Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Samúel Karl Ólason skrifar 21. september 2026 09:05 Donald Trump vill reisa eigin minnisvarða, því hann er sannfærður um að enginn annar muni gera það. Vísir/AP Donald Trump segir að hinn stærðarinnar sigurbogi sem hann vill reisa í höfuðborg Bandaríkjanna eigi að verða hernaðarmannvirki. Boginn eigi, að beiðni yfirmanna bandaríska hersins, að hýsa leyniskyttur og dróna og vera geymsla fyrir skotfæri. Með þessu er hann talinn vilja komast hjá lögsóknum og auðvelda sér að reisa bogann.
Forsetinn hefur til að mynda kallað veislusalinn sem hann er að reisa við Hvíta húsið hernaðarmannvirki og haldið því fram að salurinn sé nauðsynlegur þjóðaröryggi. Í færslu sem Trump skrifaði á Truth Social, hans eigin samfélagsmiðil, í gær sagðist Trump hafa samþykkt „sterka beiðni“ frá bandaríska hernum. Sigurboginn, sem hann heldur fram að hafi verið í skipulagningu frá tímum borgarastyrjaldarinnar, verði hernaðarmannvirki. Þaðan verði gerðir út drónar, leyniskyttur verði í boganum og þar verði hægt að hýsa mikið magn skotfæra fyrir leyniskyttur. Hann segir að mannvirkið verði einstakt á heimsvísu en í næstu setningu kvartar hann yfir því að Washington DC sé sú eina af 59 helstu höfuðborgum heims sem eigi ekki sigurboga. Trump segir að það muni nú breytast og þessi bogi verði mikilfenglegri en allir hinir. Færsla Trumps á Truth Social þar sem hann segir að boginn muni hýsa dróna og leyniskyttur, að beiðni hernaðaryfirvalda í Bandaríkjunum. Hann kvarta einnig yfir því að Washington DC standi sér á báti meðal helstu höfuðborga heims, hvað varðar skort á sigrbogum. Eins og segir í grein AP fréttaveitunnar stendur smíði Trumps á sigurboganum frammi fyrir lögsóknum. Framkvæmdin hefur verið samþykkt af sérstakri nefnd sem Trump skipaði alla meðlimi í. Hins vegar hafa þrenn samtök uppgjafarhermanna, þar sem boginn á að vera við Arlington-kirkjugarðinn, höfðað mál gegn framkvæmdinni á þeim grunni að það sé þingsins að samþykkja hana. Forsvarsmenn samtakanna segja að Trump geti ekki upp á sitt eindæmi gert svo umfangsmiklar breytingar á höfuðborginni. Vill reisa eigin minnisvarða Framkvæmdin er ein nokkurra sem Trump er með í vinnslu og hefur staðið fyrir en þeim er ætlað að setja varanlegt mark hans á höfuðborg Bandaríkjanna. Meðal þeirra má nefna veislusalinn, umfangsmiklar breytingar á Kennedy-miðstöðinni, ef hann lætur ekki rífa hana niður, endurbætur á Lincoln-minningarvarðanum og endurgerð golfvallar á svæðinu. Sigurboginn á að vera um 76 metra hár. Á toppi hans eiga að vera gylltar styttur af örnum og engli. Fyrr í þessum mánuði sagði Doug Burgum, innanríkisráðherra, að undirbúningur fyrir framkvæmdir væri vel á veg kominn og þær myndu hefjast á næstunni. Framkvæmdin hefur þó ekki fengið lokasamþykkt enn hjá alríkisnefnd sem ætti að samþykkja hana. Trump hefur þó ítrekað hafið framkvæmdir án samþykkis á undanförnum árum, eins og í tilfelli veislusalarins. Blaðamenn New York Times segja að stór ástæða þess að Trump vilji reisa þessi mannvirki, sé að hann vilji skapa sér arfleifð. Hann hafi orðið bálreiður á árum áður, þegar nafn hans var fjarlægt af byggingum í New York og öðrum víðsvegar um heim. Í Bandaríkjunum er engin hefð fyrir því að forsetar reisi sjálfir sína eigin minnisvarða, þó margir forsetar hafi verið heiðraðir með minnisvörðum seinna meir. Trump er talinn þeirrar skoðunar að enginn annar en hann sjálfur muni reisa minnisvarða um sig. Það sagði hann til að mynda sjálfur í nýlegu viðtali þar sem hann fór með blaðamann í sýningarferð um framkvæmdasvæðið á lóð Hvíta hússins. „Enginn mun gera það þegar ég er farinn. Þegar ég fer héðan, mun enginn gera það.“
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira