Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum Birgir Olgeirsson skrifar 21. september 2026 15:45 Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Ráðuneytið vill breyta reglum um VS-afla eftir vísbendingar um að útgerðir nýti sér heimild sem átti að draga úr brottkasti fisks til að hagnast. Vilhelm Vísbendingar eru um að útgerðir nýti sér reglur gegn brottkasti fisks til að hagnast, að mati atvinnuvegaráðuneytisins. Tekjur Verkefnasjóðs sjávarútvegsins hafa rúmlega fjórfaldast á fimm árum samhliða auknum löndunum á fiski sem ekki dregst frá kvóta skipanna.
Samkvæmt áformum um lagabreytingar í samráðsgátt námu tekjur sjóðsins um 415 milljónum króna árið 2020 en tæpum 1.900 milljónum árið 2025. Aukninguna rekur ráðuneytið til þess að meiri afli sé skráður sem svokallaður VS-afli, sem ekki dregst frá kvóta skipanna. „Vísbendingar eru því um að heimildin sé nýtt einnig í viðskiptalegum tilgangi,“ segir í áformunum. Aflinn dregst ekki frá kvóta VS stendur fyrir Verkefnasjóð sjávarútvegsins. VS-afli er afli sem ekki dregst frá kvóta skipsins, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Heimildin nær almennt til allt að fimm prósenta afla skips á tilteknu tímabili, en hálfs prósents uppsjávarafla. Halda þarf aflanum aðskildum frá öðrum afla, vigta hann sérstaklega og selja á fiskmarkaði. Eftir frádrátt gjalda renna 80 prósent söluandvirðisins til sjóðsins en tuttugu prósent koma í hlut útgerðar og áhafnar. Tilgangurinn er að draga úr hvatanum til að kasta fiski fyrir borð og stuðla að því að allur afli komi að landi. Vilja skýra reglurnar Ráðuneytið hyggst skýra hvað teljist VS-afli og reglur um meðferð hans á uppboðsmörkuðum. Í frumvarpsdrögum frá 2024 var áhyggjum af slíkri nýtingu heimildarinnar lýst nánar. Þar var lagt til að banna útgerðum og tengdum aðilum að bjóða í eigin VS-afla á fiskmarkaði. Það átti að koma í veg fyrir að heimildin væri nýtt til að lækka söluverð aflans, en lægra verð gæti skert það sem áhöfnin fengi greitt. Nýju áformin fela einnig í sér að sjóðurinn geti styrkt kaup á búnaði til leitar og björgunar á sjó. Samkvæmt frummati ráðuneytisins gætu breytingarnar dregið lítillega úr tekjum sjóðsins til frambúðar.
Sjávarútvegur Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira