Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 2. september 2026 16:17 Jarle Hetland samskiptastjóri EFTA Vísir Samskiptastjóri ESA segir mögulegt að Íslandi verði stefnt fyrir EFTA-dómstólinn vegna þess að bókun 35 við EES-samninginn hefur ekki verið innleidd hér á landi. ESA meti næstu skref í málinu en hafi ekki tekið ákvörðun. Nýliðin þjóðaratkvæðaatkvæðagreiðsla hafi ekki áhrif á ákvarðanir ESA.
Eftirlitsstofnun EFTA, (ESA), heldur áfram að meta hvort Ísland uppfylli skuldbindingar sínar samkvæmt EES-samningnum vegna bókunar 35 og útilokar ekki að vísa málinu til EFTA-dómstólsins. ESA segir niðurstöðu nýlegrar þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi ekki hafa áhrif á lagalegt mat stofnunarinnar. Jarle Hetland samskiptastjóri EFTA bendir á að samningsbrotamálsmeðferð gegn Íslandi vegna bókunar 35 hafi farið fram árið 2017 og íslenskum stjórnvöldum hafi verið sent rökstutt álit árið 2020. „ESA heldur áfram að meta hvort Ísland uppfylli skuldbindingar sínar samkvæmt EES-samningnum, þar á meðal samkvæmt bókun 35,“ segir í svari Jarle Hetland samskiptastjóra Efta. Hann tekur þó ekki af skarið um hvort málinu verði stefnt fyrir EFTA-dómstólinn. „Þótt málshöfðun fyrir EFTA-dómstólnum sé eitt þeirra úrræða sem ESA hefur yfir að ráða tjáir stofnunin sig ekki, umfram það sem þegar hefur verið gert opinbert, um yfirstandandi mat eða hugsanlegar ákvarðanir um næstu skref málsmeðferðarinnar.“ Pólitík hafi ekki áhrif á EFTA Fréttastofa spurði ESA hvort niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar, þar sem meirihluti kjósenda sagði nei við því, að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrði hafnar á ný, hefði orðið til þess að stofnunin endurskoðaði, frestaði eða breytti mögulegum aðgerðum gegn Íslandi. Jarle Hetland segir svo ekki vera og undirstrikar að ákvarðanir stofnunarinnar byggist á lagalegum sjónarmiðum en ekki pólitískri þróun. „Skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum, þar á meðal þær sem tengjast bókun 35, eru bindandi fyrir öll EFTA-ríkin sem eiga aðild að EES. Hlutverk ESA er að hafa eftirlit með og framfylgja því að staðið sé við þær skuldbindingar sem leiða af EES-samningnum. Ákvarðanir okkar eru óháðar pólitískri þróun í einstökum ríkjum og byggjast á lagalegum sjónarmiðum og staðreyndum. Að mati ESA eru skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum, þar á meðal þær sem varða bókun 35, áfram bindandi fyrir Ísland óháð niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar,“ segir hann. Ísland þurfi að fylgja skuldbindingum Hann segir tilgang bókunar 35 vera að tryggja skilvirka framkvæmd EES-réttar og standa vörð um réttindi einstaklinga og fyrirtækja samkvæmt EES-samningnum. „Með öðrum orðum á hún að tryggja að réttindi sem veitt eru samkvæmt EES-rétti verði ekki látin víkja fyrir landslögum sem stangast á við þau,“ segir hann.“ Tilkynnir þegar ákvörðun liggur fyrir ESA gefur ekki upp hvenær ákvörðun gæti legið fyrir um hvort málinu verði vísað til EFTA-dómstólsins. Stofnunin haldi áfram að meta málið samkvæmt hefðbundinni málsmeðferð og muni tilkynna um formlegar ákvarðanir þegar þær liggja fyrir. „Ákvörðun um næstu skref málsmeðferðarinnar verður tilkynnt þegar hún liggur fyrir,“ segir hann að lokum.
EES-samningurinn Alþingi Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira