Innlent

„Nauð­syn­legt er að kjara­samningar haldi“

Lovísa Arnardóttir skrifar
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ og formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, lagði tillöguna fram.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ og formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, lagði tillöguna fram. Aðsend

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti í dag ályktun um að sveitarfélög sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna. Ályktunin var lögð fram af formanni sambandsins, Almari Guðmundssyni.

Landsþingið lýsir í ályktuninni yfir vilja til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5 prósenta á árinu 2027. 

„Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi og ríkisvaldið og stofnanir í eigu þess taki þátt í sameiginlegu átaki og takmarki með sambærilegum hætti hækkanir á gjaldskrám og álögum sem hafa bein áhrif á heimilin. Með því leggja allir sitt af mörkum við að skapa sátt í samfélaginu,“ segir í ályktuninni.

Þar segir að með samþykkt þessarar ályktunar lýsi sveitarfélög landsins yfir vilja til að leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn verðbólgu og stuðla að auknum stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Landsþingið telur að núverandi aðstæður kalli á sameiginlega ábyrgð allra helstu aðila samfélagsins og samstillt viðbrögð til að ná tökum á verðbólgu og háum vöxtum.

Í ályktuninni er einnig fjallað um samskipti ríkis og sveitarfélaga og mikilvægi þess að það ríki traust og gagnkvæmur skilningur í samskiptum ríkis og sveitarfélaga.

„Í langan tíma hefur á þetta skort og gildir þá einu hvaða flokkar sitja í ríkisstjórn hverju sinni. Sveitarfélögum er ítrekað gert að taka á sig nýjar skyldur og bera aukinn kostnað vegna breyttrar löggjafar og stefnumörkunar ríkisins án þess að fullnægjandi fjármögnun fylgi. Sveitarfélög sitja uppi með fjárhagslegar skuldbindingar sem þau hafa takmarkaða möguleika á að mæta og dæmi eru um að ekki sé staðið við einstaka samninga,“ segir í ályktuninni.

Þar er gerð sú krafa til bæði Alþingis og ríkisstjórnar að breytingar verði á áralöngum samskiptavanda ríkis og sveitarfélaga.

„Sveitarfélögin eiga ekki að vera síðasti hlekkurinn í keðjunni þegar ríkisvaldið tekur stefnumarkandi ákvarðanir, setur ný lög eða reglugerðir án fullnægjandi kostnaðarmats, heldur þarf að tryggja virkt samstarf og fulla fjármögnun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×