Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. júlí 2026 12:40 Vændið á Íslandi er talið hafa verið skipulagt af kínverskum glæpasamtökum. Europol Fimmtíu vændiskaupendur náðust á myndskeið og fimm voru handteknir í aðgerðum lögreglu gegn skipulagðri vændisstarfsemi í júní. Aðgerðirnar voru þáttur í alþjóðlegum aðgerðum lögregluyfirvalda í 59 ríkjum.
Alls voru 1.024 einstaklingar handteknir, þar af 334 sem eru grunaðir um mansal. Þá voru kennsl borin á 2.070 mögulega þolendur. Aðgerðirnar, sem bera yfirskriftina Operation GLOBAL CHAIN, fóru fram dagana 8. - 12. júní, í samvinnu við Europol, Frontex og Interpol. Markmiðið var að uppljóstra um og uppræta glæpastarfsemi tengda mansali, bera kennsl á fórnarlömb og stofna til rannsókna á skipulögðum glæpahópum. Alls hafa 465 nýjar rannsóknir verið hafnar í tengslum við aðgerðirnar. Flest fórnarlamba glæpastarfseminnar eru fullorðnar konur en 64,2 prósent þeirra voru seldar mansali í vændi. Hlutfallið er enn hærra meðal ólögráða einstaklinga, eða 86,4 prósent. Aðrir voru seldir mansali til að taka þátt í annars konar glæpastarfsemi, til að betla eða stela. Flest fórnarlambanna koma frá Suður-Ameríku. Á Íslandi viðhafði lögregla eftirlit við tvo staði þar sem grunur lék á um að vændi væri stundað. Staðirnir eru sagðir tengjast skipulagðri glæpastarfsemi kínverskra aðila. Eins og fyrr segir náðust myndskeið af 50 vændiskaupendum og þá voru fimm handteknir. Lagt var hald á um 14.000 evrur í reiðufé, þrettán farsíma og ellefu skilríki. Í tilkynningu Europol segir að unnið sé að yfirheyrslu vitna. Borin voru kennsl á sextán mögulega þolendur vændis og þeim boðin aðstoð. Tveir voru handteknir vegna ólöglegrar dvalar á Íslandi.
Mansal Vændi Lögreglumál Kynferðisofbeldi Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Sjá meira