Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Kjartan Kjartansson skrifar 13. ágúst 2026 07:11 Trump Bandaríkjaforseti á samfélagsmiðilinn Truth Social. Þar birtir hans iðulega fyrst yfirlýsingu um stjórnarathafnir og stefnu. Hann er nú byrjaður að selja forgang að færslunum. AP/John Minchillo Fjölmiðill og félagasamtök sem berjast fyrir fjölmiðlafrelsi hafa stefnt Donald Trump Bandaríkjaforseta vegna sölu hans á forgangi að samfélagsmiðlafærslum hans. Þau halda því fram að salan sé spillt og stangist á við stjórnarskrá Bandaríkjanna.
Samfélagsmiðlafyrirtæki Trump, Truth Social, byrjaði um mánaðamótin að falbjóða forgang að færslum notenda miðilsins, þar sem Trump er sjálfur langfyrirferðarmestur. Með því að greiða fyrirtæki forsetans allt að hundrað þúsund dollara á mánuði geta fjármálafyrirtæki þannig fengið aðgang að færslum forsetans á undan öðrum. Færslur hans valda iðulega hreyfingum á mörkuðum. Nú hefur fjömiðillinn The Intercept og Fjölmiðlafrelsissjóðurinn (e. Freedom of Press Foundation) stefnt forsetanum vegna sölunnar. Í stefnunni er þjónustunni lýst sem „óvenjulegri, spilltri og andstæðri stjórnarskrá“. Þá telja stefnendurnir að salan brjóti gegn réttindum þeirra til þess að fá aðgang að yfirlýsingum forsetans á jafningagrundvelli á við aðra fjölmiðla og almenning, að því er segir í frétt Politico af stefnunni. Þeir krefjast þess að dómari leggi lögbann við sölunni. Þjónustan hefur sætt harðri gagnrýni. Bent hefur verið á að Trump og þeir sem kaupa þjónustan gætu gerst sekir um innherjasvik. Trump-fjölskyldan á um fjörutíu prósent hlutafjár í móðurfélagi Truth Social.
Donald Trump Bandaríkin Samfélagsmiðlar Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira