Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Sunna Sæmundsdóttir skrifar 23. september 2026 12:05 Eyjólfur Ármansson, innviðaráðherra. vísir/vilhelm „Ég er mjög ánægður og stoltur af samningsaðilum að hafa komist að þessari niðurstöðu,“ segir Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, um samkomulag Flugvirkjafélags Íslands við Icelandair um að aflýsa verkfallsaðgerðum sem hófust í nótt. Til stóð að setja lög á verkfallið en hann segir þó ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta.
Ríkisstjórnin kom saman í morgun og afgreiddi frumvarp um að stöðva verkfallsaðgerðir flugvirkja með lagasetningu. Til stóð að leggja málið fram á Alþingi í dag. Af því verður ekki þar sem flugvirkjar ákváðu í morgun að aflýsa verkfallinu. „Ég var að vonast til þess að þessi niðurstaða yrði í ljós í gær eða gærkvöldi, en svo varð ekki. Ég vona að þetta viti á gott um framtíðina en fyrir mér er það algjört neyðarúrræði að ríkisvaldið sé að koma að kjarasamningum með þeim hætti að vera að leggja fram frumvarp og setja lög á kjaradeilur. Það er líka til lausn sem er samningsbundinn gerðardómur sem ég tel að eigi að vera framtíðarlausn í svona málum,“ segir Eyjólfur. Hann segir að til hafi staðið að setja lög á verkfallið vegna þjóðhagslegra hagsmuna. Icelandair standi fyrir yfir helmingi millilandaflugs til landsins og innanlandsflugi auk þess sem útflutningur með flugi hafi verið undir. Samkvæmt yfirlýsingu Icelandair og Flugvirkjafélags Íslands munu samningsaðilar nýta næstu fjórar vikur til viðræðna samkvæmt verkstýrðri viðræðuáætlun ríkissáttasemjara. Öllum flugferðum Icelandair eftir miðnætti var aflýst vegna verkfallsaðgerða flugvirkja. Flugferðir félagsins síðdegis eru á áætlun eftir að verkfalli var aflýst.vísir/Anton Aðspurður hvort hann sé reiðubúinn að grípa aftur til aðgerða gangi viðræður ekki eftir segist Eyjólfur ekkert geta sagt til um það. „Þeir ætla að halda áfram að vinna af heilindum og opnum huga að ná samkomulagi með framtíðarhagsmuni starfsfólks og rekstur Icelandair í huga. Og það er gríðarlega mikilvægt og ég vonast til að þetta fari ekki allt í hnút, að það þurfi ekki að koma til þess.“ En er ekki búið að slá verkfallsvopnið að einhverju leyti úr höndum flugstétta fyrst að þetta voru viðbrögðin svona um leið og verkfall hófst? „Nei, ég tel það ekki vera og ég tel einmitt að Flugvirkjafélag Íslands og Icelandair séu að sýna mikla samfélagslega ábyrgð í þessu máli að halda áfram viðræðum.“ Þannig að þetta væri ekki endilega alltaf lendingin ef það kæmi til dæmis aftur til verkfalls hjá flugvirkjum eða hjá öðrum stéttum innan Icelandair? „Ég skal ekkert segja til um það. Ég tel að það sé algjört neyðarúrræði að ríkisvaldið sé að grípa inn í kjaradeilur á vinnumarkaði. Aðilar vinnumarkaðarins verða að semja sín á milli.“
Flug Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samgöngumál Kjaramál Vinnumarkaður Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira