Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 28. ágúst 2026 19:07 Forystukonur ríkisstjórnarinnar er brugðið vegna hótanna í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna á morgun. Vísir Forystukonum ríkisstjórnarinnar er brugðið vegna alvarlegra hótana sem hafi borist undanfarnar vikur. Málin eru til rannsóknar hjá lögreglu. Forsætisráðherra segir umræðuna í kringum þjóðaratkvæðagreiðsluna að mestu hafa verið góða en varar við rangfærslum og misvísandi upplýsingum.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra staðfesti í Bítinu á Bylgjunni í morgun að henni hefðu borist hótanir í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða alvarlegar ofbeldishótanir, þar á meðal líflátshótanir. „Ef þú ert að tala um hótanir, já, ég hef fengið þær,“ sagði Þorgerður þegar stjórnendur þáttarins spurðu hvort henni hefðu borist hótanir. „Þannig er komið fyrir okkur hér, já,“ sagði Þorgerður. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu. Þorgerður gaf ekki kost á viðtali eftir ríkisstjórnarfund í dag. Óásættanlegt Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra er brugðið. „Þetta er auðvitað með öllu óásættanleg staða. Það verður tekið á þessu og mun verða tekið á þessu. Þetta verður skoðað, það er verið að fara í gegnum þetta. Okkur þykir öllum vænt um Ísland, við viljum geta farið í gegnum svona ferli í friði og spekt og haldið upplýsingum á réttum stað. Ég vil einnig taka fram að mér finnst heilt yfir umræðan hafa verið holl og góð fyrir íslenskt samfélag,“ segir Kristrún. Fjársterkir aðilar dreifi misvísandi upplýsingum Kristrún segist þó hafa áhyggjur af rangfærslum og misvísandi upplýsingum í umræðunni nú þegar líður að þjóðaratkvæðagreiðslunni. „Ég hef aðaláhyggjur af því núna að fólk sjái ekki, nú á lokametrunum, að það eru fjársterk öfl að beita sér af nokkrum krafti með að koma með misvísandi og beinlínis rangar fullyrðingar,“ segir Kristrún en gefur ekki upp hvaða öfl hún á við. „Hef sjaldan orðið eins hissa“ Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, tekur í sama streng og segist bæði hafa orðið vör við ósannindi í umræðunni og hótanir í garð ráðherra. „Það hefur hleypt í mig illindum síðustu daga að sjá þessi ósannindi og horfa upp á yndislegt fólk verða fyrir ómálefnalegum hótunum, líflátshótunum og alls konar ofbeldi. Ég hef sjaldan orðið eins hissa og akkúrat núna,“ segir Inga. Aðspurð hvort fleiri ráðherrar hefðu lent í slíku svarar hún játandi. „Já, já, og ég skil það ekki. Ég skil ekki þennan ótta.“ Inga segist aðspurð líka hafa fengið hótanir. „Já, já, en ekki eins alvarlegar og margir hafa þurft að þola,“ segir hún. Inga vill sjá Flokkur fólksins er mótfallinn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Inga segir að hún vilji hins vegar kanna hvaða samning Ísland geti fengið. Mótlæti síðustu daga hafi styrkt sig í þeirri afstöðu. „Mér finnst þetta hafa verið óvægið og óprúttið. Ég hefði ekki trúað því að ég yrði vitni að slíku,“ sagði Inga.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Viðreisn Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira