„Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Smári Jökull Jónsson skrifar 24. september 2026 06:19 Ásrún segir bæjarfulltrúa enn eiga eftir að rýna í skýrslurnar. Tilkynnt var um niðurstöður nýs endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík á þriðjudag. Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segir nýjan tón hafi verið í samtali við stjórnvöld síðustu vikur og að hlustað hafi verið á reynslu og staðkunnáttu Grindvíkinga sjálfra.
Samkvæmt endurskoðuðu áhættumati eru forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík ásættanlegar, að því gefnu að skilgreindar öryggisforsendur séu uppfylltar og nauðsynlegar öryggisráðstafanir virkar. Skólahald hófst í Grindavík að nýju nú í haust eftir að hafa legið niðri frá rýmingu í nóvember 2023. „Niðurstaðan er sú að með þeim öryggisráðstöfunum sem eru til staðar geti öryggi fólks í Grindavík verið sambærilegt við önnur bæjarfélög sem búa við langvarandi náttúruvá. Þetta er mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur og fyrir endurreisn Grindavíkur,“ sagði Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur í samtali við fréttastofu. Trygginga- og lánamál til umræðu Í tilkynningunni um nýtt áhættumat kom einnig fram að ríkisstjórnin muni hefja vinnu við að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum. Ásrún segir að tillögur að uppkaupum verði tilkynntar í október. Hún gat ekki nefnt tölur í því samhengi en Þórkatla keypti hús Grindvíkinga á sínum tíma á 95 prósent af brunabótamati eignanna. Hafa þurfi hraðar hendur því úrræði Þórkötlu um hollvinasamninga og leigu rennur út í október. „Í þessum samningum sem skrifað var undir um uppkaup þá var talað um 95% brunabótamat dagsins í dag. Ég held að það verði ekki. Það er verið að tala um að við þurfum fjölbreyttar leiðir, aðstæður fólks eru misjafnar. Það er verið að ræða tryggingamál og einnig lánamál.“ „Það hefur skort á samtal“ Mikilvægt sé að fólk fái ráðrúm til að máta sig við búsetu í Grindavík á nýjan leik. „Margir eiga eignir annars staðar og það þarf að mögulega selja þær eða leigja. Það er dýrt að halda úti tveimur heimilum. Þannig að þetta þarf að vera gerlegt fyrir fólk,“ segir Ásrún. Hún tekur undir að nýr tónn hafi verið í samtali stjórnvalda við Grindvíkinga síðustu vikurnar og ánægjulegt sé að hlustað hafi verið á reynslu og staðkunnáttu heimamanna við gerð nýs mats. „Það er náttúrulega mikilvægt að fólk sé upplýst og þátttakendur í þessu ferli. Það hefur skort á samtal á milli leyfi ég mér að segja.“ sagði Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Grindavík.
Grindavík Eldgos á Reykjanesskaga Húsnæðismál Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira