Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Samúel Karl Ólason skrifar 24. júlí 2026 08:34 Donald Trump stígur út úr nýju forsetaflugvélinni, sem var gjöf frá konungsfjölskyldunni í Katar. AP/Luis M. Alvarez Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur dregið til baka stefnur gegn blaðamönnum New York Times og fjölskyldumeðlimum þeirra vegna fréttaflutnings miðilsins um nýju forsetaflugvélina sem Donald Trump fékk gefins frá konungsfjölskyldu Katar. Alríkisdómari hafði skömmu áður gengið hart fram gegn lögmönnum ráðuneytisins varðandi það hvernig staðið hefði verið að stefnunum og sagði það illa gert.
Stefnunum var ætlað að þvinga þrjá blaðamenn til að bera vitni fyrir svokölluðum ákærudómstól og opinbera þar hverjir heimildarmenn þeirra vegna fréttar um meinta öryggisgalla á forsetaflugvélinni nýju væru. Þar að auki voru lagðar fram stefnur um símaupplýsingar móður eins blaðamanns og maka hinna tveggja. Lögmenn NYT segja stefnunum ætlað að ógna blaðamönnum og koma í veg fyrir fréttaflutning um ríkisstjórn Trumps. Áðurnefndur dómari sagði að starfsmönnum ráðuneytisins væri frjálst að stefna blaðamönnunum aftur, ef þeir gerðu það með réttum hætti. Hann gaf þó til kynna að hann væri líklegur til að hafna stefnunum þar sem reglur um sambærilegar stefnur gegn blaðamönnum segðu til um að þeim ætti að beita sem úrslitakosti í rannsóknum. Fyrst þyrfti að beita öllum öðrum leiðum til að reyna að öðlast nauðsynlegar upplýsingar. „Stefnur eiga að vera síðasta skrefið, ekki fyrsta skrefið, heldur síðasta skrefið,“ hefur AP fréttaveitan eftir Arun Subramanian. Í dómsal í gær sögðu lögmenn dómsmálaráðuneytisins að stefnurnar gegn fjölskyldumeðlimum blaðamannanna hefðu verið mistök. Eftir að stefnurnar voru dregnar til baka sendu forsvarsmenn dómsmálaráðuneytisins út yfirlýsingu þar sem Subramanian var gagnrýndur fyrir að ógna lögmönnum ráðuneytisins og meina þeim að útskýra hvernig rannsóknin hefði farið fram. Þá sagði í yfirlýsingunni að rannsókninni yrði haldið áfram. Reiður yfir frétt um flugvélina Trump ferðaðist á nýju þotunni sinni, sem hefur verið lýst sem fljúgandi höll, á leiðtogafund NATO í Tyrklandi fyrr í mánuðinum og stærði hann sig af henni þar. Stjórnvöld vörðu um fjögur hundruð milljónum dala í endurbætur og öryggisuppfærslur á lúxusflugvélinni frá Katar til að gera hana hæfa til að flytja forsetann. Eftir að hafa ferðast á henni til Tyrklands fór Trump þó á gömlu flugvélinni frá Tyrklandi og til Bretlands, þar sem hann fór aftur upp í flugvélina frá Katar og var flogið til Bandaríkjanna. NYT sagði þá frá því að lífverðir forsetans hefðu krafist þess þar sem nýju flugvélina skorti ýmsar öryggisráðstafanir, eins og flugskeytavarnir, sem þeir töldu nauðsynlegar. Trump er sagður hafa orðið reiður yfir þessum fréttaflutningi en NYT segir að strax í kjölfarið hafi Kash Patel, yfirmaður Alríkislögreglu Bandaríkjanna, fengið þá skipun frá Hvíta húsinu að rannsaka hvaða heimildarmenn blaðamenn NYT hefðu rætt við.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira