Var látin í sólarhring áður en hún fannst Bjarki Sigurðsson skrifar 11. júlí 2026 16:44 Ann Widdecombe á ársfundi Umbótaflokksins árið 2024. Getty/Ioannis Alexopoulos Lögreglan í Devonskíri í Bretlandi telur Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra og þingmann, hafa verið látna í sólarhring áður en hún fannst. 26 ára karlmaður var handtekinn í tengslum við málið en honum sleppt úr haldi og er hann ekki talinn tengjast andlátinu.
Widdecombe fannst látin á heimili sínu á fimmtudag. Hún var 78 ára og á pólitískum ferli sínum sat hún á þingi fyrir Íhaldsflokkinn og gegndi embætti innanríkis- og atvinnumálaráðherra á árunum 1994 til 1997. Hún varð síðar mikill talsmaður Umbótaflokks Nigel Farage og studdi útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Fyrst um sinn var talið að andlátið hefði borið að með eðlilegum hætti en eftir að rannsókn hófst fór lögreglu að gruna að eitthvað saknæmt hefði átt sér stað. Í gærkvöldi var svo 26 ára karlmaður handtekinn, grunaður um aðkomu að málinu. Honum var í dag svo sleppt úr haldi og er ekki talinn tengjast andlátinu á neinn hátt. Lögreglan segir nú að meint árás hafi átt sér stað á miðvikudag, sólarhring áður en Widdecomb fannst látin. Manninum sem grunaður er um verknaðinn hefur eingöngu verið lýst sem hvítum karlmanni í fjölmiðlum. Ekki hefur verið gefið upp hvers vegna lögregluna grunar að hún hafi verið myrt. Fjölmargir fyrrverandi samstarfsmenn Widdecombe af breska þinginu og úr öðru pólitísku starfi hafa minnst hennar síðustu daga.
Bretland England Morðið á Ann Widdecombe Tengdar fréttir Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Íhaldsflokksins og seinna talsmaður Umbótaflokksins, lést í morgun 78 ára að aldri. Lögreglan í Devon og Cornwall rannsakar nú andlátið sem morð. 10. júlí 2026 15:15 Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira
Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Íhaldsflokksins og seinna talsmaður Umbótaflokksins, lést í morgun 78 ára að aldri. Lögreglan í Devon og Cornwall rannsakar nú andlátið sem morð. 10. júlí 2026 15:15