Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Samúel Karl Ólason skrifar 5. ágúst 2026 22:10 Bandarísk herskip á ferð um Arabíu-haf í júní. Átökin gegn Íran eru sögð hafa gengið verulega á vopanbirgðir Bandaríkjanna. Sjóher Bandaríkjanna Bandaríkjamenn hafa gengið verulega á birgðir af ýmsum nútímavopnum vegna átakanna við Íran. Þetta á sérstaklega við langdræg og nákvæm vopn eins og ATACM-eldflaugar og Tomahawk-stýriflaugar. Einnig hafa forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna áhyggjur af því hve mörg flugskeyti í loftvarnarkerfi hafa verið notuð í stríðinu.
Samkvæmt heimildum Reuters hafa bandarískir herforingjar Bandaríkjanna áhyggjur af því að tómar hillur í vopnabúrum þeirra muni koma niður á getu þeirra til að takast á við átök í framtíðinni. Einn heimildarmaður fréttaveitunnar sagði að búið væri að nota „svo gott sem allar“ ATACMS-eldflaugar og PrSM-eldflaugar Bandaríkjanna. ATACMS eru skammdrægar eldflaugar sem hafa verið lengi í notkun en þær hafa meðal annars reynst Úkraínumönnum vel. PrSM er nýjasta útgáfa eldflauganna og er ætlað að leysa ATACMS af hólmi. Hver eldflaug kostar meira en milljón dala í framleiðslu. Þetta felur meðal annars í sér að endi Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, á því að standa við ítrekaðar hótanir sínar um nýjar umfangsmiklar árásir á Íran munu Bandaríkjamenn þurfa að reiða sig meira á skammdrægri vopn sem er í mörgum tilfellum varpað af eða skotið frá herþotum. Það setur flugmenn í aukna hættu. Vopnin yrðu sérstaklega mikilvæg ef til átaka kæmi milli Bandaríkjanna og annars ríkis eða ríkja sem búa yfir öflugum loftvörnum, eins og Kína. Yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum (CENTCOM) er sögð hafa fengið birgðir úr vopnabúrum Bandaríkjanna annars staðar í heiminum vegna átakanna gegn Íran. Í yfirlýsingum til Reuters segja Donald Trump og hans starfsfólk að Bandaríkjamenn eigi meira af hergögnum en nokkur önnur þjóð heimsins og mun meira en þörf sé á. Þar að auki sé verið að auka framleiðslu. „Hergagnaframleiðendur okkar eru á þessari stundu að framleiða meira af hergögnum en nokkru sinni fyrr og þar að auki að auka framleiðslugetu og færa hana í nýjar hæðir,“ sagði Trump Þrátt fyrir það segir fréttaveitan að tölur um birgðastöðu Bandaríkjamanna hafi verið í dreifingu um Hvíta húsið og þar hafi margir spurt hve lengi Bandaríkin geti staðið í árásum á Íran, án þess að tæma hillurnar svo mikið að það komi niður á getu heraflans. Skortur á langdrægum vopnum gæti aukið hættuna sem bandarískir flugmenn standa frammi fyrir, ákveði Trump að hefja aftur umfangsmiklar árásir á Íran.Sjóher Bandaríkjanna Leiðtogar herafla Bandaríkjanna hafa um nokkurra vikna skeið varað Trump við því að birgðir á flugskeytum fyrir loftvarnarkerfi, eins og Patriot-kerfið, séu litlar. Sjá einnig: Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Bandaríska hugveitan Center for strategic & international studies birti í síðustu viku greiningu á birgðastöðu Bandaríkjamanna á flugskeytum í Patriot- og THAAD-loftvarnarkerfi. Áður en átökin hófust áætla sérfræðingar hugveitunnar að Bandaríkjamenn hafi átt 2.330 flugskeyti í Patriot og 452 í THAAD. Í síðustu viku var talið að fjöldinn væri 759-827 flugskeyti í Patriot og 234-278 í THAAD. Samkvæmt heimildum Reuters hefur einnig verið gengið mjög á birgðir sjóhers Bandaríkjanna af Tomahawk-stýriflaugum. Mismunandi útgáfur af þeim hafa verið í notkun frá 1983 en þeim er skotið af herskipum og kafbátum. Bandaríkjamenn eru sagðir hafa notað rétt tæplega helming birgða heraflans af stýriflaugunum. Varnarmálaráðuneytið hefur gert samning við Raytheon um að auka framleiðslu stýriflauganna á næstu árum, með því markmiði að bæta birgðastöðuna.
Bandaríkin Hernaður Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Tengdar fréttir „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að árásum Írana á bandaríska hermenn í Jórdaníu í nótt verði svarað af mikilli hörku. Bandaríkjamenn svöruðu árásum Írana með árásum á írakskar sveitir sem sæta skipunum klerkastjórnarinnar í Teheran en Trump segir þær árásir hafa verið gerðar í samráði við yfirvöld í Bagdad. 29. júlí 2026 13:08 Viðræður við Íran hefjist á morgun Donald Trump Bandaríkjaforseti segir viðræður við Íran um að binda enda á stríðið í Persaflóa munu hefjast á morgun, mánudag. Þær munu líklega fara fram í gegnum milliliði. 2. ágúst 2026 22:48 Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Bandaríkjaforseti segist ætla að fyrirskipa bandarískum hersveitum að bíða með frekari árásir á Íran og fullyrðir að bandamenn í Mið-Austurlöndum hafi náð saman um útlínur að samkomulagi sem muni binda enda á stríðið sem hefur staðið yfir í fimm mánuði. 2. ágúst 2026 08:36 Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Hlé á árásum Bandaríkjamanna og Írana í Mið-Austurlöndum varði stutt. Árásirnar hófust aftur eftir óvæntar árásir Írana á bandaríska hermenn í Jórdaníu og skip á Hormússundi. Árásir þessar voru gerðar af harðlínumönnum í Íran sem vilja ekki viðræður við Bandaríkjamenn og eru raknar til deilna innan stjórnvalda í Teheran. 1. ágúst 2026 16:01 Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira
„Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að árásum Írana á bandaríska hermenn í Jórdaníu í nótt verði svarað af mikilli hörku. Bandaríkjamenn svöruðu árásum Írana með árásum á írakskar sveitir sem sæta skipunum klerkastjórnarinnar í Teheran en Trump segir þær árásir hafa verið gerðar í samráði við yfirvöld í Bagdad. 29. júlí 2026 13:08
Viðræður við Íran hefjist á morgun Donald Trump Bandaríkjaforseti segir viðræður við Íran um að binda enda á stríðið í Persaflóa munu hefjast á morgun, mánudag. Þær munu líklega fara fram í gegnum milliliði. 2. ágúst 2026 22:48
Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Bandaríkjaforseti segist ætla að fyrirskipa bandarískum hersveitum að bíða með frekari árásir á Íran og fullyrðir að bandamenn í Mið-Austurlöndum hafi náð saman um útlínur að samkomulagi sem muni binda enda á stríðið sem hefur staðið yfir í fimm mánuði. 2. ágúst 2026 08:36
Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Hlé á árásum Bandaríkjamanna og Írana í Mið-Austurlöndum varði stutt. Árásirnar hófust aftur eftir óvæntar árásir Írana á bandaríska hermenn í Jórdaníu og skip á Hormússundi. Árásir þessar voru gerðar af harðlínumönnum í Íran sem vilja ekki viðræður við Bandaríkjamenn og eru raknar til deilna innan stjórnvalda í Teheran. 1. ágúst 2026 16:01