Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 6. júní 2026 12:28 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sagði fyrir tveimur árum að lína flokksins væri skýr. Ekki ætti að vista börn í lokuðu búsetuúrræði. Vísir/Anton Brink Framkvæmdastjóri Barnaheilla segir það mikil mistök verði frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð á landamærum að lögum. Engar breytingar hafi orðið á stöðu barna við meðferð málsins í nefnd. Tvö ár eru síðan formaður Viðreisnar sagði að flokkurinn myndi aldrei setja börn í lokuð búsetuúrræði. „
Ég hef sagt: Ég er tilbúin í umræður um móttökumiðstöðvar. Ég er til í hana. Línan sem við í Viðreisn drögum í sandinn er að við setjum ekki börn í lokað búsetuúrræði. Þar er línan sem ég dreg í sandinn.“ Þetta sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar í pontu Alþingis þann 4 mars árið 2024. Þegar hún var í stjórnarandstöðu og til umræðu voru útlendingamál þáverandi ríkisstjórnar. Núna, tveimur árum seinna, hefur Alþingi til meðferðar frumvarp dómsmálaráðherra, sem kemur úr röðum Viðreisnar, og fjallar um brottfararstöð fyrir útlendinga. Málið snúist ekki um leiksvæði Vistun barna í úrræðinu hefur verið hvað mest til umræðu þegar kemur að málinu. Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, segir þær breytingar sem allsherjar- og menntamálanefnd hefur gert á frumvarpinu til að mæta óánægjuröddum, ekki nægjanlegar. „Þau horfa algjörlega fram hjá stóra atriðinu í nefndarálitinu sem er frelsissvipting barna en einblína í staðinn á aðstöðuna og horfa þannig fram hjá öllum þeim sem hafa lagt álit til nefndarinnar. Þetta snýst ekki um það hvort það sé leiksvæði í fangelsinu. Þetta snýst um að það eigi ekki að vera fangelsi.“ Tótla er framkvæmdastjóri Barnaheilla.vísir/egill Ekki bara skoðun Barnaheilla Börn ættu aldrei að vera frelsissvipt nema sem allra síðasta úrræði og þá til að tryggja öryggi þeirra eða annarra. „Þetta er ekkert bara skoðun Barnaheilla heldur skylda sem Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna setur á stjórnvöld. Í þessu máli þá fer svo fjarri að dómsmálaráðherra eða Alþingi hafi sýnt fram á einhverja nauðsyn þess að grípa til svona harðneskjulegs úrræði fyrir þessa allra viðkvæmustu hópa.“ Tótla segir það enga tilviljun að svo mörg mannréttindasamtök setji sig á móti málinu. „Það má alveg spyrja sig: Til hvers eru mannréttindastofnanir eða umboðsmaður barna? Af hverju erum við hluti af barnasáttmálanum ef við ætlum ekki að taka tillit til eins né neins sem hann segir.“ Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, fer fyrir málinu. Hún kemur úr röðum Viðreisnar.vísir/vilhelm Réttindi barna fái ekki sjálfstæða athygli Allt of oft sé litið á börn sem fylgihluti foreldra sinna. „Réttindi barna fá ekki sjálfstæða athygli. Það er eitthvað sem barnaréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur t.d. ítrekað sagt, að það eigi ekki að setja börn í varðhald vegna ástæðna sem tengjast stöðu foreldra þeirra, eða hvernig foreldrar þeirra hafa hagað sínu samstarfi við ríkið.“
Brottfararstöð fyrir útlendinga Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Viðreisn Börn og uppeldi Tengdar fréttir Mótmæla fyrirhugaðri brottfararstöð Samtökin No Borders kalla til mótmælafundar á Austurvelli klukkan þrjú í dag gegn frumvarpi dómsmálaráðherra um fyrirhugaða brottfararstöð sem fer í þriðju umræðu á Alþingi á morgun, föstudag. 4. júní 2026 13:50 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira
Mótmæla fyrirhugaðri brottfararstöð Samtökin No Borders kalla til mótmælafundar á Austurvelli klukkan þrjú í dag gegn frumvarpi dómsmálaráðherra um fyrirhugaða brottfararstöð sem fer í þriðju umræðu á Alþingi á morgun, föstudag. 4. júní 2026 13:50