Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Agnar Már Másson skrifar 16. júní 2026 16:07 Formenn ungliðahreyfinga frá vinstri til hægri: Halldór Ólafsson úr Sósíalistum, Illugi Gunnarsson úr Vinstri grænum, Hrafn Splidt Þorvaldsson úr Framsókn, Júlíus Viggó Ólafsson úr Sjálfstæðisflokki og Anton Sveinn McKee úr Miðflokki. Samsett Mynd Fimm íslenskar ungliðahreyfingar þvert á hið pólitíska litróf hafa tekið sig saman og hyggjast stofna félagið Ung gegn ESB, sem hefur það að einsettu markmiði að sjá til þess að Íslendingar segi „nei“ í ágúst. Stofnfundur er haldinn á morgun, 17. júní, þar sem Birgir Ármansson og Sólveiga Anna Jónsdóttir verða meðal ræðumanna.
Menn eru teknir að skipa sér í fylkingar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, eða ESB, 29. ágúst. Í fréttatilkynningu er greint frá því að félagið Ung gegn ESB verði stofnað á morgun í samvinnu og að frumkvæði forystufólks og fyrrum forystufólks úr ungliðahreyfingum stjórnmálaflokka sem telja hagsmunum Íslands best borgið utan ESB. Það eru Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS), Samband ungra framsóknarmanna (SUF), Ungliðahreyfing Miðflokksins, Ung vinstri græn (UVG) og Roði - ungir sósíalistar. Í tilkynningunni segir að markmiðið með stofnun og starfsemi félagsins sé að skapa breiðan, þverpólitískan vettvang ungs fólks sem vill að Ísland standi utan Evrópusambandsins. Meginmarkmið félagsins sé að beita sér fyrir því að „tillaga um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu, sem lögð verður í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst, verði felld.“ Sjá einnig: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Þá segir að félagið sé óháður vettvangur að öðru leyti og taki ekki afstöðu til annarra pólitískra álitaefna. „Starf félagsins mun einvörðungu snúa að umræðu um aðild Íslands að Evrópusambandinu, áhrifum aðildar á fullveldi og auðlindir þjóðarinnar, efnahagsmál og hagsmuni Íslands til framtíðar. Félagið mun halda viðburði, gefa út efni og taka virkan þátt í umræðunni, allt á grundvelli þess að ræða hvað þjóðaratkvæðagreiðslan snýst í raun um; umsókn um aðild að Evrópusambandinu, sem óhjákvæmilega felur í sér vilja til inngöngu í sambandið.“ Þetta eru ræðumennirnir á stofnfundinum á morgun.Samsett Mynd Á stofnfundi félagsins sem haldinn verður á Hótel Borg á morgun kl. 17 verður lögð fram ályktun til samþykktar, auk þess að þrír framsögumenn munu halda stutt erindi. Framsögumennirnir eru Birgir Ármannsson lögmaður, fyrrverandi þingmaður og forseti Alþingis, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Steinþór Logi Arnarson formaður Ungra bænda. Fundurinn er sagður opinn öllum sem hafa áhuga á fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að ESB og telja hagsmunum Íslands best borgið utan sambandsins.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Miðflokkurinn Sósíalistaflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Vinstri græn Utanríkismál Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira