Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. september 2026 11:35 Frá slysstað á Krýsuvíkurvegi. Vísir/Anton Brink Tæplega nítján ára stúlka sem lést í bílslysi á Krýsuvíkurvegi aðfaranótt mánudags var frá Írlandi en búsett hér á landi þar sem hún undi hag sínum vel. Talið er að bíllinn hafi verið á yfir tvö hundruð kílómetra hraða áður en slysið varð.
Erlenda stúlkan sem lést ásamt tveimur íslenskum ungmennum í banaslysi á Krýsuvíkurvegi aðfaranótt mánudags hét Hannah Jane Large. Hannah hefði orðið nítján ára síðar í mánuðinum. Hún var frá Írlandi og er von á foreldrum hennar hingað til landsins. Þau vilja koma því á framfæri að hún hafi verið afar hamingjusöm á Íslandi og spennt fyrir því að dvelja hér. Lögreglu barst tilkynning um slysið eftir miðnætti aðfaranótt mánudags. Bíll af tegundinn BMW hafnaði utan vegar og á hraunkletti við veginn rétt sunnan við gatnamót Krýsuvíkurvegar og Leiðarendavegar. Tvær stúlkur og ungur karlmaður létust í slysinu. Áður hefur komið fram að ungi maðurinn heiti Benjamín Guðmundsson og íslenska stúlkan Arndís Halla Guðlaugsdóttir. Benjamín var á 21. aldursári en Arndís Halla sextán ára. Lögregla hefur meðal annars til skoðunar hvort um hraðaakstur hafi verið að ræða í aðdraganda þess að bíllinn fór út af veginum. Samkvæmt heimildum fréttastofu benda gögn sem lögregla hefur undir höndum og hafa verið í dreifingu meðal almennings til þess að bíllinn hafi verið á yfir tvö hundruð kílómetra hraða augnablikum áður en hann lenti á klettinum. Fram hefur komið að rannsókn á tildrögum slyssins sé skammt á veg komin. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu stendur til að ræða við nokkurn fjölda vitna sem voru á svæðinu um nóttina. Minningarstund vegna fráfalls Arndísar Höllu verður í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ klukkan hálf sex í dag. Minningarstund vegna Benjamíns verður í Háteigskirkju í Reykjavík klukkan sex.
Þrír létust í banaslysi á Krýsuvíkurvegi Lögreglumál Umferðaröryggi Samgönguslys Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira