Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 13. ágúst 2026 22:22 Steingrímur vísar til reynslu sinnar í aðildaviðræðum sem hófust árið 2009 og stóðu til 2013. Vísir/Vilhelm Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi formaður Vinstri grænna, ætlar að greiða atkvæði gegn áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið þann 29. ágúst næstkomandi. Ástæðan sé meðal annars reynsla hans af viðræðunum árið 2009 en að þá hafi hvorki gengið né rekið að ræða undanþágur frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu.
Steingrímur J. Sigfússon gerði grein fyrir máli sínu bæði í skoðanagrein á Vísi í morgun en var einnig til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann segir tvennt vega þyngst í hans afstöðu gagnvart áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Annars vegar segist hann áfram vera þeirrar skoðunar að hagsmunum landsins sé betur borgið utan Evrópusambandsins. „Það falli betur að okkar sérstöðu, sérhagsmunum og svona landfræðilegri legu og sögu, liggur við að segja, af því að við erum nú tiltölulega nýlega sjálfstæð þjóð,“ segir hann. Hins vegar sé það hans reynsla af viðræðum við Evrópusambandið um aðild Íslands á árunum 2009 til 2013. Hann hafi ekki mikla trú á því að Evrópusambandið geti komið til móts við sérþarfir Íslands þegar kemur að sjávarútvegi og landbúnaði og óttast því að ferlið verði ekki þess virði. „Þetta tók óhemju tíma og orku og í lok þessa þriggja ára tímabils, í nóvember eða desember 2012, vorum við eiginlega engu nær. Allir mikilvægustu kaflarnir um sjávarútveg, landbúnað og byggðamál voru harðlokaðir og höfðu ekki verið opnaðir af hálfu Evrópusambandsins.“ Samningsmarkmið Íslands hafi verið afar skýr. Undanþága frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni, sjálfstætt fiskveiðistjórnunarsvæði og takmarkanir á fjárfestingum útlendinga voru megináherslur þáverandi stjórnar. „Þetta stóð auðvitað gífurlega í Evrópusambandinu og þeir voru ekkert tilbúnir til að opna viðræður um sjávarútveginn á þessum forsendum.“ „Niðurstaðan var þessi að eftir þriggja ára þóf vorum við sáralitlu nær nema við vissum þetta, að Evrópusambandið væri ekki tilbúið til að opna kaflana til viðræðna á þeim forsendum sem við lögðum upp með.“ Samningssvigrúm ESB sé mjög takmarkað Steingrímur efast, þrátt fyrir að Ísland sé í betri stöðu til þess að vera með samningskröfur nú en þá, um að svigrúm sambandsins til að veita Íslandi undanþágur og sérlausnir við inngöngu sé mikið. „Menn verða að átta sig á því að það er ekki einfalt fyrir Evrópusambandið að taka inn nýtt aðildarríki og veita því víðtækar undanþágur og sérlausnir, hvað þá varanlegar, sem hin aðildarríkin og þau sem eru í klúbbnum fengu ekki.“ „Það er ekki endilega af óvilja og ekki endilega vegna þess að Evrópusambandið skortir áhuga á því að fá Ísland með, þeirra samningssvigrúm er bara mjög takmarkað. Þetta er bara eðlilegt og við eigum að horfast í augu við það og ekki vera með einhverjar skýjaborgir um að staðan sé öðruvísi en hún er.“ Rúmlega áttatíu prósent kjósenda VG ætla að segja já Stefna Vinstri grænna hefur ætíð verið að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins. Líkt og Steingrímur hefur Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður flokksins, lýst því yfir að hún hyggist segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst. Aftur á móti hafa bæði núverandi formaður Vinstri grænna, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, og varaformaður, Bjarki Hjörleifsson, lýst því yfir að þau ætli að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni, en það er þvert á stefnu flokksins. Rúmlega áttatíu prósent kjósenda flokksins hyggjast segja já við áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið og Rósa sagðist finna fyrir viðhorfsbreytingu innan flokksins.
Vinstri græn Utanríkismál Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Bylgjan Reykjavík síðdegis Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira