Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Samúel Karl Ólason skrifar 18. september 2026 10:01 Meðlimir Húta á ferðinni í Sanaa, höfuðborg Jemen. AP Ráðamenn í Kína hafa sent skilaboð til ráðamanna í Íran og beðið klerkastjórnina um hjálp við að halda aftur af Hútum í Jemen. Það er eftir að ríkisstjórn Sádi-Arabíu, sem selur talsvert af olíu til Kína, bað Kínverja um aðstoð. Árásir Húta á olíuvinnsluinnviði í Sádi-Arabíu og lokun sunnanverðs Rauðahafs fyrir siglingum Sáda hafa komið verulega niður á getu konungsríkisins til að flytja olíu úr landi.
Eftir að Hútar sóttu töluvert fram í vesturhluta Jemen og lögðu undir sig stóran hluta strandlengju landsins við Rauðahaf, leituðu Sádar til Kínverja, samkvæmt heimildum Reuters. Þessir landvinningar hafa gert Hútum mun auðveldara að stöðva olíuflutning Sáda um Rauðahaf og þá sérstaklega flutninga til Asíu. Hútar hafa einnig gert árásir á mikilvæga olíuleiðslu sem Sádar hafa notað til að flytja olíu að ströndum Rauðahafs. Sádar hafa einnig leitað til Pakistana eftir aðstoð við að þrýsta á Húta gegnum klerkastjórnina í Íran. Sjá einnig: Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Ráðamenn í Kína hafa opinberlega kallað eftir ró, viðræðum og því að opnað verði aftur fyrir frjálsar siglingar um bæði Hormússund og Rauðahaf. Heimildarmenn Reuters segja að í skilaboðum til klerkastjórnarinnar hafi Kínverjar þó gengið lengra, án þess þó að hóta Írönum einhverjum aðgerðum. Íranir eru sagðir hafa svarað á þá leið að stöðugleiki myndi ekki nást aftur á svæðinu fyrr en Bandaríkjamenn og Ísraelar létu af stríði þeirra gegn Íran. Heimildarmenn Reuters segja óljóst hvort Íranir ætli að koma til móts við Kínverja. Lang stærsti viðskiptavinur klerkastjórnarinnar Kína hefur um árabil verið það ríki sem Íran á í mestum viðskiptum við. Kínverjar kaupa til að mynda rúmlega áttatíu prósent af þeirri olíu sem Íranir flytja úr landi með skipum, en herkví Bandaríkjanna hefur alfarið komið í veg fyrir þá flutninga. Kínverjar kaupa einnig mikið magn af olíu af Sádum. Þetta tvennt gerir Kínverja bæði viðkvæma fyrir takmörkunum á olíuflutningum frá Mið-Austurlöndum og gefur þeim burði til að vera mjög áhrifamiklir gagnvart báðum ríkjum. Á undanförnum mánuðum er talið að Kínverjar hafi gengið töluvert á olíubirgðir sínar og hófu þeir nýverið á nýjan leik að reyna að kaupa mikið magn af olíu. Staðan á olíumörkuðum er þó verulega erfið.
Íran Sádi-Arabía Kína Jemen Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Bensín og olía Hernaður Tengdar fréttir Hútar skutu niður herþotu Sáda Hútar í Jemen segjast hafa skotið niður herþotu frá Sádi-Arabíu í dag. Þá segjast þeir einnig hafa gert umfangsmiklar árásir á olíuinnviði í Sádi-Arabíu á sama tíma og Sádar hafa látið sprengjum rigna yfir Húta. 16. september 2026 15:38 Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Sádi-Arabar hafa lokað einni mikilvægustu olíuleiðslu landsins eftir drónaárásir sem Írakar eru taldir bera ábyrgð á. Atvikið er nýjasta dæmið um útbreiðslu átakanna fyrir botni Persaflóa og setja aukinn þrýsting á alþjóðlegar olíuflutningaleiðir. 12. september 2026 14:01 Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Verð hráolíu hefur rokið upp í dag vegna áhyggja af enn frekari truflunum á flutningsleiðum olíu um heiminn, sem rekja má til aukinna og harðnandi átaka í Jemen. Hútar tóku í dag mikilvægan strandbæ við Rauðahaf sem mun gera þeim mun auðveldara að gera árásir á olíuflutningaskip á Rauðahafi. 10. september 2026 16:35 Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira
Hútar skutu niður herþotu Sáda Hútar í Jemen segjast hafa skotið niður herþotu frá Sádi-Arabíu í dag. Þá segjast þeir einnig hafa gert umfangsmiklar árásir á olíuinnviði í Sádi-Arabíu á sama tíma og Sádar hafa látið sprengjum rigna yfir Húta. 16. september 2026 15:38
Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Sádi-Arabar hafa lokað einni mikilvægustu olíuleiðslu landsins eftir drónaárásir sem Írakar eru taldir bera ábyrgð á. Atvikið er nýjasta dæmið um útbreiðslu átakanna fyrir botni Persaflóa og setja aukinn þrýsting á alþjóðlegar olíuflutningaleiðir. 12. september 2026 14:01
Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Verð hráolíu hefur rokið upp í dag vegna áhyggja af enn frekari truflunum á flutningsleiðum olíu um heiminn, sem rekja má til aukinna og harðnandi átaka í Jemen. Hútar tóku í dag mikilvægan strandbæ við Rauðahaf sem mun gera þeim mun auðveldara að gera árásir á olíuflutningaskip á Rauðahafi. 10. september 2026 16:35