Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða Kjartan Kjartansson skrifar 7. september 2026 13:24 Loftslags- og orkusjóður styrkir meðal annars uppsetningu á hleðslustöðvum og rafbílakaup. Vísir/Vilhelm Dregið verður úr framlögum til Loftslags- og orkusjóðs um 3,2 milljarða króna á næsta ári ef fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar verður samþykkt óbreytt. Niðurskurðurinn nemur ríflega helmingi þeirra rafbílastyrkja sem sjóðurinn útdeildi í fyrra.
Niðurskurðurinn á Loftslags- og orkusjóði er tvíþættur. Annars vegar er 1,2 milljarða króna sértæk aðhaldsráðstöfun í fjármálaáætlun og hins egar tveggja milljarða króna óskipt aðhaldsráðstefnun á málefnasviði orkumála sem er útfærð á sjóðinn í heild sinni. Samkvæmt núgildandi fjármálaáætlun eiga framlög til sjóðsins að hækka um milljarð eftir eitt ár. Loftslags- og orkusjóður styrkir meðal annars einstaklinga til rafbílakaupa og fyrirtæki til orkuskipta í rekstri eða orkusparnaðar. Sjóðurinn útdeildi rúmum 8,5 milljörðum króna í beina styrki í fyrra samkvæmt ársskýrslu hans fyrir 2025. Tæpir 5,7 milljarðar fóru í rafbílastyrki. Stjórn sjóðsins áætlaði sjálf að verkefni sem hann hefði styrkt kæmi til með að spara tugi milljóna olíulítra og tugi gígavattsstunda raforku. Ríkisstjórnin ætlar að niðurgreiða rekstur flugrekenda sem fljúga til og frá Íslandi í ár og á næsta ári um jafnháa upphæð og á að skera niður Loftslags- og orkusjóð á næsta ári. Það gerir hún á grundvelli svonefndrar sérlausnar frá ETS-kerfinu sem er í gildi og á að framlengja næstu þrjú árin. Sagði ekki mætti slá af í síðustu viku Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna birti skýrslu í síðustu viku þar sem sérfræðingar sögðu í fyrsta skipti fullum fetum að metnaðarfyllra markmið Parísarsamkomulagsins ætti ekki eftir að nást. Í tilefni af því var haft eftir Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að staðan væri alvarleg og alls ekki mætti slá af eða gefa upp von um að ná loftslagsmarkmiðum. „Í grænni umbreytingu felast gríðarleg tækifæri fyrir samfélagið allt. Fyrir efnahag, umhverfið og framtíðarkynslóðir. Við þurfum að beina kröftunum okkar að því sem raunverulega dregur úr losun. Nú þarf einfaldlega að gera meira, hraðar,“ var haft eftir ráðherranum í tilkynningu á vef stjórnarráðsins á föstudag.
Orkuskipti Fjárlagafrumvarp 2027 Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Loftslagsmál Vistvænir bílar Umhverfismál Loftgæði Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira