Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Kristján Már Unnarsson skrifar 19. júlí 2026 07:37 Breikka á Vesturlandsveg á Kjalarnesi á kaflanum milli Grundarhverfis og Hvalfjarðarganga. Vísir/Vilhelm Vegagerðin hefur boðið út breikkun 5,6 kílómetra kafla Vesturlandsvegar um Kjalarnes milli Vallár og Hvalfjarðarvegar. Gert er ráð fyrir að verkinu verði lokið 30. september 2029, eftir þrjú ár. Þetta er sex ára seinkun frá fyrri áætlunum.
Upphaflega stóð til að breikkun hringvegarins um Kjalarnes, á öllum kaflanum milli Kollafjarðar og Hvalfjarðarganga, myndi ljúka árið 2023, samkvæmt aðgerðaáætlun fyrir tímabilið 2019 til 2023. Fyrri áfanganum, milli Kollafjarðar og Vallár, lauk sumarið 2023, einnig eftir seinkun, og var þá kynnt að seinni áfanginn yrði boðinn út það sama ár. Vesturlandsvegur verður breikkaður að gatnamótum Hvalfjarðarvegar við gangamunna Hvalfjarðarganga á Kjalarnesi.VÍSIR/VILHELM Þannig sagði upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, G. Pétur Matthíasson, í viðtali við Morgunblaðið þann 2. desember 2023 að þessi seinni hluti breikkunar þjóðvegarins um Kjalarnes yrði boðinn út „fyrir jólin“. Tekið var fram í fréttinni að það væri nokkru seinna en upphaflega var lagt upp með. Veglína Vesturlandsvegar um Kjalarnes, milli Hvalfjarðarganga og Kollafjarðar. Fyrri áfanganum er lokið.Vegagerðin/Efla Í frétt Stöðvar 2 fyrir tveimur árum kom fram að breikkunin á Kjalarnesi hefði ásamt fleiri stórverkefnum verið sett í salt einkum vegna þess að kostnaður við Hornafjarðarfljót fór langt fram úr fjárheimildum. Til að fjármagna það verk hefði þurft að flytja peninga úr öðrum verkum. Vegarkaflinn, sem núna er loksins búið að bjóða út, verður breikkaður úr núverandi tveggja akreina vegi í 2+1 og 2+2 veg með aðskildum akbrautum. Samkvæmt lýsingu Vegagerðarinnar verða gerð tvö ný hringtorg og tvenn ný undirgöng, annars vegar við Grundarhverfi og hins vegar við Arnarhamar. Svona breytist vegurinn við Blikdalsá, samkvæmt myndum úr matskýrslu Eflu fyrir Vegagerðina frá árinu 2020.Vegagerðin/Verkís Þörf er á einhverjum fergingum þrátt fyrir að farið hafi verið af stað með töluvert af þeim í framkvæmdum við fyrri áfanga breikkunar. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar, Veitna, Ljósleiðarans og Mílu. Tilboðsfrestur rennur út þriðjudaginn 8. september 2026.
Samgöngumál Vegagerð Reykjavík Samgönguáætlun Umferðaröryggi Akranes Kjósarhreppur Hvalfjarðarsveit Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Tengdar fréttir Þolinmæði íbúa vegna Vesturlandsvegar á þrotum Íbúar á Vesturlandi kröfðust úrbóta á Vesturlandsvegi um Kjarlarnes á íbúafundi um samgöngumál á Akranesi í kvöld. Ráðherra segist hafa skilning á kröfum íbúanna. 24. janúar 2018 22:30 Breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes boðin út í næstu viku Fyrsti áfanginn í breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes verður boðinn út í næstu viku. Miðað er við að framkvæmdir hefjist síðsumars og að verkinu í heild verði lokið eftir þrjú ár. 1. júlí 2020 23:04 Vegagerðin segir að framkvæmdum á Kjalarnesi seinki ekki Þrátt fyrir tilfærslur á fjárveitingum verða verklok árið 2022, 4. febrúar 2019 15:36 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira
Þolinmæði íbúa vegna Vesturlandsvegar á þrotum Íbúar á Vesturlandi kröfðust úrbóta á Vesturlandsvegi um Kjarlarnes á íbúafundi um samgöngumál á Akranesi í kvöld. Ráðherra segist hafa skilning á kröfum íbúanna. 24. janúar 2018 22:30
Breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes boðin út í næstu viku Fyrsti áfanginn í breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes verður boðinn út í næstu viku. Miðað er við að framkvæmdir hefjist síðsumars og að verkinu í heild verði lokið eftir þrjú ár. 1. júlí 2020 23:04
Vegagerðin segir að framkvæmdum á Kjalarnesi seinki ekki Þrátt fyrir tilfærslur á fjárveitingum verða verklok árið 2022, 4. febrúar 2019 15:36