Dró sér fé sem gjaldkeri framboðsins Sigurgeir Þorkelsson skrifar 4. júní 2026 21:40 Sævar Þór var bæði sitjandi bæjarfulltrúi og gjaldkeri framboðsins þegar málið kom upp. Vísir/Einar Rödd unga fólksins hefur upplýst um fjárdráttarmál innan flokksins sem upp kom snemma á síðasta ári. Grunur hafi þá vaknað um að Sævar Þór Birgisson, þáverandi bæjarfulltrúi og gjaldkeri flokksins, hafi dregið til sín töluverða fjármuni og málið kært til lögreglu. Rödd unga fólksins hefur átt fulltrúa í sveitarstjórn Grindavíkur síðastliðin tvö kjörtímabil. „
Rannsókn málsins er nú lokið og getum við því fyrst tjáð okkur um málið núna,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu flokksins. Sævar skipaði annað sæti listans í kosningunum árin 2018 og 2022 og var samkvæmt tilkynningunni bæði gjaldkeri framboðsins og sitjandi bæjarfulltrúi þegar málið kom upp. Í tilkynningunni segir að Sævar hafi verið samvinnufús við rannsókn málsins. Málinu hafi verið lokið með sátt og fjármunirnir þegar verið greiddir til baka. Tjá sig ekki frekar um málið Sævar Þór vildi ekki tjá sig nánar um málið þegar fréttastofa náði tali af honum. Inga Fanney Rúnarsdóttir var formaður framboðsins þegar málið kom upp. Inga vildi ekki tjá sig frekar um málið og bar fyrir sig að náin tengsl frambjóðenda geri málið flókið og erfitt. Rödd unga fólksins á ekki lengur fulltrúa í sveitarstjórn en hefur ákveðið að gefa 5,8 milljónir króna til að styðja við enduruppbyggingu á skólalóð grunnskólans við Ásbraut. Framboðið hafði tilkynnt þann áttunda febrúar síðastliðinn að það myndi ekki bjóða fram lista í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum. Rödd unga fólksins stefnir að því að bjóða fram á ný í kosningum að fjórum árum liðnum og veita þar nýjum hópi ungs fólks rödd í bæjarstjórn.
Grindavík Efnahagsbrot Tengdar fréttir Ungir fasteignaeigendur tapi öllu við uppkaup ríkisins Ungir fasteignaeigendur sem keyptu nýverið sína fyrstu eign í Grindavík tapa margir hverjir öllu sínu eigin fé og koma út í milljóna tapi við uppkaup ríkisins að sögn Grindvíkings. Hann vill að ríkisstjórnin geri meira til að grípa unga kaupendur. 21. febrúar 2024 20:34 Rödd unga fólksins býður fram í Grindavík Rödd unga fólksins mun bjóða sig fram til sveitarstjórnarkosninga í vor í Grindavíkurbæ. Um er að ræða nýtt framboð í bænum. 27. apríl 2018 11:11 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Ungir fasteignaeigendur tapi öllu við uppkaup ríkisins Ungir fasteignaeigendur sem keyptu nýverið sína fyrstu eign í Grindavík tapa margir hverjir öllu sínu eigin fé og koma út í milljóna tapi við uppkaup ríkisins að sögn Grindvíkings. Hann vill að ríkisstjórnin geri meira til að grípa unga kaupendur. 21. febrúar 2024 20:34
Rödd unga fólksins býður fram í Grindavík Rödd unga fólksins mun bjóða sig fram til sveitarstjórnarkosninga í vor í Grindavíkurbæ. Um er að ræða nýtt framboð í bænum. 27. apríl 2018 11:11