„Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sunna Sæmundsdóttir skrifar 3. september 2026 17:32 Fulltrúar allra þingflokka mættust í Pallborðinu á Vísi í dag. Hér má sjá Sigríði Andersen, þingflokksformann Miðflokksins, Ásthildi Lóu Þórsdóttur, þingflokksformann Flokks fólksins og Maríu Rut Kristinsdóttur, varaformann þingflokks Viðreisnar. vísir/EInar Alþingi verður sett í næstu viku og fulltrúar flokkanna hituðu upp fyrir þingveturinn í Pallborðinu í dag. Þar voru þeir beðnir um að spá fyrir um stærsta mál vetrarins og það umdeildasta. Nokkur mál voru nefnd. Þingflokksformaður Miðflokks varar við breytingum á sakamálalögum en viðurkennir að mótmæli í slíkum efnum séu ekki líkleg til vinsælda.
Fulltrúar allra þingflokka voru sammála um að efnahagsmálin muni vega þungt á þessum þingvetri. Verðbólga hefur ekki verið meiri í tvö ár, stýrivextir hafa verið hækkaðir og forsendur kjarasamninga eru brostnar. Til stendur að kynna hallalaus fjárlög á mánudag og Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingar, staðfesti að hagræðingu þyrfti til að ná því markmiði. Hann vildi ekki taka fyrir að skattahækkanir væru einnig á borðinu en þingmenn stjórnarandstöðunnar telja einsýnt að svo verði. Þingmennirnir voru því sammála um að fjárlögin verði stóra mál þingvetrarins. Skiptar skoðanir voru hins vegar á því sem gæti orðið umdeildast. María Rut Kristinsdóttir, varaformaður þingflokks Viðreisnar, hafnaði því að Viðreisnarliðar fari vængbrotnir inn í þingveturinn eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB.vísir/Einar „Þau eru svo mikil ólíkindatól að maður veit aldrei hvað stuðar,“ sagði María Rut Kristinsdóttir, varaformaður þingflokks Viðreisnar, létt í bragði en kvaðst jafnframt vona að þingmenn stjórnar- og stjórnarandstöðuflokka geti átt í góðu samtali um brýn mál. Heitar umræður um Bókun 35 sköpuðust í Pallborðinu og spáði Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, því að málið verði ekki lagt fram - líkt og ríkisstjórnin hefur þó boðað. „Ég lofa því að það kemur eitthvað mál upp sem við höfum enga trú á að verði til vandræða og að það verði sökudólgurinn.“ Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknar, sagðist þurfa að sjá þingmálaskrána sem verður kynnt í næstu viku til þess að geta kortlagt átakamálin. „En það eru ýmis mál sem við þurfum að ræða og lög sem við höfum verið að setja en náum ekki að framfylgja. Ef maður nefnir lítið mál sem er að stækka er það áfengisneysla ungmenna, sem hafa nú aukið aðgengi að áfengi,“ sagði Ingibjörg. Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknar, Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingflokksformaður Flokks fólksins, María Rut Kristinsdóttir, varaformaður þingflokks Viðreisnar og Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingar mættu í Pallborðið til Sunnu Sæmundsdóttur í dag.vísir/EInar Sigríður Á Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, sagðist líkt og Ólafur vona að Bókun 35 verði látin sitja á hakanum. Í Pallborðinu lýsti Sigríður raunar þeirri skoðun að það ætti að láta reyna á skyldu Íslendinga til þess að innleiða hana fyrir EFTA-dómstólnum. „Ég get alveg sagt að ef að bókun 35 verður sett fram, sem ég í einlægni ræð ríkisstjórninni frá því að gera, að þá verður það erfiðasta málið að ná í gegn.“ Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, hefur áhyggjur af boðuðum breytingum á sakamálalögum.vísir/Einar Þá sagðist hún einnig hafa áhyggjur af boðuðum breytingum á sakamálalögum en þær eru liður í aðgerðum gegn skipulagðri brotastarfsemi. „Það eru alls konar þættir í því sem mér finnst orka tvímælis, sérstaklega þegar verið er að draga úr kröfu um dómsúrskurð við ýmsa valdbeitingu, líkt og við húsleit og hlerun. Það er auðvitað ekki pólitiskt sexí að stíga fram og segja að þetta orki tvímælis en þó að markmiðið sé gott má tilgangurinn ekki helga meðalið og við verðum að fara varlega í það að svipta borgara þeim sjálfsagða rétti að fjallað sé um það fyrir dómi hvort ástæða sé til að hlera símtöl manna og fara í húsleitir,“ sagði Sigríður.
Pallborðið Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Viðreisn Bókun 35 Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira