Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Eiður Þór Árnason skrifar 30. júlí 2026 09:27 Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, var nýbúinn að funda með Úkraínuforseta þegar fregnir bárust af flauginni. Vísir/EPA Rússnesk Kh-101 stýriflaug á leið til Úkraínu lenti í Póllandi í nótt. Þetta segir Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu. Władysław Kosiniak-Kamysz, varnarmálaráðherra Póllands, segir að „líklegast“ hafi verið um að ræða Kh-101 stýriflaug sem skotið er úr lofti.
Ef rétt reynist gæti þetta talist eitt alvarlegasta rof á lofthelgi NATO-ríkis frá því að allsherjarárás Rússa á Úkraínu hófst árið 2022. The Guardian greinir frá þessu. Ekki hefur verið greint frá manntjóni eða skemmdum í Póllandi vegna flaugarinnar. Minnst átta manns létust og tugir særðust í hörðum árásum Rússa á Úkraínu í nótt. Ireneusz Nowak, yfirmaður pólska flughersins, segir að Rússar hafi skotið 20 til 22 Kh-101 stýriflaugum inn í Úkraínu í nótt sem hluta af árásum sínum á landið og tvær þeirra hafi talin geta ógnað landsvæði Póllands. F-16 orrustuþota hafi verið send á loft til að fylgja einni stýriflauginni eftir og flugmaður orðið vitni að því þegar hún hrapaði á óbyggðu svæði. Flaugin hrapaði nálægt þorpinu Tarnawa-Kolonia, um 80 kílómetrum frá landamærum Póllands og Úkraínu. Fundið brak um tvo kílómetra frá næstu byggingum Pólska lögreglan segir að lögreglumenn sem rannsökuðu tilkynningar um háan hvell hafi „fundið brak og dreifðar leifar af óþekktum hlut á akri um tvo kílómetra frá næstu byggingum.“ Atvikið átti sér stað aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Volodimír Selenskí Úkraínuforseti fundaði í Lublin með Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands. Verið er að „kortleggja“ slysstaðinn og verður hann rannsakaður ítarlega, að sögn Grzegorz Trusiewicz, saksóknara í borginni Lublin í Póllandi. Hann bætir við að Úkraína hafi óskað eftir því að taka þátt í rannsókn Pólverja. Tusk boðaði til neyðarfundar Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, boðaði til neyðarfundar um atvikið með háttsettum fulltrúum hersins og neyðarþjónustunnar í morgun. Hann staðfesti að „flaug“ hafi fallið á pólska grund og segir að „það líti út fyrir“ að það hafi verið rússnesk Kh-101 stýriflaug, líkt og Úkraína greindi frá. Hann sagði atvikið „alvarlegt“ en staðfesti að ekkert manntjón eða skemmdir hafi orðið. Pólland hafi verið viðbúið að skjóta flaugina niður ef hún hefði haldið áfram flugi sínu inn á pólskt yfirráðasvæði. Skorti loftvarnarflaugar Rússar skutu 74 flaugum og 284 drónum á skotmörk í Úkraínu í nótt. Manntjón varð aðallega í Dníprópetrovsk- og Lvív-héruðum. Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir þetta sýna enn og aftur að það sé mikilvægast af öllu að geta varið sig gegn loftárásum Rússa. Bætti hann við að Úkraína stæði frammi fyrir „alvarlegum skorti á loftvarnarflaugum frá samstarfsaðilum okkar.“ António Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, fordæmir árásirnar á Úkraínu og rof á lofthelgi Póllands í yfirlýsingu. „Árásargirni Rússa er ógn við öryggi Evrópu í heild sinni.“ Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir að það sé „óvenjuleg tilviljun“ að atvikið hafi átt sér stað aðeins nokkrum klukkustundum eftir fund hans með forseta Úkraínu þar sem þeir ræddu tvíhliða samstarf, þar á meðal loftvarnir. „Selenskí hafði varað mig við því að þeir hefðu nákvæmar upplýsingar um yfirvofandi stórfellda árás Rússa“ á Úkraínu, sagði Tusk. Fréttin hefur verið uppfærð.
Úkraína Pólland Rússland Innrás Rússa í Úkraínu NATO Tengdar fréttir Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Þrettán eru látnir, þar af fjögur börn, í loftárásum Rússa á borgir Úkraínu í nótt. Að minnsta kosti sex létust í borginni Kryvyi Rih, þar af fimm og tólf ára stúlkur. Þá létust sex í héruðunum Dnipropetrovsk og Poltava, þar af tvö börn. Úkraínumenn hafa verið hvattir til að leita skjóls. 30. júlí 2026 07:21 Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Innlent Fleiri fréttir Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Sjá meira
Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Þrettán eru látnir, þar af fjögur börn, í loftárásum Rússa á borgir Úkraínu í nótt. Að minnsta kosti sex létust í borginni Kryvyi Rih, þar af fimm og tólf ára stúlkur. Þá létust sex í héruðunum Dnipropetrovsk og Poltava, þar af tvö börn. Úkraínumenn hafa verið hvattir til að leita skjóls. 30. júlí 2026 07:21