„Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar 1. júlí 2026 22:31 Maður er á ferð seint um kvöld á afskekktum sveitavegi þegar það springur á bílnum. Ætlar að skipta um dekk, en uppgötvar að það vantar tjakkinn í skottið. Maðurinn lítur í kringum sig og sér ljós á bæ í um tveggja kílómetra fjarlægð. Hann ákveður að ganga þangað og biðja bóndann um að lána sér tjakk. Á leiðinni fer hann að hugsa: „Æ, það er hánótt. Bóndinn er örugglega sofandi.“ „Hann verður fúll að láta vekja sig.“ „Hann á eftir að verða ergilegur og hreyta í mig ónotum.“ „Ég segi honum að það hafi sprungið hjá mér og mig vanti tjakk.“ „Þá segir hann ábyggilega: Af hverju ferðu svona tjakkslaus út á land, helvítis borgarbarnið þitt?'“ „Hann mun pottþétt heimta tíu þúsund kall eða meira fyrir lánið, já hann ætlar örugglega að féfletta mig!“ Maðurinn þokast áfram í myrkrinu og fyllist æ meiri gremju og biturð í garð þessa ókunna bónda með hverju skrefinu sem hann tekur og ímyndar sér móttökurnar. Loksins kemur hann að bænum og það sýður á honum. Hann bankar fast á hurðina. Eftir nokkra stund kemur bóndinn til dyra, horfir á manninn meðan hann nuddar stírurnar úr augunum og segir vinalega: „Góða kvöldið, get ég hjálpað þér góði minn?“ Maðurinn horfir á hann, dregur djúpt inn andann og öskrar: „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Þessi klassíski brandari endurspeglar margt í málflutning þeirra sem eru á móti því að efna til viðræðna um aðild að Evrópusambandinu. Höfundur er ráðgjafi í almannatengslum Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ólafur Hauksson Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Sjá meira
Maður er á ferð seint um kvöld á afskekktum sveitavegi þegar það springur á bílnum. Ætlar að skipta um dekk, en uppgötvar að það vantar tjakkinn í skottið. Maðurinn lítur í kringum sig og sér ljós á bæ í um tveggja kílómetra fjarlægð. Hann ákveður að ganga þangað og biðja bóndann um að lána sér tjakk. Á leiðinni fer hann að hugsa: „Æ, það er hánótt. Bóndinn er örugglega sofandi.“ „Hann verður fúll að láta vekja sig.“ „Hann á eftir að verða ergilegur og hreyta í mig ónotum.“ „Ég segi honum að það hafi sprungið hjá mér og mig vanti tjakk.“ „Þá segir hann ábyggilega: Af hverju ferðu svona tjakkslaus út á land, helvítis borgarbarnið þitt?'“ „Hann mun pottþétt heimta tíu þúsund kall eða meira fyrir lánið, já hann ætlar örugglega að féfletta mig!“ Maðurinn þokast áfram í myrkrinu og fyllist æ meiri gremju og biturð í garð þessa ókunna bónda með hverju skrefinu sem hann tekur og ímyndar sér móttökurnar. Loksins kemur hann að bænum og það sýður á honum. Hann bankar fast á hurðina. Eftir nokkra stund kemur bóndinn til dyra, horfir á manninn meðan hann nuddar stírurnar úr augunum og segir vinalega: „Góða kvöldið, get ég hjálpað þér góði minn?“ Maðurinn horfir á hann, dregur djúpt inn andann og öskrar: „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Þessi klassíski brandari endurspeglar margt í málflutning þeirra sem eru á móti því að efna til viðræðna um aðild að Evrópusambandinu. Höfundur er ráðgjafi í almannatengslum
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar