„Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 21. ágúst 2026 20:54 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Marta Kos stækkunarstjóri Evrópusambandsins. Marta Kos Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir að engin aðlögun íslenskra laga að evrópsku regluverki muni eiga sér stað segi þjóðin já í atkvæðagreiðslunni í næstu viku. Hún segir ekkert hægt að segja til um mögulegar undanþágur. Það muni samningaviðræður leiða í ljós.
Stækkunarstjórinn, Marta Kos, stýrir því ferli sem fer af stað þegar ný ríki sækja um aðild að Evrópusambandinu. Segi þjóðin já í næstu viku mun framkvæmdastjórn Evrópusambandsins funda með öllum aðildarríkjum sambandsins sem ákveða tímalínu og framkvæmd viðræðna. „Gert er ráð fyrir að aðildarríkin gætu þá boðið Íslandi að senda samningsafstöðu sína á öllum mismunandi sviðum ESB-réttar. Og til að bregðast við því myndu aðildarríkin þá ákveða sína eigin samningsafstöðu,“ segir Marta. Eftir það gætu eignlegar viðræður Íslands og Evrópusambandsins hafist og telur Marta Kos að þær muni taka um eitt til tvö ár. Hún segir ljóst að engin aðlögun íslenskra laga að að evrópsku regluverki muni eiga sér stað eftir þessa fyrri atkvæðagreðislu. Sú aðlögun komi einungis til ákveði þjóðin að ganga í Evrópusambandið. Þannig að ekkert mun breytast í íslenskri löggjöfá meðan á þessu samningaferli stendur? „Aðeins þegar aðildarsáttmálinn verður fullgiltur mun það gerast.“ Hún segir að þó Ísland sé smátt ríki geti það haft áhrif innan sambandsins. „Stofnanir okkar í ESB eru byggðar þannig upp að tryggt sé að lítil lönd hafi hátt hlutfall fulltrúa í ákvarðanatökuferlinu. Tökum Evrópuþingið sem dæmi. Íbúafjöldi Þýskalands er 150 sinnum meiri en Möltu. En hvað varðar fjölda þingmanna þá hafa þeir aðeins 16 sinnum fleiri þingmenn. Þetta er til að tryggja að lítil lönd séu vel varin og að á þau sé hlustað.“ Hvað getur Ísland komið með inn í Evrópusambandið? Af hverju eruð þið svona áfjáð í að fá okkur inn? „Þú spyrð af hverju við séum svona áfjáð í að fá ykkur inn. ESB vill ekki Ísland inn í þeim skilningi að sambandið þurfi að bæta öðru landi inn á kortið. Við viljum Ísland af því að við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni og af því að Evrópa er sterkari þegar lönd sem deila gildum okkar velja að móta sameiginlega framtíð okkar saman.“ Sambandið sé meðvitað um stöðu okkar í sjávarútvegsmálum. „Ég get fullvissað ykkur um að Íslendingar geta reitt sig á raunverulegar samningaviðræður við ESB. Við tökum alltaf tillit til sérstakra aðstæðna umsóknarríkja. Þú hefur nefnt sjávarútveg. Ég gæti bætt við landbúnaði. Á þessum tveim sviðum þyrfti greinilega að taka tillit til sérstakra aðstæðna.“ Hún ítrekar að það sé hennar trú að hægt verið að finna skapandi lausnir sem henti hagsmunum Íslands og hagsmunum Evrópusambandsins. Hún segir þó ómögulegt að segja til um hvort undanþágur frá sjávarútvegsreglum geti verið ævarandi. Þá getur hún ekki svarað því hvort mögulegt sé fyrir Ísland að vera aðili að Evrópusambandinu en standa jafnframt fyrir utan sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni. „Ég get gefið þér nákvæmt svar þegar við vitum hvernig endanlegur samningur verður. En hvað þetta varðar verða raunverulegu samningaviðræðurnar mikilvægar.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir nýjar reglur sem framkvæmdastjórnin er með í smíðum eigi að tryggja að ný aðildarríki fari að reglum og haldi ekki sambandinu í heljargreipum. Reglurnar muni „bíta fast“ þau ríki sem fara ekki eftir þeim. 16. júní 2026 06:54 Staðráðin í að flýta fyrir samningaviðræðum Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segist staðráðinn í því að flýta fyrir samningaviðræðum um forgangsmál Íslands, kjósi þjóðin að halda áfram aðildarviðræðum í ágúst. 18. mars 2026 18:18 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Sjá meira
Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir nýjar reglur sem framkvæmdastjórnin er með í smíðum eigi að tryggja að ný aðildarríki fari að reglum og haldi ekki sambandinu í heljargreipum. Reglurnar muni „bíta fast“ þau ríki sem fara ekki eftir þeim. 16. júní 2026 06:54
Staðráðin í að flýta fyrir samningaviðræðum Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segist staðráðinn í því að flýta fyrir samningaviðræðum um forgangsmál Íslands, kjósi þjóðin að halda áfram aðildarviðræðum í ágúst. 18. mars 2026 18:18