltrúar og þingmenn á sama tíma. Rósa í Hafnarfirði og Bryndís í Mosfellsbæ. „Þetta hefur loðað svolítið við Sjálfstæðisflokkinn. Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu,“ segir Haukur.
Stjórnsýsla Sveitarstjórnarmál Reykjanesbær Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Rekstur hins opinbera Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira