Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Magnús Jochum Pálsson skrifar 31. júlí 2026 14:30 Paul George mun ekki leika Heródes í Jesus Christ Superstar í kjölfar gagnrýni og hneykslunar sem gervigreindarlag hans til stuðnings Ísrael vakti. EPA Tónlistarmaðurinn Boy George hefur hætt við að leika Heródes í nýrri uppfærslu á Jesus Christ Superstar í Lundúnum aðeins nokkrum dögum eftir útgáfu hans á gervigreindarlaginu „We Will Dance Again“ sem hann samdi til stuðnings hernaði Ísraels í Palestínu. Umboðsmaður Boy George sagði að sýningarinnar vegna hefði hann ákveðið að söngvarinn yrði ekki með í henni. „
Að vandlega íhuguðu máli, hef ég ákveðið, í krafti stöðu minnar sem umboðsmaður Boy George að hann muni ekki koma fram í Jesus Christ Superstar í London Palladium,“ sagði Paul Kemsley, umboðsmaður tónlistarmannsins, í tilkynningu á Instagram í gærkvöldi. „Ákvörðunin hefur verið tekin af virðingu fyrir framleiðendunum, listræna teyminu og öllu leikfélaginu. Við erum þakklát fyrir fagmennskuna og skilninginn sem þau hafa sýnt okkur gegnum ferlið og óskum öllum viðriðnum velgengni með framleiðsluna,“ sagði hann einnig. „Við gerum okkur jafnframt grein fyrir því að margir hafi keypt miða í von um að sjá George koma fram. Við biðjum þá aðdáendur innilega afsökunar vegna vonbrigðanna sem þessi ákvörðun veldur og við erum afar þakklátir fyrir áframhaldandi tryggð og stuðning þeirra.“ „Það skiptir ekki máli hvað mér eða öðrum finnst,“ segir Boy George.Getty Kemsley greindi ekki frá ástæðunni fyrir ákvörðuninni en sagðist hafa tekið hana með hag sýningarinnar að leiðarljósi. „George hefur aldrei verið hræddur við að standa með sinni sannfæringu og ég hef alltaf borið virðingu fyrir honum vegna þess. Ég tel það jafnframt vera á mína ábyrgð að taka ákvarðanir sem eru í hag umbjóðanda míns samhliða því að sýna öðrum virðingu. Í þessu tilfelli fannst mér rétt að stíga til hliðar og leyfa framleiðslunni að vera í miðpunkti og tryggja á sama tíma að allir sem eru viðriðnir geti haldið áfram af gagnkvæmri virðingu og velvild.“ Boy George átti að leika Herodes í uppfærslu sýningarinnar sem fjallar um ofsóknirnar í garð Jesúsar sem lauk með krossfestingu hans. George átti að deila hlutverkinu með fjórum öðrum leikurum, Julian Clary, Jesse Tyler Ferguson, Layton Williams og Richard Armitage, en sá síðastnefndi mun taka við af George. Segir þjóðarmorðið vera stríð Boy George gaf út reggílagið „עוד נרקוד“ sem heitir á ensku „We Will Dance Again“ á samfélagsmiðlinum X (áður Twitter) á mánudaginn 27. júlí. Þar svarar tónlistarmaðurinn þeim sem hafa gagnrýnt þjóðarmorð Ísraela á Palestínubúum síðastliðin þrjú ár. #Shalom pic.twitter.com/0BfHIrThzO— Boy George (@BoyGeorge) July 26, 2026 „You say genocide, I say war / When you’re attacked, that’s what the army’s for/ Does it get ugly? You bet it does / When I know you wanna kill every last one of us,“ segir meðal annars í laginu. „Þú segir þjóðarmorð, ég segi stríð / Þegar ráðist er á þig, er herinn til þess / Verður það ljótt? Þú getur bókað það / Þegar ég veit að þú vilt drepa hvern einasta okkar,“ hljómar hann íslenskaður. George gagnrýnir jafnframt í laginu aðra tónlistarmenn sem hafa lýst yfir stuðningi við Palestínu og syngur um árás Hamas á ísraelsku tónlistarhátíðina Nova Music Festival þar sem 378 Ísraelar voru drepnir og 44 teknir í gíslingu. Lagið vakti mikla hneykslan á samfélagsmiðlum, fjöldi fólks gagnrýndi tónlistarmanninn og var í kjölfarið kallað eftir mótmælum við Palladium-leikhúsið. Myndin sem Boy George deildi. Boy George brást sjálfur við tilkynningunni um að hann væri hættur í sýningunni með því að birta gervigreindarmynd af sér með yfirvaraskegg í anda Groucho Marx þar sem á stóð: „Til að vísa í Groucho Marx þá myndi ég aldrei vilja vera hluti af neinum klúbbi sem vill ekki hafa mig sem meðlim.“s it is!” Heiti lagsins er vísun í slagorðið „Við munum dansa á ný“ sem Ísraelar hafa notað til að undirstrika að þeir muni hafa betur gegn Palestínubúum og dansa á ný, líkt og þeir gerðu á Nova-hátíðinni. Boy George svaraði gagnrýni lagið með því að segja að það skipti engu máli hvað fólki fyndist. „Það skiptir ekki máli hvað mér eða öðrum finnst. Hvenær munuð þið fatta að þið eruð ekki að gera neitt. Það er fokking brandari. Það hefur meira að segja slest upp á vinskap minn við gyðingavini mína. Brjálæðið á sér engin takmörk,“ skrifaði George í færslu á X.
Bretland Leikhús Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Tónlist Hollywood Mest lesið Hvað veistu um… textana hans Bubba? Lífið Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Lífið Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Gagnrýni Sögufrægt verslunarhús til sölu Lífið Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Tíska og hönnun Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lífið Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi Lífið Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Lífið Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Menning Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Lífið samstarf Fleiri fréttir Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Sjá meira