Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Freyja Þórisdóttir skrifar 1. júlí 2026 11:06 Björn Berg Pálsson segir alla verkferla vera yfirfarna reglulega í Laugardalslaug. Vísir/aðsend Ljósastýringar í rennibraut Laugardalslaugar eru yfirfarnar reglulega en stærsta rennibrautin er lokuð sem stendur vegna viðhalds. Síðasta laugardag, þann 27. júní, var kallað eftir aðstoð lögreglu vegna þess að drengjahópur fór niður rennibrautina á eftir manni með ungt barn með þeim afleiðingum að þeir lentu saman. Maðurinn veittist þá að drengjunum og í kjölfarið fór einn þeirra á slysadeild í fylgd forráðamanna.
Björn Berg Pálsson, þjónustu- og gæðastjóri Sundlauga Reykjavíkur, segir málið vera komið á borð lögreglu en að ef græna ljósinu sé fylgt eigi það að vera öruggt að lenda ekki á annarri manneskju í rennibrautinni. „Þetta er alveg útmælt hjá okkur en við erum að vísu með rennibrautina lokaða núna,“ segir hann í samtali við blaðamann Vísis og að ljósið sé í skoðun, sem og annað. „Við erum alltaf í ákveðnum viðhaldslokunum og yfirferðum á sumrin, þetta er bara partur af því,“ segir Björn einnig og bætir við að það sé reglulega gerð áhættugreining á öllum verkferlum í sundlauginni. Varðandi atvikin sem upp komu um síðustu helgi segir hann starfsfólk laugarinnar hafa staðið að öllu eftir bókarinnar reglum. Hann hafi sjálfur verið ræstur út en í samtali við lögregluna um málið kom fram að einn drengjanna hafi farið á slysadeild ásamt forráðamönnum eftir að maðurinn veittist að þeim. „Við hringjum alltaf á lögreglu ef það koma upp atvik. Þannig að þau fylgdu algjörlega verkferlinum.“
Sund Sundlaugar og baðlón Börn og uppeldi Öryggis- og varnarmál Reykjavík Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira