Bönnum Rússa en ekki Ísraela Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar 9. júní 2026 07:32 Allir sem bannaðir eru Utanríkisráðherra og dómsmálaráðherra Íslands hafa ákveðið að vera í hópi 11 ríkja sem vilja takmarka vegabréfsáritanir til Rússa. Það er gott enda hafa Rússar gerst sekir um brot gegn alþjóðlegum mannúðarlögum með því að virða ekki landamæri og ráðist með offorsi inn í Úkraínu. Þar hafa þeir framið glæpi gegn mannkyni með því að stela úkraínskum börnum, drepa saklausa borgara og sprengja upp borgaraleg mannvirki með enga hernaðarlega starfsemi, né -tilgang. Ríkislögreglustjóri vill sömuleiðis banna komu Hells Angels til landsins og hefur ítrekað stöðvað erlenda meðlimi samtakanna á landamærum Íslands og vísað úr landi á grundvelli almannaöryggis. Ísland samræmir sig einnig við ESB-viðurlög og bannar hingað komu hryðjuverkamanna. Að auki eru þeim sem ekki hafa tilskilin leyfi, meinaður aðgangur að landinu, og þeim sem gerst hafa sekir um alvarlega glæpi og verið sviptir alþjóðlegri vernd, er hiklaust vísað öfugum úr landi á stundinni. Flóttafólki er vísað miskunarlaust á brott á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar og fullorðnum, öldruðum, börnum, barnshafandi, fötluðum og sjúkum er skóflað til baka til þess lands sem þeir höfðu millilent á. Engin miskunn þar sýnd. En Ísraelum? Allar götur síðan Ísraelsríki var stofnað árið 1948 hefur samband þess og framkoma við nágranna sína verið með endemum. Ísraelar hafa allt frá hinu illfræga Nakba til dagsins í dag hrakið hundruðir þúsunda palestínumanna burt af landi sínu þar til í dag er lítið sem ekkert eftir. Þeir hafa kerfisbundið fækkað íbúunum með því að bæði drepa þá og hrekja þá burt úr heimahögum þeirra og nú er svo komið að einungis 2 milljónir manna sem eftir eru innilokaðir í Gaza - stærstu og hræðilegustu fangabúðum sem heimurinn hefur séð. Ísrael hefur með framferði sínu brotið öll alþjóðleg mannúðarlög sem hugsast getur, skrifuð sem óskrifuð, og fyrir vikið fengið á sig kæru frá Alþjóðadómstólnum. Við þessu framferði Ísraels hefur mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna; UNHRC brugðist og gefið út yfirlýsingu: Í henni segir að skýr merki þess að Ísraelar séu að fremja glæpi gegn mannkyni. Því er mælst til þess að Alþjóðadómstóllinn bæti við ásökun um þjóðarmorð í handtökuskipun sinni á hendur Benjamin Netanyao forsætisráðherra Ísraels og Yoavl Gallant fyrrum varnarmálaráðherra hans. Að auki hefur Amnesty International einnig gefið út eina þá svörtustu skýrslu í sinni tíð sem lýsir þeim hryllingi sem nú gengur yfir Palestínumenn af hálfu ísraela. Sem dæmi um hryllinginn hefur hinn bandaríski ogi gyðingaættaði skurðlæknir, Mark Perlmutter, vitnað eftir þjónustu sína á Gaza og lýst því sem mætti honum ítrekað við skurðarborðið. Hann segir að svo virðist vera sem leyniskyttur Ísraela geri það sér til gamans að gera börn að skotmörkum sínum og skjóta barn skotum; annarsvegar í höfuðið, hins vegar í bringuna. Vitni hafi sagt þetta hafa orðið að leik hjá þeim því dagamunur sé á hvort tugur barna komi inn með skotsár í höfði eða skotsár á bringu, og þannig koll af kolli, dag eftir dag. Börn allt niður í smábörn eru skotin að gamni af ,,best” þjálfuðu og hittnustu leyniskyttum í heiminum. Ísraelar eru í það heila sakaðir um eftirfarandi atriði; Þjóðarmorð Vistmorð (ecocide) með því að dreifa eiturefnum á uppskerur í Palestínu og Líbanon og eyðileggja þannig allt vistvænt líf um ókomin ár. Eiturefnin eru; glyphosate, oxyfluorfen og diuron Landrán í Gaza, Vesturbakkanum og Líbanon. Aðskilnaðarstefna. Morð á 300 blaðamönnum síðan 7. Október, 2023. Að halda 4.622 palestínum án dóms né laga gíslingu í ísraelskum fangelsum, þar af milli 500-700 börn undir 16 ára, heilbrigðisstarfsfólki og læknum. Kerfisbundin eyðilegging á heilbrigðiskerfi Gaza og öllum 36 spítölum landsins. Af þeim eru 11 enn starfandi við illan leik eða að hluta til. Eyðilegging allra háskóla í Gaza. Gereyðilegging á stærsta hluta borgaralegra mannvirkja með þungavopnum. Kerfisbundnar pyntingar og nauðganir á gíslum, þar á meðal hjálparstarfsmönnum. Dauðrefsingar með hengingu sem einvörðungu ná til kynþáttar palestínumanna en engra annara. Nota ólögleg efnavopn gegn almennum borgurum með hvítum fosfór. Að nota svelti og hungur sem vopn. Eyðilegging vatnsbóla. Halda aftur hjálpargögnum og nota þau þannig sem vopn gegn almennum borgurum. Óhóflegt ofbeldi gagnvart almennum borgurum. Hefta allan aðgang að Gaza um land eða sjó. Hindra mannúðaraðstoð. Hindra fréttamiðlum allan aðgang að átakasvæðum. …. Og eftir allt þetta er Ísraelsmönnum á þriðja ári þjóðarmorðsins enn leyft að ganga frjálsum um stræti Reykjavíkurborgar. Öllum 634.500 manns í herliði ísraela er velkomið að leika hér lausum hala með okkur 390.000 manns sem búa á Íslandi. Einn þeirra hefur meira að segja íslenskt ríkisfang. Hann mun líklegast vilja sækja Ísland heim. Kannski mun einhver þeirra sitja við hlið barnsins þíns í strætó í sumar? Allavega eru líkurnar ansi miklar því tvö Ísraelsk fyrirtæki eru með skipulagðar ferðir til Íslands í sumar. Þau eru; Lebor Tours og AACI Travel. Íslensk stjórnvöld hafa nú þegar stutt við kæru Suður-Afríku hjá Alþjóðadómstólnum gegn Ísraelska ríkinu og því liggur beinast við að hefja refsiaðgerðir gegn þeim með því að stöðva öll viðskiptabönd og allt diplómatískt samstarf og útiloka vegabréfsáritanir til stríðsglæpamanna að fullu. Þannig hefjum við raunverulegar refsiaðgerðir án fagurgala, heldur með alvöru aðgerðum. Lagaheimild er þarna, spurningin er bara um viljann. Höfundur er meðlimur í Félagi Ísland-Palestína og BDS Ísland samtökunum. Heimildir: https://www.amnesty.org/en/location/middle-east-and-north-africa/middle-east/israel-and-the-occupied-palestinian-territory/report-israel-and-the-occupied-palestinian-territory/ https://bdsmovement.net/resources/no-room-genocide-organizing-toolkit https://www.un.org/unispal/document/special-rapporteur-report-gaza-genocide-a-collective-crime-20oct25/ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun