Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Sindri Sverrisson skrifar 27. ágúst 2026 12:00 Svali Björgvinsson afhenti Guðbjörgu Sverrisdóttur viðurkenningu þegar hún varð fyrsta konan til að spila 400 deildarleiki í efstu deild hér á landi. Vísir/Anton Eftir að hafa verið formaður körfuknattleiksdeildar Vals í fjölmörg ár ákvað Svali Björgvinsson að stíga til hliðar í vor. Unnið er að því að skipa arftaka hans.
Svali hefur leitt körfuboltastarf Vals í fjölmörg ár og með hann sem formann hefur félagið átt sitt mesta gullaldarskeið þar sem karlaliðið varð til að mynda Íslandsmeistari árið 2022, eftir 39 ára bið, og aftur árið 2024, og kvennaliðið varð Íslandsmeistari árin 2019, 2021 og 2023. Svali tók við nýju starfi í sumar sem mannauðsstjóri hjá Íslandsbanka, eftir að hafa verið hjá Sjóvá, og annir sem fylgja því að breyta um starfsvettvang spila eflaust inn í ákvörðunina um að hætta sem formaður eftir síðustu leiktíð. Svali fer þó ekki langt því hann mun áfram sitja í stjórn körfuknattleiksdeildar Vals. Með honum í stjórn eru Gunnar Zoega, Lárus Blöndal, Sveinn Zoega, Hallveig Jónsdóttir, Svanur Valdimarsson og Benóný Svanur Sigurðsson. Ljóst er að nýr formaður verður skipaður úr þessum hópi og samkvæmt upplýsingum Vísis ætti sú ákvörðun að liggja fyrir í nánustu framtíð. Þrátt fyrir að staða formanns sé laus hafa Valsmenn verið virkir á leikmannamarkaðnum í sumar. Pablo Bertone er snúinn aftur í karlaliðið, frá Stjörnunni, og stigakóngur síðustu leiktíðar í Bónus-deildnn, Dwayne Lautier-Ogunleye, kom frá Njarðvík. Kvennaliðið hefur sömuleiðis fengið nýja leikmenn og kom Dzana Crnac frá Ármanni, Bergdís Anna Magnúsdóttir frá Hamri/Þór og Aníta Kristín Jónsdóttir heim frá ÍR. Þá munu fyrirliðinn Dagbjört Dögg Karlsdóttir og lykilmennirnir Þóranna Kika Hodge-Carr, Reshawna Stone og Alyssa Cerino halda kyrru fyrir á Hlíðarenda.
Valur Körfubolti Bónus-deild karla Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Formúla 1 Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Formúla 1 Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Fótbolti Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira