Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Áróra L Davíðsdóttir skrifar 3. september 2026 21:30 Aðeins eru nokkrir mánuðir síðan Dimoldenberg fullyrti að hún myndi ekki hætta með þættina þar til hún fyndi ástina í samtali við BBC. Getty/Dia Dipasupil Amelia Dimoldenberg hefur ákveðið að hætta með þættina geysivinsælu Chicken Shop Date. Hún hefur haldið úti þáttunum í rúman áratug og fengið til sín yfir hundrað gesti á „stefnumót.“ „
Ég var 17 ára þegar ég fékk þá æðislegu hugmynd að ég gæti hitt ástina í lífi mínu á stefnumóti á kjúklingastað,“ skrifar Dimoldenberg á Facebook-síðu sinni þar sem hún greinir frá fréttunum. Þættirnir Chicken Shop Date eru viðtalsþættir í formi stefnumóta á kjúklingastöðum í Bretlandi. Meðal gesta Dimoldenberg eru Bítillinn Paul McCartney, fjölmiðlamaðurinn Loius Theroux, söngkonurnar Cher, Rosalía og Billie Eilish og YouTube-stjarnan KSI. Lengi mætti telja áfram stórstjörnurnar sem Dimoldenberg hefur fengið til sín á stefnumót. „Ég hef eytt öllum þrítugsaldrinum í að sitja á móti ótrúlegasta fólki, fólki sem mig hafði alltaf dreymt um að hitta. Þau heilluðu mig öll (sum meira en önnur) og ég heillaði þau svo sannarlega líka,“ skrifar hún. Hún þakkar fylgjendum og áhorfendum sínum fyrir að hafa fylgst með öll þessi ár. Áhorfendur eiga þó von á einhverjum þáttum í viðbót. Hún ætli á nokkur „lokastefnumót“ til viðbótar áður en hún kveður þættina fyrir fullt og allt, segir hún. „Öll góð stefnumót verða að taka enda“Facebook/Amelia Dimoldenberg Dimoldenberg hefur gert garðinn frægan með þáttum sínum og hennar einstaka viðtalsstíl sem einkennist af vandræðaleika. Hún hefur síðan tekið viðtöl á rauða dreglinum á Óskarsverðlaunahátíðinni og rekur eigið framleiðslufyrirtæki. Nýr veruleiki fjölmiðlanna Í umfjöllun The Guardian um þættina segir að vinsældir þeirra séu til marks um breytingar í fjölmiðlaheiminum með tilkomu stafrænna miðla. Þættirnir, sem birtast á YouTube-rás Dimoldenberg, eru á pari við vinsældir spjallþátta í línulegri sjón- eða útvarpsdagskrá í Bretlandi, eins og The Graham Norton Show. „Aldrei hélt ég að ég myndi hætta með Chicken Shop Date, ég hélt að það yrði kannski hluti af mér að eilífu og að einhverju leyti verður það hluti af mér að eilífu en mér finnst kominn tími til að hefja nýtt ævintýri“ skrifar hún að lokum. Hér má sjá einn vinsælasta þátt Chicken Shop Date þar sem Dimoldenberg og leikarinn Andrew Garlfield fóru á stefnumót.
Samfélagsmiðlar Bretland Hollywood Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira