250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Freyja Þórisdóttir skrifar 14. júní 2026 07:40 Samkvæmt tilkynningunni er ekki útlit fyrir nein eldsumbrot í Bárðarbungu á næstunni. Mynd/Andri Jóhannesson Jarðskjálftahrinu sem hófst í gærkvöldi upp úr klukkan 22:00 í kjölfar skjálfta, sem mældist um 4,8 að stærð, fylgir enginn gosórói að svo stöddu. Ríflega tvö hundruð og fimmtíu skjálftar voru mældir frá klukkan 22:00 og til klukkan 02:00 en þar af voru ellefu skjálftar yfir þremur að stærð.
Tveir mældust í Bárðarbungu upp úr klukkan átta í gærkvöldi að stærð 2,6 og 4,8. Skjálftar af þessari stærð sjást nokkuð reglulega í Bárðarbungu, að sögn Veðurstofunnar. En sá seinni, sem varð klukkan 20:14, hrundi af stað ákafri jarðskjálftahrinu er fram kemur í tilkynningum frá náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands. Þar segir einnig að hrinan sé ein sú kröftugasta á svæðinu síðan síðustu eldsbrot urðu í Bárðarbungu en Bárðarbunga er megineldstöð sem liggur undir Vatnajökli og hafa minnst 26 eldgos orðið þar á síðustu ellefu öldum, samkvæmt hinni íslensku eldfjallavefsjá. Síðast var þar sprungugos í Holuhrauni norðan Vatnajökuls sem stóð yfir frá ágúst 2014 til febrúar 2015. Virknin svipar, að því er segir í tilkynningunni, til jarðskjálftahrinu sem varð í öskjunni í janúar á síðasta ári en svo virðist sem núverandi virkni sé kröftugri. Fluglitakóði fyrir Bárðarbungu hefur verið færður á gulan en það er gert þegar eldstöðvar sýna merki um virkni sem er metin umfram venjulegt ástand.
Eldgos og jarðhræringar Bárðarbunga Tengdar fréttir Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Tveir jarðskjálftar mældust í Bárðarbungu upp úr klukkan átta í kvöld að stærð 2,6 og 4,8. Skjálftar af þessari stærð sjást nokkuð reglulega í Bárðarbungu, að sögn Veðurstofunnar. Fyrri skjálftinn mældist klukkan 20:10 og sá seinni klukkan 20:14. 13. júní 2026 21:36 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Sjá meira
Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Tveir jarðskjálftar mældust í Bárðarbungu upp úr klukkan átta í kvöld að stærð 2,6 og 4,8. Skjálftar af þessari stærð sjást nokkuð reglulega í Bárðarbungu, að sögn Veðurstofunnar. Fyrri skjálftinn mældist klukkan 20:10 og sá seinni klukkan 20:14. 13. júní 2026 21:36