Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson, Ólöf Helga Jónsdóttir og Jón Kristinn Sverrisson skrifa 29. júní 2026 08:01 Eydís Ásbjörnsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, birti nýlega umhugsunarverða grein á Vísi undir yfirskriftinni „Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi.“ Þar fer hún yfir sín sjónarmið um það af hverju ekki tókst að afgreiða frumvarp um lagareldi á nýloknu þingi. Greinin vakti eðlilega athygli okkar sem störfum við lagareldi. Eydís er einn af fulltrúum meirihlutans í atvinnuveganefnd Alþingis og auk þess framsögumaður málsins af hálfu nefndarinnar. Þá er hún einnig þingmaður í Norðausturkjördæmi en við hjá Kaldvík erum með umfangsmikla starfsemi víða í kjördæminu, allt frá Djúpavogi til Kelduhverfis. Hjá Kaldvík starfa tæplega tvö hundruð manns við sjókvíaeldi, seiðaeldi, slátrun og vinnslu. Fyrirtækið er því meðal stærstu atvinnurekenda í kjördæminu. Hér er eingöngu verið að tala um bein störf á Austurlandi en hin afleiddu störf eru einnig fjöldamörg. Við erum einnig með starfsemi í Ölfusi í Suðurkjördæmi þar sem við rekum annað seiðaeldi. Eydís er einarður talsmaður síns kjördæmis og því þykir okkur miður að sjá hvernig hún kýs að stilla málinu upp, aðallega þegar fullyrt er að greinin sjálf hafi staðið í vegi fyrir afgreiðslu frumvarpsins. Það er að okkar mati hvorki rétt né sanngjörn ályktun. Því þykir okkur nokkru varða að birta okkar sjónarhorn. Það er rétt sem Eydís segir að það er mikilvægt að koma á skýrri, vandaðri og framsýnni lagaumgjörð um lagareldi. Fyrirtækin sem starfa í greininni hafa tekið virkan þátt í gerð umsagna og athugasemda við þau frumvörp sem lögð hafa verið fram á umliðnum árum, ekki síst í gegnum SFS sem hefur lagt fram ítarlegar umsagnir, greiningar og breytingartillögur í samráðsferli stjórnvalda og umsagnarferli Alþingis. Ágreiningurinn hefur ekki snúið að því hvort rétt sé að koma á nýjum heildarlögum um starfsemina, heldur hvort frumvarpið væri nægilega vel undirbúið og hvort þau fjölmörgu álitaefni sem enn voru uppi hefðu fengið fullnægjandi umfjöllun áður en lög yrðu sett. Á þessu tvennu er grundvallarmunur. Frumvarpið fól í sér víðtækar breytingar á starfsumhverfi greinarinnar, meðal annars varðandi laxahluti, rekstrarleyfi, gjaldtöku, affallagjald og fjölmörg önnur atriði sem hafa bein áhrif á fjárfestingar, fjármögnun og rekstur. Um mörg þessara atriða ríkir verulegur ágreiningur milli ólíkra hagaðila. Þegar haft er í huga hversu umfangsmikið frumvarpið var teljum við hjá Kaldvík að það hefði verið óábyrgt að afgreiða það nær umræðulaust á síðustu dögum þingsins. Fjölmörg ákvæði kölluðu enn á frekari útfærslu og breytingar ef heildarlögin áttu að standa undir þeim markmiðum sem þeim var ætlað að ná. Við teljum því ósanngjarnt að draga þá ályktun að fyrirtækin í greininni hafi komið í veg fyrir að frumvarpið næði fram að ganga. Fyrirtækin höfðu hvorki ákvörðunarvald né áhrif á það hvort frumvarpið yrði að lögum. Sú ákvörðun var á hendi Alþingis og ríkisstjórnar. Full ástæða var til að leita eftir sjónarmiðum eina fyrirtækisins í greininni í Norðausturkjördæmi til væntra áhrifa frumvarpsins á starfsemi félagsins. Frumvarpið, hefði það orðið að lögum, hefði haft mikil áhrif á fyrirtæki, starfsfólk og samfélög sem byggja afkomu sína að verulegu leyti á lagareldi. Því kom það okkur á óvart að einungis einn þingmaður stjórnarflokkanna sýndi því áhuga að eiga samtal við fulltrúa Kaldvíkur til að ræða athugasemdir sem greinin gerði við frumvarpið og vænt áhrif þess á félagið. Það var Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi og meðlimur í atvinnuveganefnd Alþingis. Á hann hrós skilið fyrir það. Það er framsýni hjá ríkisstjórninni að móta atvinnustefnu til tíu ára. Í henni kemur meðal annars fram að lögð sé áhersla á stöðugt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi, góða stjórnsýslu, aukna framleiðni, fjárfestingar og öflugt samráð stjórnvalda og atvinnulífs. Það er erfitt að sjá hvernig það hefði samræmst þeim markmiðum að ljúka afgreiðslu svo umfangsmikils frumvarps án þess að gefa nægt svigrúm til að fara yfir þau álitaefni sem enn voru óleyst. Það hlýtur að teljast eðlilegur samskiptaháttur að löggjafinn eigi samtal við þá sem eiga að starfa eftir nýjum lögum. Við slíkar aðstæður er það ekki veikleikamerki að gefa sér tíma til að vanda lagasetninguna heldur einfaldlega forsenda góðrar löggjafar. Við velkjumst ekki í vafa um að Eydís vilji sínu kjördæmi allt hið besta og hún er góður talsmaður síns landshluta. Við gerum okkur fulla grein fyrir því að þingmenn geta ekki heimsótt öll fyrirtæki. En þegar um er að ræða eitt stærsta fyrirtæki í eigin kjördæmi, sem frumvarpið hefði haft veruleg áhrif á, teljum við að slíkt samtal hefði verið bæði eðlilegt og gagnlegt. Því er okkur bæði rétt og skylt að bjóða Eydísi í heimsókn til okkar við fyrsta hentugleika. Okkur þætti vænt um ef Eydís kæmi og skoðaði starfsemina, hitti fólkið sem vinnur við lagareldi á hverjum degi og á mikið undir því að vel sé búið að greininni. Ræðum saman um áskoranirnar, tækifærin og hvernig við getum byggt upp lagaumgjörð sem verndar náttúruna, styrkir byggðirnar og skapar jafnframt rekstrarskilyrði sem gera fyrirtækjum kleift að fjárfesta og vaxa til framtíðar. Þá getum við einnig farið yfir hvað við teljum vera ábótavant í frumvarpinu og hvað mátti fara betur. Við erum sannfærð um að við eigum fleiri sameiginleg markmið en okkur virðist greina á um. Bestu lausnirnar verða til þegar stjórnvöld, sérfræðingar og atvinnulíf hlusta hvert á annað af virðingu. Og eins og alltaf þá skerpir samtalið skilninginn, á báða bóga. Það samtal erum við alltaf tilbúin að eiga. Elís Hlynur Grétarsson, framkvæmdastjóri vinnslu hjá Kaldvík Ólöf Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri stoðsviða og mannauðs hjá Kaldvík Jón Kristinn Sverrisson, yfirlögfræðingur hjá Kaldvík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvalveiðar: Bláa pillan eða sú rauða? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson Skoðun Barnahús er sameiginlegt verkefni Paola Cardenas Skoðun Ríkisvaldið féll á lyfjaprófi Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson Skoðun Hvað fengu þau – og hvað gáfu þau eftir? Lærdómur frá löndum sem gengu í ESB Bjarndís Helena Mitchell Skoðun Telur stjórnsýslu Íslands allt of litla Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Mikilvægt framfaraskref fyrir allt landið Njáll Trausti Friðbertsson Skoðun Skoðun Skoðun Viljum við kvótavæða sjókvíaeldið? Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun ESB eða efnahagsmálin, hvað á að vera forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson skrifar Skoðun Verkin tala Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Barnahús er sameiginlegt verkefni Paola Cardenas skrifar Skoðun Ríkisvaldið féll á lyfjaprófi Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað fengu þau – og hvað gáfu þau eftir? Lærdómur frá löndum sem gengu í ESB Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Hvalveiðar: Bláa pillan eða sú rauða? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Mikilvægt framfaraskref fyrir allt landið Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Hver á sér fegurra föðurland? Marta Eiríksdóttir skrifar Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Telur stjórnsýslu Íslands allt of litla Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Tengsl eru innviðir samfélagsins Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Börnin fyrst, en þau bíða enn Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen skrifar Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Kannski“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Ábyrgð í orði og verki Lilja Dögg Alfreðsdóttir,Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Stóru verkefnin leysum við saman Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Varúð má ekki verða að forræðishyggju Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Brexit og fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla hér á landi Meyvant Þórólfsson skrifar Sjá meira
Hvað fengu þau – og hvað gáfu þau eftir? Lærdómur frá löndum sem gengu í ESB Bjarndís Helena Mitchell Skoðun
Skoðun ESB eða efnahagsmálin, hvað á að vera forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson skrifar
Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað fengu þau – og hvað gáfu þau eftir? Lærdómur frá löndum sem gengu í ESB Bjarndís Helena Mitchell skrifar
Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Hvað fengu þau – og hvað gáfu þau eftir? Lærdómur frá löndum sem gengu í ESB Bjarndís Helena Mitchell Skoðun