Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Áróra L Davíðsdóttir skrifar 21. ágúst 2026 18:26 Jónas Már Torfason segir leitt að staðfesta hans í eigin sannfæringu leiði til aðdróttana frá pólitískum mótherjum sínum. Jónas Már Torfason segir upphrópanir bæjarráðs Kópavogsbæjar vera „algjörlega ótímabærar.“ Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda sé hluti af stærri heildarendurskoðun á flóknum málaflokki og sú vinna sé yfirstandandi. „
Stundum þarf að standa í lappirnar þótt maður standi einn,“ segir Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, er hann gerir grein fyrir máli sínu í Facebook-færslu. Kynning Sambands íslenskra sveitarfélaga á bæjarráðsfundi Kópavogsbæjar í gær um nýja reglugerð í málaflokki barna með fjölþættan vanda staðfesti þær áhyggjur sem áður hafi komið fram í bæjarráði Kópavogs. Með reglugerðinni hafi ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á þeim hópi barna sem falla undir úrræði ríkisins, þvert á samkomulag ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um að ríkið tæki yfir málaflokkinn að fullu leyti. Jónas Már, oddviti Samfylkingarinnar, sagðist ekki geta tekið undir bókun meirihlutans. Þá sökuðu bæjarfulltrúar allra flokka, nema Samfylkingarinnar, Jónas Má um að taka stöðu með ríkinu í stað sveitarfélagsins. „Ég tók kjöri sem bæjarfulltrúi í Kópavogi til að vinna fyrir bæjarbúa og það breytist ekki þótt ríkið eigi í hlut. Ég mun eflaust fá nóg af tækifærum til að gagnrýna ríkisstjórnina þegar ég stend vörð um hagsmuni Kópavogsbæjar, en þetta mál er ekki eitt af þeim,“ segir Jónas í færslunni. Lengi hafi lítið traust ríkt á milli ríkis og sveitarfélaga en Jónas telur ekki gagnlegt að sveitarfélögin nálgist málin með upphrópunum. Það liggi fyrir að málaflokkur barna með fjölþættan vanda sé í þróun og að vilji sé hjá ríkisstjórninni til að taka málaflokkinn yfir. „Það þarf tvo til að dansa saman og ég tel það ekki gagnlegt að sveitarfélögin nálgist hvern núningsflöt með upphrópunum,“ segir Jónas. Ríkið hafi komið að borðinu með rúmlega þrjá milljarða á ári sem áður hafi fallið á sveitarfélögin. Sveitarfélögin taki ekki á sig nýjar skyldur sem hluti af því samkomulagi. Þau beri áfram ábyrgð á málaflokki fatlaðs fólks og fullorðinna með fjölþættan vanda. „Allt annað er pólitískt teater“ Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda sé hluti af stærri heildarendurskoðun á flóknum málaflokki og sú vinna sé yfirstandandi. Starfshópur ríkis og sveitarfélaga sé að störfum til að hafa eftirfylgni með framkvæmd samkomulagsins. „Það er rétti vettvangurinn til að koma sjónarmiðum sveitarfélaganna á framfæri um það sem betur mætti fara í framkvæmd samkomulagsins. Allt annað er pólitískt teater,“ segir Jónas. Reglugerðin umrædda hafi verið sett svo hægt væri að hefja vinnu eftir samkomulaginu með aðkomu ríkisins. „Hefði verið betra að bíða, þar sem sveitarfélögin hefðu áfram borið fulla ábyrgð á málaflokknum?,“ spyr Jónas. Upphrópanir bæjarráðs séu „algjörlega ótímabærar“ enda sé þetta verk í vinnslu, líkt og samkomulagið kveði á um. „Ég veit ekki til þess að bæjarráð Kópavogs hafi einu sinni ályktað um algjört aðgerðarleysi síðustu ríkisstjórna í þessum málaflokki. Nú kemur ríkið að borðinu með rúmlega þrjá milljarða króna á ári og það á að heita einhvers konar svik?“ spyr oddvitinn. Hagsmunum Kópavogsbæjar sé best borgið með því að halda trúverðugleika sem samningsaðili við ríkið. „Ég stend auðvitað með sannfæringu minni í þessu máli, sem ég tel að þjóni hagsmunum Kópavogsbúa best, en það er leitt að það skuli leiða til aðdróttana frá pólitískum mótherjum um að ég sé ekki að vinna mitt starf af heilindum.“
Kópavogur Sveitarstjórnarmál Málefni fatlaðs fólks Börn og uppeldi Samfylkingin Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Sjá meira