„Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Lovísa Arnardóttir skrifar 9. júní 2026 08:06 Grímur segir erfið sjónarmið takast á í málinu. Það þurfi að uppfylla skyldur Schengen-samstarfsins en einnig að gæta mannúðar. Vísir/Vilhelm Þriðja umræða fer fram á Alþingi í dag um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og meðlimur í allsherjar- og menntamálanefnd, segir brottfararstöðina eiga að tryggja mannúð í ömurlegum aðstæðum. Gert sé ráð fyrir því að fjölskyldur verði vistaðar á sérsvæði í úrræðinu en hann segist þó vona að vægari úrræði verði notuð áður. Gert sé ráð fyrir því í lögunum.
Grímur var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni um málið og útskýrði til hvers úrræðið væri og fyrir hvern en úrræðið er hugsað fyrir fólk sem hefur fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd og á að yfirgefa landið. Grímur er framsögumaður nefndarinnar. Grímur segir að eins og kerfið er núna hafi lögregla haft heimild til að krefjast gæsluvarðhalds yfir fólki sem á að flytja úr landi og fólk er þannig vistað í fangelsi áður en það fer. „Þetta finnst okkur, og raunverulega ráðherranum líka, að við séum að vista fólk sem ekki hefur brotið af sér með refsiverðum hætti í fangelsi,“ segir Grímur og að brottfararstöðin eigi að taka við þessu hlutverki. Gert er ráð fyrir því að allar ákvarðanir um að vista fólk í brottfararstöðinni verði bornar undir dómara, eins og þegar krafist er gæsluvarðhalds. Grímur segir það frelsissviptingu að fara í brottfararúrræði og það óski sér enginn þess. Það eigi ekki að beita henni í lengstu lög og í umræðu og meðferð þessa máls hafi staða barna verið til umræðu og það sé eðlilegt. Fjölmörg samtök hafa mótmælt vistun barna í brottfararstöðinni og benda á að samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eigi aldrei að frelsissvipta börn. Barnasáttmálinn hefur verið lögfestur á Íslandi. Grímur segir að nefndin hafi tekið til greina sjónarmið mannúðar og skyldur Íslands gagnvart Schengen-samstarfinu. Þegar einstaklingur eigi að fara úr landi verði að vera eitthvað úrræði til að vista hann í, annað en fangelsi. Vegast á erfið sjónarmið Grímur segir að börn verði ekki aðskilin frá fjölskyldum sínum í brottfararstöðinni og að mati nefndarinnar er það verra úrræði, að aðskilja börn frá foreldrum sínum eða fjölskyldu. „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið og ég hef fullan skilning á því að samtök sem bera hag barna fyrir brjósti hafi þessa skoðun að það eigi ekki að vista börn í varðhaldi,“ segir hann og að varðandi börn hafi nefndin reynt að sníða það að þeim. Nú sé búið að breyta frumvarpinu þannig að fjölskyldur sem á að vista í úrræðinu fái sérstakt svæði fyrir sig, sérstakt svefnsvæði, eldunarsvæði, salernisaðstöðu, útisvæði og leiksvæði. Grímur segir að fólk eigi aðeins að vera vistað í brottfararstöðinni í nokkra daga. Hann segir að við smíðun frumvarpsins hafi verið horft til Noregs. Það séu fá tilvik þar og hér þar sem þörf er á að vista fjölskyldur. Á Íslandi hafi það gerst um sex sinnum og í þeim tilvikum hafi börn verið færð í fóstur og foreldrar þeirra vistaðir í gæsluvarðhaldi. „Þetta er úrræði sem hverfur við að það verður til brottfararstöð. En hins vegar ítreka ég það að það er mikilvægt að það séu notuð öllu vægari úrræði áður en það kemur að því að nota þetta úrræði, og það er skrifað inn í lögin,“ segir Grímur og að í útlendingalögum séu tilgreind önnur úrræði. Eigi að nýta önnur úrræði áður Spurður hvort önnur úrræði verði styrkt á sama tíma, þannig að hægt verði að nýta önnur úrræði áður en fólk verður vistað í brottfararstöð, segir Grímur að nefndin leggi til að ráðherra skili Alþingi skýrslu tólf mánuðum eftir að brottfararstöðin tekur til starfa þar sem farið verði yfir fyrstu tólf mánuðina og hversu oft, til dæmis, fjölskyldur og börn hafi verið vistuð í úrræðinu. Hann segist vona að á þeim tíma verði sú tala lág eða jafnvel núll því að önnur vægari úrræði hafi frekar verið notuð í þeirra tilfellum. Grímur segist sjá fyrir sér að brottfararstöðin hjálpi til við að gera allt ferlið auðveldara en að það eigi ekkert endilega að vera auðvelt að vinna svona mál. Almennur stuðningur í þinginu „Þetta eru mjög viðkvæm mál og það þarf að fara út í hvert einasta horn og að þau séu vel gerð, og það er grundvallaratriði,“ segir hann og að vera með brottfararstöð sé hluti af því að svona mál séu vel unnin og að einstaklingurinn búi við eins mikla mannúð og hægt er í ömurlegum aðstæðum. Grímur telur að þegar brottfararstöðin tekur til starfa verði öll úrræði hér sem gerð er krafa um samkvæmt Schengen-samstarfinu. Hann segir málið hafa almennan stuðning á þinginu og frumvarpið verði líklega samþykkt fyrir sumarfrí. Alþingi hefst klukkan 12.30 í dag og er brottfararstöðin fyrsta mál á dagskrá. Hægt er að hlusta á viðtalið við Grím að ofan.
Brottfararstöð fyrir útlendinga Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Flóttafólk á Íslandi Hælisleitendur Innflytjendamál Börn og uppeldi Mannréttindi Réttindi barna Bítið Mest lesið Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Enn besta lausnin að kaupa Grænland Erlent Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Mætti ekki í útför föður síns Erlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Fleiri fréttir Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent