Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson og Sveinn Ólafsson skrifa 10. júlí 2026 07:31 Lægri lífeyrisréttindi vegna breytinganna á A-deild LSR og Brú 2016-2017 Lífeyrissparnaður launafólks er ekki gjöf frá vinnuveitanda heldur hluti af launum starfsfólks, er greiddur til hliðar á starfsævinni og kemur til útborgunar síðar. Réttindi sem verða til með þessum greiðslum eru eign launafólks og njóta verndar eignarréttarákvæðis stjórnarskrárinnar. Þessi réttindi eru verðmætar eignir sem launafólk hefur aflað sér með vinnu sinni. Þessi krafa um eignarstöðu myndar grunninn í gagnrýni á breytingarnar sem gerðar voru á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna árin 2016–2017, þegar gerðar voru umfangsmiklar breytingar á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna. Yfirlýst markmið var að samræma lífeyriskerfi opinberra starfsmanna og launafólks á almennum vinnumarkaði. Jafnframt var fullyrt að breytingarnar myndu tryggja að réttindi sjóðfélaga héldust jafnverðmæt eftir breytingarnar eins og þær voru fyrir. Tæpum áratug síðar sýna bæði þróunin og fræðilegar greiningar til þess að hvorugt þessara markmiða hafi náðst að fullu. Breytingin 1. júní 2017 Stærsta breytingin varð 1. júní 2017 þegar A-deild LSR var færð úr kerfi skilgreindra réttinda (SR) yfir í kerfi skilgreindra iðgjalda (SI). Í eldra kerfi bar ríkið sem launagreiðandi ábyrgð á því að sjóðurinn gæti staðið við þau lífeyrisréttindi sem starfsfólk hafði áunnið sér. Ef forsendur breyttust, til dæmis vegna lengri meðalævi eða annarra lýðfræðilegra breytinga, þurfti ríkið að mæta auknum kostnaði með hærri framlögum. Með breytingunni árið 2017 fluttist þessi áhætta að verulegu leyti yfir á sjóðfélagana sjálfa. Framtíðarlífeyrir þeirra varð háðari ávöxtun eigna sjóðsins, þróun lífslíkna og öðrum tryggingafræðilegum þáttum. Samkvæmt greiningu Gylfa Magnússonar prófessors fólst í þessari tilfærslu á verulegum fjárhagslegum verðmætum sem sjóðfélagar fengu engar bætur fyrir. Þeir sem þá höfðu náð sextugu eða höfðu þegar hafið töku lífeyris héldu eldri réttindum sínum. Allir aðrir urðu sjálfkrafa hluti af nýja kerfinu án þess að hafa val um hvort þeir vildu halda fyrra fyrirkomulagi. Jafnverðmæt réttindi reyndust ekki jafnverðmæt eftir breytinguna Ein forsenda breytinganna árið 2016-2017 var að réttindi sjóðfélaga yrðu jafnverðmæt eftir breytinguna og fyrir hana. Í framkvæmd varð niðurstaðan önnur. Samkvæmt greiningu Gylfa var stuðst við tryggingafræðilegar forsendur sem síðar reyndust of bjartsýnar. Meðal annars var notast við söguleg gögn um lífslíkur í stað þess að byggja á raunhæfum spám um áframhaldandi lengingu meðalævi. Einnig var ekki tekið nægilegt tillit til þess að sjóðfélagar í LSR lifa að jafnaði lengur en meðaltal þjóðarinnar. Þessar forsendur höfðu fyrirsjáanleg áhrif. Þegar síðar var leiðrétt fyrir raunverulegri þróun lífslíkna og sértækum einkennum sjóðfélagahópsins versnaði tryggingafræðileg staða sjóðsins verulega og þar með framtíðarlífeyrisréttindi sjóðsfélaga. Það eru ekki sömu lífeyrisréttindi á almennum markaði og opinberum markaði Það er eðlileg krafa að lífeyrisréttindi séu reiknuð á sama hátt á almennum markaði og opinberum markaði, en þá þurfa einnig önnur kjör að vera reiknuð á sama hátt. Þannig er það ekki og opinberir starfsmenn hafa ekki jöfn réttindi og almenni markaðurinn, hvorki í lifeyrisréttindum eða í launum. Opinberir starfsmenn hafa ekki frelsi til að velja sér lífeyrissjóð. Ríkisstarfsmenn skulu vera í A-deild LSR ef þeir hófu störf eftir 1. júlí 1996, og starfsfólk sveitarfélaga er að jafnaði í Brú lífeyrissjóði. Á almennum vinnumarkaði getur fólk hins vegar valið á milli lífeyrissjóða. Þessi valréttur er mikilvægur þáttur í samkeppni milli sjóða og veitir sjóðfélögum ákveðið aðhald gagnvart rekstri þeirra. Opinberir starfsmenn njóta ekki þessa frelsis og geta ekki flutt skyldulífeyrissparnað sinn annað telji þeir á sér hallað. Veruleg skerðing réttinda árið 2023 Afleiðingar breytinganna komu skýrt fram árið 2023. Annars vegar var dregið úr réttindaávinnslu sjóðfélaga og hins vegar voru áunnin réttindi skert afturvirkt. Samkvæmt útreikningum Gylfa Magnússonar nam verðmæti hægari réttindaávinnslu um 92 milljörðum króna og skerðing áður áunninna réttinda um 71 milljarði króna. Samtals nam skerðingin því um 163 milljörðum króna að nafnvirði. Meðalskerðing áunninna réttinda var metin 9,9%, en áhrifin voru mismunandi eftir aldri. Þau sem fæddust árið 1957 urðu fyrir um 4% skerðingu en fyrir yngstu árgangana getur skerðingin numið allt að 13%. Mikilvægt er að hafa í huga að þessar skerðingar eru ekki fyrst og fremst afleiðing slæmrar ávöxtunar sjóðsins. Þær má rekja til þess að forsendurnar sem notaðar voru við breytinguna árið 2017 reyndust rangar eða ófullnægjandi. Hefði sjóðurinn áfram verið rekinn sem sjóður með skilgreind réttindi hefði ríkið þurft að mæta þessum kostnaði með auknum framlögum í stað þess að hann lenti á sjóðfélögum. Brostnar forsendur um jafnrétti milli markaða Breytingarnar voru einnig kynntar sem hluti af heildarsamkomulagi sem átti að jafna stöðu opinberra starfsmanna og starfsfólks á almennum vinnumarkaði. Á þeim tíma var víða umtalsverður launamunur, oft á bilinu 10–20%, opinberum starfsmönnum í óhag. Sá munur var gjarnan réttlættur með vísan til betri lífeyrisréttinda hjá hinu opinbera. Þegar lífeyriskerfið var síðan fært nær því sem þekkist á almennum markaði átti að jafna launakjör á opinbera markaðnum við það sem gerðist á almenna markaðnum. Það hefur ekki gengið eftir. Því standa opinberir starfsmenn eftir, bæði hvað varðar lakari lífeyrisréttindi en áður og án þess að full leiðrétting hafi orðið á launakjörum. Málshöfðun gegn ríkinu Árið 2024 ákváðu BHM, BSRB og Kennarasamband Íslands að höfða mál gegn íslenska ríkinu vegna breytinganna. Kjarni málatilbúnaðar samtakanna er að breytingarnar hafi falið í sér skerðingu á stjórnarskrárvörðum eignarréttindum sjóðfélaga samkvæmt 72. grein stjórnarskrárinnar. Jafnframt er byggt á því að réttindi sjóðfélaga hafi ekki verið jafnverðmæt eftir breytinguna og að fjármögnun þeirra úrræða sem áttu að tryggja slíkt hafi reynst ófullnægjandi. Málið hefur tafist meðal annars vegna hæfisvandamála hjá dómurum, þar sem margir dómarar eru sjálfir sjóðfélagar í A-deild LSR. Beðið er efnislegrar niðurstöðu dómstóla sem gæti haft fordæmisgildi fyrir þúsundir núverandi og fyrrverandi opinberra starfsmanna. Leið út úr vandanum Samkvæmt niðurstöðum Gylfa Magnússonar væri einfaldasta leiðin til að leiðrétta stöðuna að gera breytingarnar frá 2017 valkvæðar fyrir þá sjóðfélaga sem höfðu þegar hafið réttindasöfnun þegar breytingarnar tóku gildi. Allir nýir sjóðsfélagar myndu fara í kerfið sem tók gildi 2017. Slík lausn myndi gefa sjóðfélögum kost á að vera áfram í kerfi þar sem ríkið bæri áhættuna af ávöxtun og lýðfræðilegri þróun, líkt og áður var. Það myndi færa kostnaðinn aftur til ríkisins í stað þess að láta sjóðsfélaga sitja uppi með hann og um leið draga úr því eignatapi í formi verri lífeyrisréttinda sem margir sjóðfélagar telja sig hafa orðið fyrir. Kjarni málsins er sá að breytingarnar frá 2017 voru kynntar sem leið til að tryggja jafnverðmæt réttindi og aukið jafnræði. Aftur á móti benda greiningar sem nú liggja fyrir til þess að þær hafi leitt til umtalsverðrar skerðingar lífeyrisréttinda, yfirfærslu áhættu frá ríkinu til starfsfólks og verulegs fjárhagslegs tjóns fyrir stóran hóp opinberra starfsmanna. Niðurstaða dómstóla mun að öllum líkindum skera úr um hvort sú niðurstaða samræmist þeim eignarréttindum sem stjórnarskráin verndar. Leið út úr þessum vanda er að gera breytingarnar frá 2017 valkvæðar fyrir þau sem þegar höfðu réttindi, reikna uppbætur á núvirði fyrir þau sem hafa orðið fyrir skerðingu og birta opinberlega útreikninga sem sýna hvernig breytingar hafa áhrif á réttindi eftir árgangi. Síðan þarf að efna ákvæðið frá 2016 um að jafna laun á opinberum og almennum markaði. Þar þarf sérstaklega að bæta stöðu stétta sem starfa nær eingöngu á opinberum markaði. Komið hefur í ljós að þær njóta ekki launakjara á sama hátt og stéttir þar sem fólk getur flutt sig milli starfa á þessum tveimur mörkuðum. Gunnar Alexander Ólafsson formaður lífeyris- og lánanefndar BHMSveinn Ólafsson formaður kjaranefndar BHM Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar Skoðun Það er alltaf til byssa. Vertu blómið! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar Sjá meira
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun
Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun