Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Samúel Karl Ólason skrifar 21. ágúst 2026 10:09 Christopher LaNeve, starfandi forseti herforingjaráðs Bandaríkjanna. AP/J. Scott Applewhite Forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna hafa ákveðið að hætta tilraunum með sérstaka drónahersveit, sem hefur verið staðsett í Evrópu, og reynt að læra af reynslu Úkraínumanna. Hermennirnir eiga að snúa sér aftur að grunngildum sínum sem fótgönguliðar en eiga að miðla reynslu sinni til yfirmanna hersins.
Hermenn 173. fallhlífaherdeildar Bandaríkjahers hafa í tæpt ár verið í Úkraínu að læra og æfa drónahernað, að smíða eigin dróna og beita þeim. Á þeim tíma hafa þeir nokkrum sinnum æft með úkraínskum hermönnum. Í nóvember var stofnað sérstakt sex hundruð hermanna herfylki, myndað af hermönnum úr áðurnefndri herdeild, sem átti að sérhæfa sig í drónahernaði. Markmiðið var að hægt yrði að senda þessa hermenn hvert sem er í heiminum, þar sem þörf væri á þeim. Christopher LaNeve, nýr og starfandi forseti herforingjaráðs Bandaríkjanna, hefur gefið þá skipun að herdeildin eigi aftur að leggja áherslu á það að vera hefðbundin fallhlífaherdeild. Hermennirnir sex hundruð eiga að snúa aftur til 173. fallhlífaherdeildarinnar og að grunnkjarna sínum sem fallhlífahermenn.Bandaríski herinn/LT. Misael Ramos Wall Street Journal segir að skipunin sé liður í heildaráætlun LaNeve, sem unnið hefur náið með Pete Hegseth varnarmálaráðherra, um heraflann. Heimildarmenn WSJ segja þessa áætlun snúast um að snúa heraflanum aftur að grunnhlutverkum sínum (e. back to basics). Það var herforinginn Randy George, sem Hegseth rak úr embætti formanns herforingjaráðsins í apríl, sem skipaði fallhlífaherdeildinni á sínum tíma að snúa sér að drónahernaði. Fyrr í sumar tóku aðrir bandarískir hermenn þátt í æfingu í Þýskalandi með úkraínskri hersveit en þeir eru sagðir hafa fengið á baukinn á æfingunni. Úkraínsku hermennirnir munu hafa fundið þá bandarísku fljótt og sigrað þá með drónum. Ákvörðun LaNeve og Hegseths er ekki sögð hafa fallið í kramið hjá hernaðarsérfræðingum vestanhafs sem segja að hún muni koma niður heraflanum til lengri tíma. Dónahernaður sé að verða sífellt mikilvægari. Eins og bent er á í grein AP fréttaveitunnar var ákvörðunin einnig tekin eftir að stríð Bandaríkjanna gegn Íran hafi bersýnilega sýnt fram á þörf Bandaríkjamanna á að læra af drónahernaði annarra. Íranir hafi beitt ódýrum Shahed-sjálfsprengidrónum af mikilli skilvirkni gegn bandarískum skipum og herstöðvum í Mið-Austurlöndum. Þeim hafi jafnvel tekist að skjóta niður herþyrlu með drónum og hafi þvingað Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra til að skjóta drónana niður með mun dýrari flugskeytum. Sjá einnig: Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Samkvæmt yfirlýsingu frá forsvarsmönnum bandaríska hersins eiga hermenn 173. fallhlífaherdeildar sem mynduðu nýja herfylkið að hætta tilraunum sínum og æfingum í þessum mánuði og þeim næsta og kynna hvað þeir lærðu fyrir leiðtogum hersins. Þær lexíur á svo að nota til að móta næstu skref hersins varðandi drónahernað. Hermennirnir eiga að snúa aftur til 173. fallhlífaherdeildarinnar. Umræddir sex hundruð hermenn hafa meðal annars ferðast til Úkraínu, þar sem þeir hafa fengið að tala við og læra af úkraínskum hermönnum og tekið þátt í æfingum með úkraínskum hermönnum og öðrum hermönnum NATO-ríkja. Hermennirnir hafa meðal annars lært að smíða sína eigin sjálfsprengidróna og beita þeim í hernaði.Bandaríski herinn/Sgt. Joskannay Lua Bandamaður Hegseths Frá því Hegseth rak George og tilnefndi LaNeve, sem hafði verið aðstoðarmaður ráðherrans, í hans stað hefur herforinginn lagt mikið púður í að gera breytingar á herafla Bandaríkjanna. Sjá einnig: Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Tilnefning hans hefur mætt mótspyrnu þingmanna beggja flokka í öldungadeildinni en LaNeve getur unnið sem starfandi formaður herforingjaráðsins eins lengi og hann og Hegseth vilja. LaNeve hefur fækkað bandarískum hersveitum í Evrópu og stendur til að fækka þeim enn frekar. Þá hefur hann einnig gert miklar breytingar á viðmiðum hersins hvað varðar heilsu, þrek og þyngd hermanna. Í stað hefðbundinna viðmiða sem taka mið af hæð og þyngd, hefur LaNeve gert þá breytingu að nú á að taka mið af hæð og ummáli hermanna. Þetta hefur mætt mótspyrnu og þá sérstaklega frá Dan Driscoll, herráðherra, sem hefur sagt að þetta muni koma niður á vöðvastæltum og stórum hermönnum sem eru annars í mjög góðu formi.
Bandaríkin Donald Trump Hernaður Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu NATO Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Lækkar eigin laun Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Sjá meira