Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Eiður Þór Árnason skrifar 2. júlí 2026 22:24 David Hearn í Penrith í Ástralíu árið 2000. Þörungablómi hefur plagað laugina í Washington D.C. og breytt lit hennar. AP Fyrrverandi Ólympíufari á sjötugsaldri var í dag ákærður í tengslum við það sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur kallað skemmdarverk á lauginni við Lincoln-minnismerkið í Washington D.C. Verjendur mannsins segja málið byggt á uppspuna.
Viðgerð á lauginni hefur staðið yfir að ósk forsetans og stóð til að klára verkið fyrir þjóðhátíðardaginn sem fram fer 4. júlí. Hvert vandamálið á fætur öðru hefur komið upp í tengslum við framkvæmdina og hefur verið gerð athugasemd við að hún hafi ekki farið í gegnum hefðbundna útboðsferla. Verkefnið hefur kostað um tvo milljarða króna. David Hearn sem keppti sem kajakræðari á Ólympíuleikunum var í dag ákærður fyrir eignarspjöll í dómstól í höfuðborginni. Ríkissaksóknarinn Jeanine Pirro sagði að Hearn hefði „vísvitandi“ rifið upp nýlega lagt þéttiefni á laugarbotninum og þannig valdið tjóni upp á meira en þúsund bandaríkjadali, eða sem nemur um 126 þúsund krónum. Hún sakaði hann einnig um að hafa sýnt starfsmanni yfirgang þegar sá sagði honum að hætta. AP-fréttaveitan greinir frá þessu. „Það eru gríðarleg sönnunargögn í þessu máli,“ sagði Pirro sem er náinn bandamaður Trumps en hann tilnefndi hana í embættið í fyrra. Hún bætti við að yfirvöld hefðu handtekið um sex aðra í tengslum við minniháttar brot. Ákæran sé svívirðileg Norm Eisen, meðstofnandi samtakanna Democracy Defenders Fund, og Mary Dohrmann, yfirlögfræðingur hjá Washington Litigation Group, sögðu í yfirlýsingu að þau væru verjendur Hearns og að ákæran væri „svívirðileg og ætti að vera öllum Bandaríkjamönnum áhyggjuefni.“ Eisen og Dohrmann sögðu málið dæmi um „misbeitingu ríkisvalds gegn almennum borgara sem byggir á uppspunninni frásögn.“ Hearn hefur áður sagt AP að hann hafi teygt sig ofan í tjörnina þann 19. júní til að skoða nýflagnaða húðina á botni laugarinnar. Hann hefði stuttlega snert bita sem var enn fastur við hlið laugarinnar og svo sleppt honum skömmu eftir að starfsmaður þjóðgarðsins sagði honum að hætta. „Ég er forvitinn borgari,“ sagði Hearn við AP í júní. „Ég seildist ofan í til að sjá hvernig þetta var viðkomu. Þetta var mjög gúmmíkennt.“ Trump valdi sjálfur verktakafyrirtækið Atlantic Industrial Coatings til að sjá um að mála steyptan laugarbotninn og setja á vatnsvörn. Annað fyrirtæki var fengið til að setja upp vatnssíunarkerfi án útboðs en forstjóri þess hefur sagt að það hafi aldrei áður unnið verkefni í laug. Trump hét því að fegra hina aldargömlu spegiltjörn (e. Reflecting Pool) fyrir 250 ára afmælishátíð Bandaríkjanna á laugardag og fyrirskipaði að botninn yrði málaður í bláum lit sem minnti á bandaríska fánann. Eftir að svæðið var endurnýjað varð vatnið fljótt grænt vegna þörungablóma og nýja húðin byrjaði að flagna af botninum. Án nokkurra sannana hefur Trump ítrekað kennt skemmdarvörgum um málningarflögnunina og tilkynnt að laugin verði tæmd aftur og lagfærð. Verkefnið kostað tvo milljarða króna Hearn er 67 ára og frá Bethesda í Maryland. Hann átti fyrirtæki sem framleiddi samsett efni sem notuð eru til að smíða báta. Hearn sagðist hafa stoppað við tjörnina þegar hann var í 100 kílómetra hjólatúr og að hann hefði verið í haldi þjóðvarðliða og þjóðgarðalögreglu í fimm klukkustundir áður en honum var sleppt. Ólíkir litir sjást í botni laugarinnar eftir endurbæturnar.Ap/Rahmat Gul Trump sagði í síðasta mánuði að alríkisyfirvöld hefðu „handtekið fjölda fólks“ sem hann sakaði um að hafa unnið skemmdarverk á lauginni þegar hann reyndi að útskýra hvers vegna 16 milljóna dala endurbótaverkefnið, sem hann hóf í tilefni af 250 ára afmæli þjóðarinnar, virtist hafa farið úrskeiðis. Kostnaðurinn nemur um tveimur milljörðum króna. Án þess að leggja fram nokkur sönnunargögn sagði Trump einnig að skemmdarvargar hefðu hent áburði í tjörnina og skorið húðina með pappírshníf.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira