Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. júlí 2026 18:28 Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri í Hvalfirði hefur áhyggjur af ástandi vega. Vísir Vegir og gatnamót í Hvalfjarðarsveit eru komnir að þolmörkum að sögn sveitarstjóra sem segir of mörg alvarleg umferðarslys verða í Hvalfirði. Hann kallar eftir tafarlausu samtali við stjórnvöld vegna málsins og segir ekki hægt að bíða lengur eftir aðgerðum.
Í aðsendri grein sveitarstjórans á Vísi eru sex gatnamót í sveitarfélaginu nefnd sérstaklega og vill sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar að Vegagerðin taki þau til heildstæðrar endurskoðunar. Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri segir umferði um þjóðveg 1 í gegnum Hvalfjarðarsveit vera gríðarlega og aukast dag frá degi. „Ökumenn sem eru að koma af þessum hliðarvegum innan úr Hvalfirði, innan úr Melasveit og af Akranesafleggjaranum eiga náttúrulega í stökustu vandræðum með að komast út á þjóðveginn og þurfa að gæta færis. Síðan er hitt að við horfum upp á framúrakstur, gríðarlega mikinn framúrakstur á krítískum svæðum, þannig mér gengur það til að benda á þá möguleika sem liggja beinast við nú þegar.“ Meðal þess sem sveitarfélagið vill að verði skoðað er hringtorg þar sem það á við, aðskildar beygjuakreinar, bætt lýsing, merkingar, hraðastýring og önnur úrræði. „Þetta eru skýr skilaboð til þeirra sem halda utan um bæði fjárveitingavaldið og síðan ákvörðunavaldið í vegamálum. Við þurfum líka bara að fá að komast að borðinu og eiga beint samtal af því þetta snertir náttúrulega okkar samfélag í Hvalfjarðarsveit beint bæði með tilliti til þeirra sem eru að fara í skóla, sækja atvinnu og ferðast um svæðið. Og síðan aftur þessi sívaxandi umferð í gegnum sveitina okkar, hún kallar á aðgerðir.“ Töluverður tími sé síðan gatnamótin hafi verið komin að þolmörkum. „Því miður eru of mörg dæmi þess að það hafi orðið alvarleg umferðarslys, þannig við megum ekki bíða og vona að þetta reddist núna í framhaldinu, heldur þurfum við að fara í aðgerðir.“
Hvalfjarðarsveit Umferðaröryggi Umferð Vegagerð Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira