Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Samúel Karl Ólason skrifar 28. júlí 2026 15:18 Robert F. Kennedy, heilbrigðisráðherra, stendur hér fyrir aftan Donald Trump, forseta. Sá síðarnefndi er sagður ósáttur við hve illa RFK mun hafa gengið í að tengja bólusetningar barna við einhverfu. EPA/TOM BRENNER Donald Trump spurði Robert Kennedy yngri, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, að því í vor af hverju hann væri ekki að gera meira til að kanna tenginguna milli bólusetninga barna og einhverfu. Forsetinn sakaði ráðherrann sinn um aðgerðakvíða.
Trump vill meðal annars að dregið verði úr þeim fjölda bólusetninga sem stjórnvöld vestanhafs mæla með fyrir börn. Þegar þeir Trump og RFK, eins og Kennedy er gjarnan kallaður, voru að spila golf í maí byrjaði Trump að þrýsta á ráðherrann. Síðan þá hefur hann notað hvert tækifæri til að þrýsta á Kennedy, samkvæmt heimildum Wall Street Journal. Í síðasta mánuði er Trump sagður hafa gagnrýnt Kennedy harðlega fyrir að ganga ekki nógu hart fram í málinu. Trump er sagður ósáttur við að ráðherrann hafi ekki náð meiri árangri á einu og hálfu ári. Þrýstingurinn er sagður hafa komið RFK verulega á óvart. Hann er þekktur fyrir að vera andstæðingur bólusetninga og hefur um árabil dreift samsæriskenningum og þvælu um bólusetningar. Hann hefur lengi gefið í skyn að einhverfa tengist notkun bóluefna. Þær hugmyndir koma að miklu leyti frá umdeildri rannsókn sem var seinna meir dregin til baka og þá meðal annars vegna fjárhagslegra hagsmunaárekstra höfundar hennar. Síðan þá hafa rannsóknir ítrekað sýnt fram á að engin tenging er á milli bólusetninga og einhverfu. Báðu RFK um að stíga varlega til jarðar Trump hefur margsinnis velt vöngum yfir því opinberlega hvort bóluefni valdi einhverfu. Það sem kom Kenndy hvað mest á óvart, samkvæmt WSJ, var að ráðgjafar Trumps höfðu áður beðið hann sérstaklega um að draga úr áróðri varðandi bólusetningar vegna þingkosninganna í haust. Í lok maí skrifaði Trump undir forsetatilskipun þar sem hann krafðist þess að heilbrigðisráðuneytið fækkaði ráðlegðum bóluefnaskömmtum. Það kom starfsmönnum ráðuneytisins á óvart, þar sem starfsmenn Trumps höfðu áður farið fram á að minna væri talað um bóluefni. Trump er sagður líta svo á að það að draga úr einhverfu í Bandaríkjunum gæti verið ein helsta arfleifð hans. Sjá einnig: Segist ætla að finna orsök einhverfu fyrir september Tilraunir ráðuneytisins til að fækka ráðlegðum bóluefnaskömmtum hafa verið stöðvaðar af dómara og er Trump sagður hafa hvatt Kennedy til að fara í hart gegn umræddum dómara. Talsmaður Trumps sagði í samtali við WSJ að óteljandi fjöldi foreldra í Bandaríkjunum hefði spurningar og áhyggjur vegna fjölda einhverfra barna, sem hann sagði fjölga gífurlega hratt. Allt of lengi hefði vandinn verið hundsaður eða hæðst að honum en það ætlaði Trump ekki að gera. Auðskýranleg fjölgun Einhverfa er taugaþroskaröskun, ekki sjúkdómur, og kemur yfirleitt fram snemma í barnæsku. Eins og segir á vef Heilsuveru, birtast einkenni oft á ólíkan hátt hjá einstaklingum og geta verið mismörg og af mismiklum styrkleika. Til að lýsa þessum margbreytileika er notað hugtakið einhverfuróf. Skráðum tilfellum einhverfu hefur farið fjölgandi á undanförnum áratugum en það felur ekki endilega í sér að raunverulegum tilfellum hafi farið fjölgandi. Fyrir því eru að mestu tvær meginástæður. Önnur er að skilgreining einhverfu er víðari en hún var og foreldrar eru líklegri en áður til að fara með börn í greiningu. Einn sérfræðingur segir í samtali við AP að fjölgunin hafi að mestu átt sér stað í tilfellum sem hægt er að kalla mildari einhverfu, sem hafa í gegnum árin verið kölluð öðrum nöfnum eða skilgreind öðruvísi. Rannsóknir hafa sýnt að einhverfa virðist að mestu bundin við gen fólks og hafa nokkur hundruð gen fundist sem talin eru tengjast einhverfu. Genin geta erfst milli kynslóða, jafnvel þó foreldrar sýni engin einkenni og þar að auki geta stökkbreytingar átt sér stað þegar heilinn er í þróun. Aðrir þættir sem eru taldir spila inn í eru aldur föður, lengd meðgöngu og heilsa móður við meðgöngu.
Bandaríkin Donald Trump Bólusetningar Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira