Körfubolti

Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um vald­níðslu

Valur Páll Eiríksson skrifar
Brynjar Karl Sigurðsson þjálfari Aþenu
Brynjar Karl Sigurðsson þjálfari Aþenu

Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari og stofnandi körfuboltafélagsins Aþenu, greinir frá því á samfélagsmiðlinum Facebook að meistaraflokkur liðsins hafi verið lagður niður og taki ekki þátt í Bónus deild kvenna í haust. Reykjavíkurborg, valdníðslu hennar og skorti aðgerða nýs meirihluta í borginni sé um að kenna.

„Það er með mikilli sorg sem ég upplýsi okkar ótrúlega stuðningsfólk og verndarengla um að Aþena neyðist til að draga lið sitt úr Bónusdeild kvenna,“ segir í færslu Brynjars Karls. Ákvörðunin sé tekin nú svo KKÍ gefist tækifæri og tími til að finna annað félag til að fylla í skarðið í efstu deild.

Brynjar skrifar langan pistil þar sem hann skýrir ákvörðunina. Fyrst og fremst sé hún tekin sökum þess að ekki hefur tekist að endurnýja rekstrarsamning milli borgar og félags. Aþena fái ekki að nýta fundar- og kennslurými, sem sé starfseminni nauðsynleg.

Brynjar segir mikla „skekkju“ í samstarfinu við borgina sem hafi mætt athugasemdum með „grófri valdníðslu“ sem félaginu hafi tekist að „berja af sér“ en „eftir lifi spilling í reykfylltum bakherbergjum.“

Fundar- og kennslurýmið sem um ræði hafi nýst vel til að aðstoða iðkendur félagsins við nám, íslenskukunnáttu og fleira til, utan körfuboltavallarins.

„Fundar- og kennslurýmið er mikilvægt til að halda áfram að byggja upp starfið með þeim hætti sem við teljum nauðsynlegan til að auka virði barnanna, með stuðningi við heimanám, íslenskukennslu fyrir stóran hóp iðkenda og leiðtogaþjálfun, sem er ein mesta sérstaða félagsins,“ segir Brynjar Karl.

„Ómæld vinna hefur verið lögð í uppbyggingu félagsins og í að halda utan um unga fólkið, vinna sem enginn skilur nema hafa starfað með okkur. Því er óeðlilegt að borgin endurnýi ekki samninginn. Hann er nauðsynlegur til að tryggja tilverurétt Aþenu og koma í veg fyrir að geðþóttaákvarðanir embættismanna eða borgarfulltrúa ráði framtíð félags sem hefur náð framúrskarandi árangri,“ bætir hann við.

Skýtur á Sjálfstæðisflokkinn

Brynjar Karl setur þá spurningamerki við nýjan meirihluta Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Viðreisnar í borginni. Sá hafi vitað af stöðu Aþenu og samningamála félagsins við borgina í fimm vikur en ekkert aðhafst.

Hann virðist þá setja hvað helst út á Sjálfstæðisflokk sem bauð fram undir slagorðinu „Strax-D“.

„Hinn nýji meirihluti hefur ekki treyst sér til að leysa málið STRAX.

Okkur þykir furðulegt að nýjum meirihluta finnist málið ekki meira áríðandi og leysi það STRAX, enda hefur það velkst lengi um hjá borginni og okkar mál voru kynnt ítarlega í kosningabaráttunni. Lausnin snýst ekki um fjármagn heldur velvilja og viðurkenningu á starfinu. Þar sem ekki er ágreiningur um fjárhæðir hefði átt að vera hægt að leysa málið STRAX.”

Félagslegt hjálparstarf frekar en íþróttastarf

Brynjar Karl segir starfið sem Aþena vinni í hverfinu vera því ómissandi og hefur áhyggjur af því hver taki við því hlutverki. Niðurlögn meistaraflokksins skapi óvissu fyrir aðra starfsemi þar sem allir yngri flokka þjálfarar félagsins eru leikmenn meistaraflokks.

„Reykvíkingar þurfa að átta sig á því að starfsemi Aþenu líkist að mörgu leyti félagslegu hjálparstarfi, á borð við starf Samhjálpar, frekar en hefðbundnu starfi stóru hverfafélaganna í Reykjavík,“ segir Brynjar Karl og bætir við:

„Það er alvarlegt að leggja meistaraflokkinn niður. Enn alvarlegra er að allir þjálfarar félagsins eru leikmenn hans. Þær hafa byggt upp einstaka þekkingu, reynslu og traust í starfi með stelpunum okkar og þeim fjölbreyttu félagslegu áskorunum sem margar þeirra glíma við. Þær eru þær sem hafa þekkinguna, tengslin og raunverulegan áhuga á að sinna starfinu.“

Borginni sé sama um Breiðholtið

Skortur borgarinnar til samstarfs undirstriki skort hennar á áhuga á því að takast á við vandamál í Efra-Breiðholti.

„Forsvarsmenn Aþenu hafa lengi bent á vanhæfni borgarinnar til að takast á við þær áskoranir sem fylgja 111 Reykjavík. Því hefur verið mætt með grófri valdníðslu,“ segir Brynjar Karl meðal annars í færslunni.

Þau í Aþenu gefist þó ekki upp.

„Við munum berjast til síðasta blóðdropa fyrir ungviðið, þótt borgin virðist vilja kæfa afreksstarfið og telja það ekki eiga heima í afrekaminnsta hverfi borgarinnar,”

„Reynið svo að sannfæra mig um að 111 Reykjavík sé ekki kerfisbundið jaðarsett af borginni.”

Færsla Brynjars Karls í heild:

Það er með mikilli sorg sem ég upplýsi okkar ótrúlega stuðningsfólk og verndarengla um að Aþena neyðist til að draga lið sitt úr Bónusdeild kvenna. Liðið tapaði aðeins einum leik í 1. deild á síðasta tímabili og vann sér sæti beint í úrvalsdeild.

Ég treysti að þetta verði eina skrefið í átt að niðurlagningu starfsemi Aþenu það sem eftir lifir sumars. Ákvörðunina verður að taka núna, af virðingu fyrir Bónusdeildinni, svo hún fái tækifæri til að fylla skarðið í tæka tíð.

Ástæðan er einföld. Forsvarsmenn Aþenu hafa lengi bent á vanhæfni borgarinnar til að takast á við þær áskoranir sem fylgja 111 Reykjavík. Því hefur verið mætt með grófri valdníðslu sem hefur ekki farið fram hjá vinum mínum á Facebook. Við höfum náð að berja það af okkur, en eftir lifir spilling í reykfylltum bakherbergjum. Nú ríkir veruleg skekkja í samstarfinu við Reykjavíkurborg. Við höfum ítrekað óskað eftir endurnýjun rekstrarsamningsins, sem var tekinn af okkur sem hluti af valdníðslunni, og aðstöðu í formi fundar- og kennslurýmis.

Fundar- og kennslurýmið er mikilvægt til að halda áfram að byggja upp starfið með þeim hætti sem við teljum nauðsynlegan til að auka virði barnanna, með stuðningi við heimanám, íslenskukennslu fyrir stóran hóp iðkenda og leiðtogaþjálfun, sem er ein mesta sérstaða félagsins. Við teljum einnig að bætt aðstaða muni laða að þjálfara, en það hefur verið nánast vonlaust að fá utanaðkomandi þjálfara til starfa í þessu umhverfi.

Hver króna í starfsemina, hvort sem um er að ræða kynningarstarf, laun þjálfara, tól eða tæki, kemur frá einkaaðilum. Ómæld vinna hefur verið lögð í uppbyggingu félagsins og í að halda utan um unga fólkið, vinna sem enginn skilur nema hafa starfað með okkur. Því er óeðlilegt að borgin endurnýi ekki samninginn. Hann er nauðsynlegur til að tryggja tilverurétt Aþenu og koma í veg fyrir að geðþóttaákvarðanir embættismanna eða borgarfulltrúa ráði framtíð félags sem hefur náð framúrskarandi árangri.

Málið er sérstaklega sárt þar sem Aþena hefur rekið starfsemina í Austurbergi af miklum metnaði. Árangurinn hefur verið magnaður í öllum aldursflokkum í hverfi þar sem þátttaka í íþróttum hefur lengi verið með því minnsta sem gerist í borginni og gæði starfsins oft ófullnægjandi.

Í allri hreinskilni sé ég ekki hvernig nokkur aðili á að ná árangri í hverfinu við þessar aðstæður. Nýr meirihluti hefur vitað af stöðunni í fimm vikur, það er að óvissan hindraði Aþenu í að semja við leikmenn og þjálfara og setti þar með afreksstarfið í uppnám. Hinn nýji meirihluti hefur ekki treyst sér til að leysa málið STRAX.

Okkur þykir furðulegt að nýjum meirihluta finnist málið ekki meira áríðandi og leysi það STRAX, enda hefur það velkst lengi um hjá borginni og okkar mál voru kynnt ítarlega í kosningabaráttunni. Lausnin snýst ekki um fjármagn heldur velvilja og viðurkenningu á starfinu. Þar sem ekki er ágreiningur um fjárhæðir hefði átt að vera hægt að leysa málið STRAX.

Reykvíkingar þurfa að átta sig á því að starfsemi Aþenu líkist að mörgu leyti félagslegu hjálparstarfi, á borð við starf Samhjálpar, frekar en hefðbundnu starfi stóru hverfafélaganna í Reykjavík.

Það er alvarlegt að leggja meistaraflokkinn niður. Enn alvarlegra er að allir þjálfarar félagsins eru leikmenn hans. Þær hafa byggt upp einstaka þekkingu, reynslu og traust í starfi með stelpunum okkar og þeim fjölbreyttu félagslegu áskorunum sem margar þeirra glíma við. Þær eru þær sem hafa þekkinguna, tengslin og raunverulegan áhuga á að sinna starfinu.

Finna þarf lausn fyrir um 120 stelpur í 111 Reykjavík sem Aþenu hefur tekist að ná til, virkja og halda utan um. Þetta eru börn og ungmenni sem þurfa stöðugleika, traust og öruggt umhverfi.

Ég hef komið að þjálfun og rekstri íþróttafélaga í nær fjóra áratugi, en aðstæðurnar í Efra-Breiðholti eru engu líkar. Þær koma mér enn á óvart, fjórum árum eftir að við hófum starfsemi í Austurbergi.

Við munum berjast til síðasta blóðdropa fyrir ungviðið, þótt borgin virðist vilja kæfa afreksstarfið og telja það ekki eiga heima í afrekaminnsta hverfi borgarinnar.

Reynið svo að sannfæra mig um að 111 Reykjavík sé ekki kerfisbundið jaðarsett af borginni.

I rest my case, Your Honor.

Punktar:

- Borgin er ekki beðin um fjármagn, aðeins um að endurnýja rekstrarsamning og gefa Aþenu leyfi til að byggja upp kennslu- og fundarými á eigin kostnað, til að tryggja áframhaldandi uppbyggingu.

- 11 börn úr 11.000 manna hverfinu tóku þátt í íþróttastarfi í Austurbergi áður en Aþena hóf starfsemi þar. Þátttaka barna í íþróttastarfi er lang lægst í 111 RVK.

- Aþena hefur þegar sýnt fram á mikinn árangur, bæði í fjölgun iðkenda, uppbyggingu liða og starfi í Austurbergi.

- Um 120 stúlkur í 111 Reykjavík treysta á starfið, þar á meðal stór hópur sem íþróttakerfið hefur annars átt erfitt með að ná til. Hópurinn stækkar um 30 börn á hverju ári.

- Starfið er öflugt forvarnarstarf sem veitir börnum öruggt umhverfi, fasta rútínu, tilheyringu og trausta fullorðna.

- Það er nú þegar óumdeilt að starf Aþenu sparar velferðarkerfi Reykjavíkurborgar hundruð milljóna á ári í útgjöld vegna félagslegra erfiðleika barna.

- Meistaraflokkurinn er ekki bara afreksstarf heldur grunnur að starfi yngri flokka, því leikmenn liðsins eru jafnframt þjálfarar, fyrirmyndir og burðarásar félagsins. Ef meistaraflokkurinn hverfur tapast þjálfarar, þekking og traust sem hefur tekið mörg ár að byggja upp.

- Aþena styður beint við markmið borgarinnar um jafnrétti, inngildingu, lýðheilsu, forvarnir og jöfn tækifæri barna.

- Hver vika í óvissu veldur raunverulegu tjóni, því leikmenn, þjálfarar, foreldrar og styrktaraðilar þurfa að taka ákvarðanir núna.

- Það tók mörg ár að byggja starfið upp en aðeins nokkrar vikur að eyðileggja það. Þess vegna þarf borgin að klára málið STRAX.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×