Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Agnar Már Másson skrifar 11. júní 2026 07:00 Truflananna varð meðal annars vart á Íslandi en mest hefur truflunin verið nær víglínunni í Úkraínu. Þær hafa verið raknar til rússneskra gervitungla sem eiga að skynja eldflaugar. Getty Rússneskt gervitunglanet hefur ítrekað á síðustu árum valdið truflunum á GPS-staðsetningabúnaði á stóru svæði sem nær yfir alla Evrópu, meðal annars Ísland. Ekki liggur fyrir hvort þetta sé með vilja gert en vekur engu að síður áhyggjur af því hvort erlent ríki geti truflað fjarskiptakerfi í heimsálfunni.
Þetta kemur fram í nýrri rannsókn úr háskólanum í Austin, höfuðborg Texas í Bandaríkjunum, þar sem fjallað er um hið minnsta 75 atvik frá 2019 þar sem vart hefur orðið við stuttar GPS- og GNSS-truflanir í staðsetningarbúnaði sem urðu á nánast sama tíma á stóru svæði í kringum Evrópu, þar á meðal á Íslandi. Í raun hefur áhrifasvæðið náð frá Grænlandi til Tyrklands. Átta slíkar truflanir urðu árið 2019, sautján árið 2020, fimm árið 2021, sjö árið 2022, fimmtán árið 2023, níu árið 2024, tólf árið 2025 og tvær það sem af er 2026. Hitakort sem sýnir hversu mikið GPS-merkið féll á hverri mælistöð á Evrópu yfir Atlantshafssvæðið á meðan á truflunartilviki stóð. Litakvarðinn sýnir að mestar voru truflanirnar yfir Eystrasaltssvæðinu. Aftur á móti hafa truflanirnar ekki varað í langan tíma, allar er styttri en tíu sekúndur en stundum hafa þær orðið tvisvar á dag að því er fram kemur í rannsókninni. Þær hafa þá ekki valdið alvarlegum röskunum. Slíkar truflanir geta valdið því að staðsetningartæki um borð í skipum og flugvélum yfir Evrópu og Atlantshafi sýni allt aðra staðsetningu en raun ber vitni. Ef flugvélar verða fyrir GNSS-truflun gætu þær þurft að treysta á annars konar leiðsögu. Rekið til rússneskra gervitungla GNSS-kerfi (Global Navigation Satellite System) byggja á merkjum frá gervitunglum sem notuð eru til þess að ákvarða staðsetningu flugvélarinnar. Slík merki eru gjarnan trufluð með því að senda út merki í sömu eða svipaðri tíðni en af meiri krafti. Í ofureinföldu máli veldur þetta því að tlkið „heyrir“ ekki lengur í gervitunglinu fyrir hávaðanum í hinni tíðninni. Þessu má líkja við það þegar maður á í samræðu við einhvern á meðan þriðji maður stendur gólandi við hliðina á manni og yfirgnæfir þannig samtalið. Vísindamennirnir hafa reiknað út að þessar 75 truflanir megi rekja til nets rússneskra gervitungla yfir norðurhveli jarðar er nefnist Edinaja Kosmicheskaya Sistema (EKS) Gervitunglanetið er hannað sem eins konar loftvarnarkerfi til þess að fylgjast með hugsanlegum loftskeytum sem kynnu að vera skotið í átt að Rússlandi – ekki ósvipað hugmyndum Donalds Trump Bandaríkjaforseta um hina svokölluðu gullhvelfingu. Rannsakendurnir náðu sérstaklega að rekja fjölda þessara truflana til eins tiltekins gervitungls er nefnist Kosmos 2546, en því var skotið upp 2020 og getur því ekki skýrt truflanir sem urðu fyrir þann tíma. Þarf ekki að vera viljandi Þetta eru meðal fyrstu dæma um GPS-truflanir úr geimnum en gervitungl geta náð yfir talsvert breiðara svæði heldur en sendar á jörðu niðri. Það er þó ekki skýrt hvort þessar truflanir séu viljaverk af hálfu Rússa, en þó hefur New York Times eftir heimildum að Evrópusambandið hafi rannsakað truflanirnar en að niðurstöðurnar séu trúnaðarmál. Auk þess vísar miðillinn í heimildir í Bandaríkjaher um að herinn hafi kannað málið. Vísindamennirnir ganga þó ekki svo langt að segja að þetta sé með vilja gert. Engu að síður veldur þetta áhyggjum um að hægt sé að beita gervitunglum til að valda truflunum til lengri tíma. „Ef þetta er gert viljandi bendir það til stigmögnunar í GNSS-truflun,“ skrifa vísindamennirnir. Rússar hafa ekki tjáð sig um málið en ef þetta er með vilja gert er enn óskýrt hvað Rússum kynni að ganga til. Flestar þessara truflana hafi orðið um hábjartan, virkan dag, sem rannsakendurnir telja benda til þess að þetta sé handvirkt. Handahófskenndar bilanir myndu dreifast jafnara yfir vikuna. Þegar flug Kristrúnar var truflað Truflun í staðsetningarbúnaði er orðin æ algengari eftir að Rússar hófu allsherjarinnrás í Úkraínu árið 2022, bæði í átakaríkjunum en einnig í nágrannalöndum við Eystrasaltið. Þær truflanir koma þó flestar ekki úr geimnum heldur er þar um að ræða truflanir frá jörðu niðri eða frá loftförum á svæðinu. Til að mynda greindi Rúv frá því í vor að þegar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sat í flugi í átt að Póllandi hafi GPS-merki flugvélarinnar verið truflað og sýnt flugvélina á allt öðrum stað. Var ráðherrann þá um borð í TF-SIF, flugvél íslensku landhelgisgæslunnar, í aðflugi að flugvellinum Rseszów en vopnaflutningar til Úkraínu fara að miklu leyti í gegnum þann flugvöll. Þar var aftur á móti líklegast ekki um truflun frá gervihnöttum. Isavia greindi þó frá því árið 2024 að veruleg aukning hefði verið í GNSS-truflunum í nágrenni við Ísland og Grænland, en ekki á svæðinu sjálfu. Isavia ANS skráði yfir þúsund tilfelli árið 2023 þar sem vísbendingar voru um GNSS-truflun hjá flugvélum sem áttu ekki viðkomu á Íslandi. GPS- og GNSS-truflanir hafa þá áhrif á meira en bara staðsetningarbúnað í farartækjum. Í júní í fyrra komu upp villur í landrismælingum vegna GPS-truflana en þær truflanir reyndust hafa eðlilegar skýringar þar sem nýtt GPS-tungl hafði verið sent á sporbraut auk þess sem gögn frá nokkrum erlendum stöðvum höfðu ekki skilað sér, að sögn tilkynningar Veðurstofunnar frá júní 2025.
Öryggis- og varnarmál Flug Samgöngumál Rússland Vladimír Pútín Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Sjá meira