Körfubolti

Lárus verður að­stoðarþjálfari Grinda­víkur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lárus Jónsson var þjálfari Þórs í sex ár. 
Lárus Jónsson var þjálfari Þórs í sex ár.  Vísir/Hulda Margrét

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur samið við Lárus Jónsson um að verða næsti aðstoðarþjálfari liðsins. 

Helgi Már Magnússon er hættur sem aðstoðarþjálfari liðsins.

Lárus var þjálfari Þórs Þorlákshafnar á síðasta tímabili en liðið féll úr efstu deild. Hann hætti í kjölfarið með liðið. Lárus tók við Þór árið 2020 og gerði félagið að Íslandsmeisturum ári seinna.

Grindavík fór alla leið á síðasta tímabili og varð Íslandsmeistari eftir einvígi við Tindastól.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×