Af hverju hunsa Samfylkingin og Vinstrið umboðsmann barna? Þórður Halldórsson skrifar 30. júní 2026 10:31 Það getur verið þægilegt að stytta sér leið. En það er ekki endilega skynsamlegt þegar opinber stjórnsýsla er annars vegar. Það ætti að minnsta kosti að vera lærdómurinn af þeim hnút sem staðsetning kaffistofu Samhjálpar er kominn í. Þegar barst út að til stæði að opna kaffistofu Samhjálpar að Grensásvegi 46 þá fór á loft sú saga að fyrri meirihluti borgarinnar hafi lofað Samhjálp að keyra þetta mál í gegn sama hvað liði skoðunum íbúa í nágrenninu. Það skipti engu máli þó mikill fjöldi íbúa hafi gert athugasemdir við staðsetninguna í grenndarkynningu. Og það skipti heldur ekki máli að umboðsmaður barna sendi borginni bréf þar sem áréttuð var sú skylda að meta þyrfti áhrifin af starfseminni á börn áður en leyfi væri veitt. Leyfið var einfaldlega veitt án þess að fullnægjandi mat færi fram og því hunsaði fyrri meirihluti í raun áminningu umboðsmanns barna. Í framhaldinu vísuðu íbúarnir málinu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem hefur vald til að endurskoða ákvarðanir borgarinnar á þessu málefnasviði. Á meðan á kæruferlinu stóð, og úrskurðarnefndin var að skoða hvort fella ætti byggingarleyfið úr gildi,hélt Samhjálp áfram fullri vinnu við að innrétta kaffistofuna, jafnvel þótt þeim væri ítrekað bent á að leyfið sætti endurskoðun og gæti verið afturkallað. Á endanum var það einmitt það sem gerðist og Samhjálp segist nú sitja uppi með tugmilljóna tap vegna framkvæmdanna. En þá hlýtur að verða að spyrja af hverju í ósköpunum framkvæmdastjóri Samhjálpar tók slíka áhættu með fjármuni samtakanna, enda var ekkert í hendi með niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar. Framkvæmdastjórinn hefur sagi í fréttum að Samhjálp hafi haldið framkvæmdum áfram í góðri trú og hafi í rauninni ekki getað annað því ekki vildu þau skilja við húsnæðið hálfkarað. Þetta útskýrir samt ekki af hverju lá svona á að eyða þessum milljónum meðan úrskurðarnefndin fundaði. Af hverju mátti húsnæðið ekki vera hálfkarað á meðan? En það hefur einnig komið fram í fréttum að Samhjálp ákvað að halda framkvæmdum áfram “eftir samráð við borgina.” Það er því freistandi að draga þá ályktun að fyrri meirihluti hafi eftir sem áður lofað Samhjálp að leið skyldi fundin til að opna kaffistofuna á Grensásveginum, sama hvað liði niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þessi skilningur á málinu er í samræmi við bókanir sem fulltrúar fyrri meirihluta, og núverandi minnihluta, hafa lagt fram vegna kaffistofunnar eftir að úrskurðarnefndin felldi byggingarleyfið úr gildi. Í þessum bókunum Samfylkingar og Vinstrisins frá 25. júní segir að grundvöllur úrskurðarnefndarinnar sé einungis sá að ekki hafi legið fyrir deiliskipulag áður en byggingarleyfið var samþykkt, en ekki að starfsemi Samhjálpar væri óheimil á staðsetningunni, og enn fremur að finna þurfi leið til að kaffistofan geti þrátt fyrir úrskurðinn verið á Grensásvegi 46. Samkvæmt þessu ætti að vera nóg að gera deiliskipulag og veita Samhjálp aftur byggingarleyfið og málið er dautt. En hér er alveg horft fram hjá því að ástæðan fyrir því að úrskurðarnefndin taldi yfirleitt nauðsyn á deiliskipulagi er sú að áhrifin af starfsemi kaffistofunnar á nánasta umhverfi voru ekki metin með fullnægjandi hætti af Reykjavíkurborg. Þannig segir í úrskurðinum að ekki hafi legið fyrir nokkurt mat um líkleg áhrif kaffistofunnar á nærumhverfi, m.a. með tilliti til umferðar, bílastæðaþarfar og annarra breytinga enda þótt samfélagsþjónusta geti jafnan haft nokkur áhrif á nærumhverfi sitt. Einnig segir í úrskurðinum að merkja megi möguleg grenndaráhrif af kaffistofunni af þeim mikla fjölda athugasemda frá íbúum sem barst við grenndarkynningu og þá ekki síður að Samhjálp hafi talið nauðsynlegt að gera það miklar ráðstafanir til að koma í veg fyrir árekstra og tryggja öryggi skjólstæðinga sinna að ætla mætti „að áhyggjur íbúa í grennd við húsnæðið séu ekki með öllu tilefnislausar.” En þrátt fyrir þetta virðast sjónarmið íbúanna ekki skipta einu einasta máli fyrir fulltrúa Samfylkingar og Vinstrisins. Það er einnig athyglisvert að í þessum bókunum Samfylkingar og Vinstrisins er ekki stakt orð um mat á áhrifum á börn. Eins og áður sagði sendi umboðsmaður barna bréf til fyrri meirihluta þar sem áréttað var að „áður en ákvarðanir eru teknar á vettvangi borgarinnar, eins og t.d. um skipulagsmál, ber að leggja sérstakt mat á áhrif þeirra á börn, en slíkt mat ætti ávallt að fara fram á fyrstu stigum umræðu eða ákvarðanatöku. Matið er liður í því að kanna hvort ákvörðunin samræmist 3. gr. Barnasáttmálans, sem kveður á um að það sem börnum er fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang, þegar gerðar eru ráðstafanir sem varða börn.” Þar sem enn er eftir að framkvæma slíkt mat á áhrifum á börn er enn ekki hægt að fullyrða hvort Grensásvegur 46 sé heppileg staðsetning fyrir kaffistofu Samhjálpar með hliðsjón af hagsmunum barna í nágrenninu, en þau eru fjölmörg. En fyrst borgarfulltrúar Samfylkingar og Vinstrisins vilja enn að kaffistofan opni á Grensásveginum án nokkurs undanfarandi mats á áhrifum á börn þá virðist sem sjónarmið umboðsmanns barna skipti engu máli fyrir þessa fulltrúa. Mig langar því að spyrja Pétur Marteinsson og Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttir, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, og Sönnu Magdalenu Mörtudóttir og Líf Magneudóttur, borgarfulltrúa Vinstrisins, af hverju þau telja rétt að hunsa bréf umboðsmanns barna frá 6. mars síðastliðnum. Höfundur er stjórnsýslufræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kaffistofa Samhjálpar Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun