„Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Agnar Már Másson skrifar 12. júní 2026 15:56 Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, kíkti á mótmæli Grindvíkinga í dag. Grindavík og Hveragerði eru bæði á svæðum á efsta hættustigi í áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Vísir/Vilhelm Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að ríkisstjórnin verði að koma til móts við Grindvíkinga sem eru margir ósáttir við nýja hollvinasamninga sem fasteignafélagið Þórkatla kynnti á dögunum. Þingmaður Samfylkingarinnar segir að leita þurfi skýringa á því hvers vegna félagið vilji takmarka dvöl Grindvíkinga í bænum við tólf nætur í senn.
Um þrjátíu Grindvíkingar auk nokkurra þingmanna Suðurkjördæmis mættu á mótmæli á Austurvelli í hádeginu sem boðuð höfðu verið með skömmum fyrirvara í gærkvöldi. Mótmælin sneru að breytingum hjá ríkisrekna fasteignafélaginu Þórkötlu, sem keypti árið 2024 þorra húseigna í Grindavík í gegnum svokallaða hollvinasamninga, sem áttu að gera Grindvíkingum kleift að flytja tímabundið úr bæjarfélaginu en enn geta dvalið í húsunum. Margir íbúar í Grindavík eru ósáttir við nýtt fyrirkomulag hollvinasamninga sem gerir þeim ekki kleift að dvelja lengur í bænum en 12 nætur í senn. Þeir verða einnig að boða komu sína með fyrirvara vilji þeir dvelja í bænum.Vísir/Vilhelm Á dögunum voru gefnir út uppfærðir hollvinasamningar og gistiviðaukar sem segja að samningsaðilar geti ekki gist fleiri en tólf nætur á mánuði í eignunum. Ákvörðunin vakti töluverða óánægju meðal íbúa. Enn fremur kvarta Grindvíkingar undan seinagangi vegna endurkaupaáætlunar. „Það hlýtur að vera meginmarkmið okkar að Grindavík byggist upp aftur,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við fréttastofu, en hún var dómsmálaráðherra í síðustu ríkisstjórn 2024 þegar rýma þurfti Grindavík og fasteignafélagið Þórkatla var stofnað. Þó að Guðrún segi að stjórnvöld þurfi vissulega að byggja á því sem vísindamenn segja telur hún engu að síður Grindavík vera örugga í dag. „Það er gott að vera í Grindavík. Ég er þar töluvert mikið og þar blómstrar atvinnulífið, en atvinnulífið verður að hafa fólk til staðar.“ Grindvíkingar ungir sem aldnir mættu á Austurvöll í hádeginu.Vísir/Vilhelm Hún telur að ríkisstjórnin endurskoði þær reglur sem settar hafa verið enda vilji stór hópur fólks flytja aftur í bæinn. „Það kom nú áhættumat um daginn frá Veðurstofunni þar sem það var tekið fram að varhugaverðustu staðirnir væru Grindavík og svo Hveragerði. Ég bý nú í Hveragerði; af hverju má ég vera þar en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Grindavík og Hveragerði eru á svæðum á efsta hættustigi í áhættumati Veðurstofu Íslands frá því í apríl. „Kröfurnar eru bara að það sé hlustað á okkur og okkur leyft að gista í húsunum,“ útskýrir Dagmar Valsdóttir, einn skipuleggjenda mótmælanna, í samtali við fréttastofu. Páll Valur Björnsson, Grindvíkingur og fyrrverandi þingmaður Bjartrar framtíðar, mætti einnig á mótmælin. „Fólk er að biðja um að fá að leigja húsin og búa þarna, og það á að vera skólahald þarna, bæjarstjórnin er búin að ákveða það. Og það eru margir sem hafa ákveðið að fara heim ef það verður einhver lausn í húsnæðismálum,“ sagði Páll. Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingmaður. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, ræddi einnig við mótmælendur. „Ég er auðvitað bara fólk sem þykir mjög vænt um bæinn sinn og vill vera þar. Þetta er auðvitað erfið staða sem er uppi. Ég skil alveg hvað þau eru að segja og ég heyri í þeim og við munum auðvitað leita skýringa á því hvers vegna hlutirnir eru með þessum hætti, það er að segja þetta tólf nátta takmark,“ sagði Ása Berglind.
Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Húsnæðismál Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Sjá meira