Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Kjartan Kjartansson og Áróra L Davíðsdóttir skrifa 10. ágúst 2026 13:50 Fólk þusti út á götur úr byggingum eftir að jarðskjálftinn fannst í Bogotá, höfuðborg Kólumbíu. Hún er í rfílega fjögur hundruð kílómetra fjarlægð frá upptökum jarðskjálftans. AP/Iván Valencia Jarðskjálfti af stærðinni 7,4 skók vestanverða Kólumbíu og nágrannaríkið Ekvador í dag. Minnst tuttugu og sex eru sagðir hafa látist og mikið tjón orðið á byggingum við upptök jarðskjálftans.
Upptök skjálftans voru á rúmlega hundrað kílómetra dýpi undir San José del Palmar í Chocó-héraði, um fjögur hundruð kílómetra vestur af kólumbísku höfuðborginni Bogotá, samkvæmt bandarísku og kólumbísku jarðfræðistofnunum. Minnst 26 eru sagðir hafa týnt lífi í jarðskjálftanum, þar af 18 í borginni Pereira í vesturhluta Kólumbíu. AP-fréttastofan vitnar í Nubia Córdoba, ríkisstjóra í Choco, sem segir fólk hafa slasast og að alvarlegar skemmdir hafi orðið á byggingum í færslu á samfélagsmiðlum. Minnst sjö flugvöllum í Kólumbíu hefur verið lokað tímabundið vegna skjálftans. Kólumbíska jarðfræðistofnunin segir jarðskjálftann þann stærsta þar í áratug. Umtalsverðar skemmdir hafi orðið á byggingum í borgununum Pereira, Calí og Quibdo. Annar turna dómkirkjunnar í Manizales hrundi ofan á kirkjuskipið eins og sjá má í myndum hér fyrir neðan í samfélagsmiðlafærslu ríkissjónvarpsstöðvarinnar Canal 1. #EnPunto | Así se ven a esta hora calles de Manizales tras el terremoto de este lunes en Colombia ⬇ pic.twitter.com/Bjl5VS6IWq— Canal 1 (@Canal1_Col) August 10, 2026 Fréttin verður uppfærð.
Kólumbía Ekvador Eldgos og jarðhræringar Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira