Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Áróra L Davíðsdóttir skrifar 1. september 2026 23:33 Reykhólahreppur er sveitarfélag á sunnanverðum Vestfjörðum. Myndirnar eru úr safni. Samsett Maður hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft í fórum sínum og ræktað 260 kannabisplöntur í sölu- og dreifingarskyni í Reykhólahreppi á Vestfjörðum þann 10. ágúst síðastliðinn. Lögreglumenn fundu plönturnar í leit í húsi sem vógu samtals rúm 126 kíló.
Dómur var kveðinn upp í dag í Héraðsdómi Vestfjarða. Hinn ákærði játaði brot sín skýlaust og horfði það honum til málsbóta. Hann var þá dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Komi til afplánunar kemur gæsluvarðhald sem hann hefur sætt frá 11. ágúst síðastliðnum til frádráttar af refsingunni. Krafist er upptöku allra 260 plantnanna auk 62 gróðurhúsalampa, 356 blómapotta, 11 poka af gróðurmold, fjöltengja og framlengingarsnúra, hitamæla, vifta og annars ræktunarbúnaðar. Ákærða er einnig gert að greiða málsvarnarþóknun verjanda síns upp á rúma eina milljón króna auk annars sakar. Þann 17. ágúst síðastliðinn var greint frá því að fyrr í þeirri viku hefði einn verið handtekinn vegna umfangsmikillar kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi í Reykhólahreppi. Þá var greint frá því að lagt hefði verið hald á fjölda kannabisplantna og umfangsmikinn ræktunarbúnað. Lögreglan á Vestfjörðum fór með rannsókn málsins en naut aðstoðar lögreglunnar á Vesturlandi og tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við framkvæmd þess.
Dómsmál Reykhólahreppur Kannabis Lögreglumál Fíkniefnabrot Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira