Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Aron Guðmundsson skrifar 25. ágúst 2026 09:00 Alvarez í leik með Atletico Madrid Diego Souto/Getty Images Forráðamenn Englandsmeistara Arsenal telja sig geta fengið Argentínumanninn Julián Álvarez til liðs við sig frá Atletico Madrid. Þeir muni hins vegar aðeins leggja fram tilboð opni hann á að koma aftur í enska boltann.
Frá þessu greinir félagsskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano í færslu á samfélagsmiðlinum X núna í morgun. Óvissa er uppi með framtíð Alvarez í herbúðum Atletico Madrid. Argentínumaðurinn hefur lýst yfir vilja sínum til þess að takast á við nýja áskorun hjá nýju félagi og á hann sér draum um að skipta yfir til Barcelona. Forráðamenn Atletico Madrid taka það hins vegar ekki í mál að selja stjörnuleikmann sinn til samkeppnisaðila í spænsku úrvalsdeildinni og hefur það flækt málin. Stuðningsmenn Atletico Madrid bauluðu vel og lengi á Alvarez í fyrsta heimaleik liðsins um nýliðna helgi og er erfitt að sjá það fyrir sér að þeir muni taka hann aftur í sátt eftir það sem á undan hefur gengið. Englandmeistarar Arsenal hafa fylgst vel með málum sóknarmannsins. Brasilíumaðurinn Gabriel Martinelli virðist vera að fara í sandinn í Sádi-Arabíu og getur þar myndast smá pláss til að spenna bogann enn frekar í leikmannakaupum. 🚨🇦🇷 Arsenal remain attentive to Julián Álvarez situation and internal feeling is they can reach an agreement with Atlético on the fee.But #AFC will only bid if Julián decides to open doors to the move: his stance will be the key factor.So far, Julián only wanted Barcelona. pic.twitter.com/U9kUVrumS1— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 25, 2026 Fabrizio Romano segir forráðamenn Arsenal telja sig geta náð samkomulagi við Atletico Madrid um kaupverð á Alvarez. Arsenal muni hins vegar aðeins leggja fram tilboð í kappann opni hann á það að snúa aftur til Englands þar sem að hann spilaði áður með Manchester City. Hugur Álvarez gagnvart þessum mögulegu félagsskiptum gegni lykilhlutverki. David Ornstein hjá The Athletic telur að Atletico Madrid vilji fá um 128 milljónir punda fyrir Alvarez. Vika er eftir af félagsskiptaglugganum fyrir liðin á Englandi. Alvarez er 26 ára gamall og hefur verið á mála hjá Atletico Madrid síðan sumarið 2024. Hann hefur spilað 107 leiki fyrir félagið, skorað 49 mörk og gefið 17 stoðsendingar. Þar áður var hann leikmaður Manchester City á Englandi. Spilaði þar 103 leiki, skoraði 36 mörk og gaf 19 stoðsendingar. Alvarez er uppalinn hjá River Plate í heimalandinu og varð heimsmeistari með Argentínu árið 2022. Þá hefur hann í tvígang unnið Copa América, í tvígang orðið Englandsmeistari og einu sinni unnið Meistaradeild Evrópu og enska bikarinnmeð Manchester City.
Enski boltinn Arsenal FC Spænski boltinn Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Enski boltinn Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Formúla 1 Fleiri fréttir Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Sjá meira