Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 3. júlí 2026 22:21 Guðmundur Heiðar Helgason er almannatengill hjá TVIST. vísir Almannatengill segir að ef upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu séu óskýrar eða ef á reiki sé um hvað kosið er geti það leitt til aðgerðarleysis að hálfu kjósenda.
Nei eða já, af eða á. Þetta verður spurningin sem þjóðin stendur frammi fyrir eftir 56 daga þegar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur spyr hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Spurning sem hljómar nokkuð skýr en þingmenn deila enn um hvað þýði í raun og veru. Sumir segja að verið sé að greiða atkvæði um aðild að sambandinu, aðrir að atkvæðagreiðslan snúist um það að hefja formlegar viðræður, sumir tala um óformlegar þreifingar og aðrir telja að einfaldlega sé verið að ,,kíkja í pakkann.'' View this post on Instagram „Þjóðaratkvæðagreiðslan sem er hér til umfjöllunar er auðvitað atkvæðagreiðsla um aðild,“ sagði Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks. „Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst ekki um aðild. Hún snýst um aðildarviðræður,“ sagði Pawel Bartozsek, þingmaður Viðreisnar. View this post on Instagram „Það var ekki áhugi fyrir því að ræða það fyrir Alþingiskosningar að menn vildu ganga inn í Evrópusambandið,“ sagði Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins í Spursmálum hjá Morgunblaðinu. „Það er ekki verið að tala um að ganga inn í Evrópusambandið,“ segir Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar þá. „Það er verið að sækja um aðild að Evrópusambandinu,“ tekur Snorri aftur við. „Það er bara verið að spyrja þjóðina,“ segir Jón Gnarr þá. Ráðvilltur hugur segir nei Guðmundur Heiðar Helgason, almannatengill hjá TVIST segir ekki nema von að landsmenn séu margir ruglaðir í rýminu þegar kemur að umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna. „Ef við horfum út frá þessari umræðu þá dettur mér í hug ákveðið lögmál í auglýsinga- og sölugeiranum sem er: Ráðvilltur hugur segir nei. Sem þýðir í raun að ef fólk hefur of marga valkosti eða of óskýrar upplýsingar þá endar það gjarnan í aðgerðarleysi. Þar af leiðandi myndir þú kannski ekki kaupa einhverja vöru.“ Geti leitt til aðgerðarleysis Guðmundur segir að ef umræðan verður óskýr og sérstaklega ef fólki finnst á reiki um hvað kosið er þá skili það sér í þeirri niðurstöðu að fólk geti síður mætt á kjörstað eða að það segi nei í málinu. Og það hafi ekkert endilega með afstöðu fólks í málinu að gera heldur bara það að málið í heild sinni sé ekki nægilega skýrt. Samtök spretta upp Hreyfingar með eða á móti Evrópusambandinu hafa sprottið upp undanfarið. Rótgróin samtök voru fyrir á fleti eins og Evrópuhreyfingin og Heimssýn en fjöldi nýrra samtaka hafa bæst í flóruna. Nýlega voru samtökin: Segjum já í ágúst stofnuð. Þeim sem hugnast ekki að skoða aðild að Evrópusambandinu hafa um fjölmörg samtök að velja vilji þeir kynna sér málin.vísir/hjalti X-Nei eru samtök sem fimm ungliðahreyfingar þvert á hið pólitíska litróf stofnuðu á dögunum. Þeir sem segja nei en eru til vinstri í stjórnmálaskoðunum hafa einnig stofnað sína eigin hreyfingu og nýjasta dæmið er Áfram Íslands en stofnfundur samtakanna fer fram næsta mánudag. Sjá stendur fyrir: Segjum já í ágúst og var nýlega stofnað. Skýr skilaboð Guðmundur segir það ákveðna grundvallarreglu að ef fólk vilji selja öðrum einhverja afstöðu eða hugmynd sé mikilvægt að skilaboðin séu einföld og með eins fáum fullyrðingum og hægt er. „Þannig þú velur þér gjarnan kannski einhverja eina lykilfullyrðingu og skilaboðin síðan kjarnast í kringum það. Bestu vörumerki heims eru mjög góð í þessu. Ef við hugsum út frá pólitík þá sjáum við t.d. að Obama var með slagorðið Change sem kjarnaði hans málstað og framboð. Trump gerði slíkt hið sama. Hann var með mjög grípandi slagorð sem kjarnaði hans boðskap.“ „Og ef við horfum t.d. til Brexit þá var það þannig að þeir sem vildu fara úr Evrópusambandinu voru með ákveðinn kjarna og pökkuðu sínum skilaboðum inn í að taka aftur stjórn á meðan þeir sem vildu vera voru oft svolítið óljósari. Töluðu um efnahagsáhættu sem var til staðar og fleira sem útþynnti svolítið skilaboðin. Ég er ekki að taka afstöðu til þess hvor hefur rétt eða rangt fyrir sér. Önnur skilaboðin voru eftirminnilegri, auðveldara að muna þau og svona tilfinningadrifnari. Á meðan hin urðu aðeins útþynntari.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira